Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.05.1990, Side 49

Læknablaðið - 15.05.1990, Side 49
LÆKNABLAÐIÐ 1990; 76: 267-76 267 Baldur Johnsen SÓTTVARNARÁÐSTAFANIR Á ÍSLANDI EFTIR AFNÁM EINOKUNARVERSLUNAR 1787 Fyrsta heilbrigöisnefndin 1848 YFIRLIT Gerð er grein fyrir stofnun og aðdraganda að stofnun fyrstu heilbrigðis- og sóttvamarhaldsnefndarinnar á íslandi. Sagt er frá starfi þessarar annars gleymdu nefndar, eins og fram kemur í frumriti fundargerða nefndarinnar, frá fyrsta fundi hennar 1853 til síðasta fundar 1885. Fyrsta fundargerðin er skráð hér nokkum veginn orðrétt, því að hún sýnir vel fagleg tök nefndarinnar á þessu vandasama og mjög þýðingarmikla máli. Stiftamtmaðurinn yfir Islandi, síðar innanríkisráðherra Dana, Matthias Rosenöm, skipaði nefndina og löggilti fundargerðarbók fyrir hana árið 1848. Fyrst reyndi á nefndina árið 1853, er kólerudrepsótt, þriðji alheimsfaraldurinn, sem þá geisaði í Evrópu, var kominn til Kaupmannahafnar. Nefndinni tókst giftusamlega að vama því að kólera, bólusótt og mislingar næðu fótfestu á íslandi á þeim árum sem nefndin sinnti fyrst og fremst sóttvamarmálum, eða til 1875. Þá var ný sóttvamarlöggjöf samþykkt á fyrsta löggjarfarþinginu eftir endurreisn Alþingis. Á þeim árum voru bóla og mislingar landlægar sóttir í nágrannalöndum, og fjórir mjög mannskæðir alheimskólerufaraldrar gengu yfir Evrópu. Það verður að teljast til einstakra afreka, að nefndinni tókst á árunum 1871-72 að einangra 14 erlenda bólusóttarsjúklinga af frönskum fiskiskútum, sem leituðu hafnar í Reykjavík. Nefndarmönnum, þeim Vilhjálmi Finsen fógeta, Jóni Thorsteinsen landlækni og Hannesi St. Johnsen bæjarfulltrúa, hugkvæmdist að nota gömlu biskupsstofuna í Laugamesi, sem þá stóð auð, fyrir sóttvamarspítala í þessi tvö ár. Fyrstu sóttvamarhaldsaðgerðimar fyrir ísland koma fram í opnu konungsbréfi 18. maí 1787, um vamir gegn bólusótt og mislingum (flekkusótt). Þá hafði einokunarverslun Dana verið afnumin á Islandi og nokkum veginn frjálsar samgöngur leyfðar við landið. Nýjar og endurbættar sóttvamarhaldsreglugerðir þróuðust síðan, fyrst fyrir Danmörku og Noreg, er til varð 1805 almenn og mjög ítarleg sóttvamarreglugerð fyrir þau lönd. Á árunum 1831-38 var þessi reglugerð smám saman tekin að fullu í gildi á íslandi. Eftir að fyrsti alheimskólerufaraldurinn skall á Evrópu 1826-34 var hert á sóttvömum með fjölda nýrra sérreglugerða vegna kóleruvama, þó innan ramma hinnar ítarlegu konunglegu reglugerðar frá 1805. I öllum tilskipunum dönsku stjómarinnar frá þessum tímum er lögð megináhersla á stofnun heilbrigðis- og sóttvamarhaldsnefnda. Hér á landi sinntu yfirvöld þessum fyrirmælum lítt eða ekki fyrr en 1848, og má segja að ekki hafi verið seinna vænna, því þegar árið 1853 barði kóleruvandamálið að dyrum hér á landi vegna náinna tengsla við Kaupmannahöfn. Þá var nefndin viðbúin og tók engum vettlingatökum á málinu, því mikið var húfi, enda tókst að verja landið fyrir kólerudrepsóttinni, svo og öðrum stórsóttum á meðan nefndin starfaði að sóttvömum allt til ársins 1875. INNGANGUR Eftir að ísland var opnað fyrir beinum siglingum hvaðanæva að úr heiminum, við afnám einokunarverslunar í ársbyrjun 1787,

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.