Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.11.1990, Síða 31

Læknablaðið - 15.11.1990, Síða 31
LÆKNABLAÐIÐ 453 Tafla VII. Hundraöshlutar reykingafólks sem vill hætta aö reykja, skipt eftir aldri og kyni. Karlar Konur Alls Yngri en 30 ára ... (75.0) (85.2) (82.8) 30 - 49 ára ... (75.8) (88.5) (86.5) 50 ára og eldri ... (70.0) (67.6) (67.9) Alls 74.6 83.3 *) 81.8 **) •) x2=15.63 d.f-2 p< .001 **) X2=13.16 d.f.=2 p< .001 sinnum stærra, og hefur þá verið tekið tillit til mismunandi kyn- og aldursskiptingar. Tafia VII sýnir dreifingu reykingafólks sem vill hætta að reykja eftir aldri og kyni. Alls vilja um 82 prósent reykingafólks hætta að reykja, þrír af hverjum fjórum körlum sem reykja en meira en fjórar af hverjum fimm konum sem reykja. Þeir sem yngri eru vilja frekar hætta að reykja en hinir eldri og er sá munur marktækur fyrir konur og fyrir heildina. Greinilegt er þó að fólk fýsir mjög í aðstoð við að losna úr viðjum reykingavanans. Um 89 prósentum reykingamanna finnst að Ríkisspítalar eigi að bjóða starfsmönnum sem vilja hætta að reykja á námskeið. Næstum 98 prósent allra svarenda vilja takmarka reykingar á sjúkrahúsum. Tæplega helmingur svarenda vill algert reykingabann, en rúmlega helmingi svarenda finnst að banna eigi reykingar nema á afmörkuðum svæðum. Þegar viðhorf til reykingabanns eru athuguð kemur í ljós að kyn og starf skipta ekki máli. Hins vegar er marktækt samband á milli reykinga, aldurs og þekkingar og afstöðunnar til þess hvort banna eigi reykingar algerlega eða banna þær nema á takmörkuðum svæðum. Hlutfallið á milli þeirra sem vilja algert bann og þeirra sem vilja takmarkað bann er 3,6 sinnum stærra meðal þeirra sem ekki reykja en meðal hinna sem reykja. Hlutfallið fer stækkandi með aldrinum og með aukinni þekkingu (tafla VIII), þegar leiðrétt hefur verið fyrir öðrum þáttum. UMRÆÐA í inngangi var lýst tilefni þessarar könnunar. Þeirri stefnu vex nú fylgi að gera skuli reykingar útlægar af sjúkrahúsum og öðrum heilbrigðisstofnunum. Margir sjúklingar þjást af sjúkdómum, sem stafa beint eða óbeint af reykingum. Sumir þeirra geta beðið heilsutjón af tóbaksreyk. Aðrir vilja reyna að hætta reykingum, en standast ekki í návist reykinga. Reyklaust sjúkrahús styrkir enn fremur þann skilning í huga almennings, að reykingar eru alvarleg ógnun við heilsu manna. Ef leyft er að reykja á sjúkrahúsum virðist það benda til þess, að reykingar séu sjálfsagður hluti af eðlilegu dagfari manna. Mikill fjöldi manna á erindi á sjúkrahús. Fordæmi sjúkrahússins hefur því áhrif á þjóðfélagið allt. Kannanir sýna, einkum í Bandaríkjunum, að reykingabann á sjúkrahúsum á vaxandi almenningshylli að fagna, enda hefur talsvert áunnist (11). Hvergi hefur reykingabanni þó verið fylgt fram með því offorsi, að ekki sé tekið tillit til farlama sjúklinga, sem ekki geta látið af reykingavananum. Engum kæmi heldur slíkt til hugar hér á landi. Þátttaka í könnuninni var allgóð og nægilega mikil til að draga megi efnislegar ályktanir. Svarhlutfall var ekki verulega háð aldri eða starfshópi. Um fjórðungur starfsmanna reykir, og er það mun lægri hlutfallstala en Tafla VIII. Viöhorf til reykingabanns eftir kyni, starfi, aldri og þekkingu. P OR *) (algert bann/takmarkað bann) Kyn Starf Reykingar Reykja ekki/reykja 0.7135 0.2279 0.0000 3.59 Aldur >50 ára/<30-49ára 0.0001 1.51 30-49/<30 ára 1.24 Þekking Mikil/miölungs 0.0037 1.28 Miðlungs/lítil 1.43 *) Sjá skýringar neöanmáls viö töflu VI.

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.