Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.05.1990, Síða 28

Læknablaðið - 15.05.1990, Síða 28
250 LÆKNABLAÐIÐ eða fyrirburðarfæðingu er að ræða (1). Hægt er að komast hjá notkun róandi lyfja og verkjalyfja, sem hafa sljóvgandi áhrif á móður og bam. Ef til keisaraskurðar kemur, er konan í betra ástandi og áhættan við aðgerðina verður minni, auk þess sem hægt er að nota deyfingarlegginn til deyfingar fyrir aðgerðina. í þeim 80 fæðingum á árinu 1988, þar sem lendadeyfing hafði verið notuð við tilraun til fæðingar um fæðingarveg, en þar sem síðan þurfti að grípa til keisaraskurðar, var deyfingin notuð í 67 tilvikum við aðgerðina (83,8%). Lendadeyfingum geta fylgt ýmsir fylgikvillar, sem í sérstökum tilvikum geta verið lífshættulegir fyrir móður og bam. I öðrum tilvikum geta þær haft óheppileg áhrif á eðlilegan gang fæðingarinnar. Sé hins vegar vandað til verka og strangar kröfur gerðar til hæfni þeirra sem við þetta fást, er hætta á fylgikvillum óveruleg og hættan á lífshættulegum fylgikvillum nánast engin. í könnun þeirri sem hér er lýst voru alvarlegir fylgikvillar örfáir og enginn langvinnur. Þekktasti fylgikvillinn er stunga gegnum mænubast með leka á mænuvökva og slæmum höfuðverk í kjölfarið. Tíðni þessa fylgikvilla fer eftir hæfni þess er deyfir. Eðlileg tíðni telst 1-3% (3), en lýst er tíðnitölum niður í 0.2% (3). I könnuninni sem hér er lýst varð þetta slys aðeins tvisvar (0,35%). Höfuðverkur vegna mænuvökvaleka getur verið mjög slæmur. Meðferð felst í ríkulegri vökvagjöf og rúmlegu. I völdum tilvikum getur þurft að loka gatinu í mænubastinu með því að sprauta blóði inn í utanbastsrúmið (blood patch). Deyfingarleggir geta þræðst óviljandi inn í æðar og hefur verið lýst í 1-10% tilvika (5). Sést þá yfirleitt blóð renna inn í legginn. Alvarlegustu fylgikvillar lendadeyfingar geta orðið, ef deyfingarleggurinn er óafvitandi þræddur inn í æð eða inn fyrir mænubast. Þessir fylgikvillar komu ekki fyrir í könnuninni sem hér er gerð grein fyrir. Gjöf búpívakaíns í æð getur valdið hjartsláttartruflunum og krömpum (6). Þessi hætta er talin meiri eftir búpívakaín en eftir samsvarandi skammta af lídókaíni (7). Ekki er talin hætta á eitrunareinkennum af 0,25% búpívakaíni ef það lendir ekki í æð (8). Gjöf staðdeyfilyfja inn fyrir mænubast getur valdið útbreiddri deyfingu, hættulegu blóðþrýstingsfalli (9) og jafnvel öndunarlömun. Algengasti fylgikvilli lendadeyfingar er blóðþrýstingslækkun, sem búast má við í 4-5% tilfella, þrátt fyrir venjulegar varúðarráðstafanir (3). Yfirleitt er auðvelt að komast hjá alvarlegri blóðþrýstingslækkun með því að halda skömmtum af staðdeyfilyfi innan hæfilegra marka, gefa vökva í æð og hafa konuna í hliðarlegu (10). Sumir telja minni hættu á blóðþrýstingslækkun, ef lyfið er gefið í sídreypi (4). Ef blóðþrýstingslækkun nálgast hættumörk, eru gefin blóðþrýstingshækkandi lyf í æð. Yfirleitt er notað efedrín (2). í fyrirliggjandi könnun var efedrín gefið í 4% tilvika, þótt aldrei væri um meiri háttar blóðþrýstingsfall að ræða. Algengasta vandamálið er þó ófullkomin eða misheppnuð deyfing. í könnuninni var árangur metinn lítill eða enginn í 6,5% tilvika, sem er sambærilegt við erlendar tíðnitölur (3). Arangur var örlítið lakari hjá aðstoðarlæknum en sérfræðingum, en munurinn ekki tölfræðilega marktækur. Ofullkomin eða misheppnuð deyfing var yfirleitt talin stafa af afbrigðilegri legu leggjarins, annaðhvort á óheppilegum stað í utanbastsrúmi (sem leiðir til ójafnrar dreifingar staðdeyfilyfs og »hálfrar deyfingar«, þ.e. konan dofnar aðeins öðrum megin) eða leggur hefur verið þræddur inn í bandvefi hryggjarins áður en komið var inn í utanbastsrúmið. I sumum tilfellum var augljóslega um að ræða of langan tíma milli áfyllinga staðdeyfilyfs, en í nokkrum tilvikum var deyfing greinilega lögð of seint. Eins konar skilrúm í utanbastsrúmi eru að einhverju leyti talin geta skýrt hálfar deyfingar (11). Tíðni hálfra deyfinga nær allt að 10-20% og er ýmist talin stafa af því að leggurinn hafi verið þræddur of langt inn og leitað til annarrar hliðarinnar eða að ekki hafi verið farið inn í hrygginn í miðlínu og leggurinn þannig lent til hliðar (12). Ef notaðar eru sterkar lausnir staðdeyfilyfja eða þau gefin í stórum skömmtum fæst betri deyfing og hálfar deyfingar verða færri (13). Hins vegar aukast þá óæskileg áhrif deyfingarinnar á eðlilegan gang fæðingar (13). Slík deyfing veldur óeðlilegri slökun á grindarbotnsvöðvum (10,14), auk þess sem vöðvar í kviðvegg og fótum verða máttlausir.

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.