Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.11.1990, Blaðsíða 52

Læknablaðið - 15.11.1990, Blaðsíða 52
472 LÆKNABLAÐIÐ MEÐFERÐ Á SKEIFUGARNARSÁRI: SAMANBURÐUR Á ENPROSTIL OG CIMETIDINE Ásgeir Theodórs, Bjarni Pjóðleifsson, Einar Oddsson, Ólafur Gunnlaugsson, Sigurður Björnsson, Tómas Á. Jónasson. Lyflækningadeildir Borgarspítala, Landakotsspítala, Landspítala og St. Jósefsspítala Hafnarfirði. lrmgangur: Við græðslu á skeifugamarsárum eru einkum notuð lyf með tvennskonar verkunarmáta. Sýrulækkandi lyf og slímuvemdandi (cytoprotectiv) lyf. Enprostil er prostaglandin lyfjaiíki sem hefur bæði sýrulækkandi og slímuvemdandi eiginleika. Cimetidine er H2 blokkari og hefur sýrulækkandi áhrif. Tilgangur er tvíþættur: 1) Að bera saman græðslu skeifugamarsára hjá sjúklingum sem fengu enprostil 35/rgx2 og cimetidine 400 mgx2. Aðferðir: Valdir voru sjúklingar á aldrinum 18-75 ára og þurfti sárið að vera meira en 5 mm í þvermál greint með speglun. Meðferð var tvíblind annað hvort enprostil 35/tgx2 eða cimetidine 400 mgx2. Sjúklingar skráðu einkenni sín og hugsanlegar aukaverkanir í dagbók og komu hálfsmánaðarlega í eftirlit og speglun. Leyft var að taka sýrubindandi lyf ef tilraunalyfin slógu ekki á einkennin en ekki önnur lyf. Meðferð var hætt þegar sárið var gróið, en þó var ekki gefin meðferð lengur en sex vikur. Niðurstöður: Tuttugu og átta sjúklingar vom teknir í rannsóknina, 13 fengu enprostil og 15 cimetidine. Hópamir reyndust sambærilegir hvað snerti aldur, reykingar, áfengisneyslu, lyfjanotkun og fyrri sögu um skeifugamarsár. Hópamir vom ekki sambærilegir varðandi stærð sára. Meðalflatarmál sára í cimetidine hópnum var 55 mm', en 36 mm' í enprostil hópnum P=0,049. Hlutfall sjúklinga með gróin sár: 2 vikur 4 vikur 6 vikur Enprostil... .2/13 (15%) 9/12 (75%) 11/13 (85%) Cimetidine . .2/15 (13%) 10/13 (77%) 14/15 (93%) Einn sjúklingur í enprostil hópi með ógróið sár var tekinn úr rannsókninni eftir tvær vikur vegna sáreinkenna. Hann var flokkaður sem ógróinn eftir sex vikur. Engar alvarlegar aukaverkanir komu fram. Fjórir (31%) í enprostil hópi og sex (40%) í cimetidine hópi fengu minni háttar aukaverkanir. Umrœða: Græðsla sára var ívið betri í cimetidine hópi 93% eftir sex vikur en í enprostil hópi 85% einkum ef tekið er tillit til þess að sárin voru stærri í cimetidine hópi í upphafi. Sjúklingar eru hinsvegar of fáir til að hægt sé að komast að marktækum niðurstöðum. VERNDANDI ÁHRIF OMEPRAZOLE EÐA RANITIDINE GEGN ÁVERKA Á SLÍMHÚÐ MAGA OG SKEIFUGARNAR AF VÖLDUM NAPROXEN Einar Oddsson, Hallgrímur Guðjónsson, Bjarni Þjóðleifsson. Lvflækningadeild Landspítala. Áverki af völdum »non-steroidal antiinflammatory« lyfja á slímhúð maga og skeifugamar er algengur. Ekki er ljóst hvemig lyfin framkalla áverkann sem getur verið blæðingar í slímhúð, fleiðursár eða eiginleg maga- og skeifugamarsár. Tilgangur rannsóknarinnar var að kanna vemdandi áhrif tveggja lyfja sem hemla sýrumyndun, annað um 100% (omeprazole) en hitt um 75% (ranitidine). Aðferðir: Fimmtán sjálfboðaliðar 22-28 ára fóru í þrjár magaspeglanir fyrir og þrjár eftir meðferð. Speglanir vom gerðar með Olympus sjónvarpsspeglunartæki og niðurstöður skráðar á kvarða 0-4. Meðferð var tvíblind í tilviljunarröð með annað hvort lyfleysu (placebo), omeprazole 40 mg eða ranitidine 150 mgx2 í sjö daga. Á degi 3-7 var gefið naproxen 500 mgx2. Þrjár vikur voru milli meðferðartímabila. Staðtölulegur samanburður var gerður með Friedmann prófi á heildarskori. Ennfremur var athugað hvort mismunur væri á áverka af gráðu 3-4 milli meðferðartímabila. Niðurstöður: Meðaláverkaskor fyrir magann var 1,53 eftir lyfleysumeðferð og omeprazole gaf 40% og ranitidine 44% lækkun, sem var ekki marktækt P=0,35. Enginn einstaklingur hafði gráðu 3-4 áverka á omeprazolemeðferð, en 33% á lyfleysumeðferð og 13% á ranitidinemeðferð. Meðaláverkaskor fyrir skeifugöm var 2,06 eftir lyfleysumeðferð og omeprazole gaf 90% og ranitidine 80% lækkun. Áverki af gráðu 3-4 kom hjá 20% á lyfleysumeðferð en 7% á omeprazole- og ranitidinemeðferð. Umrœða: Niðurstöður benda til að magasýran valdi að verulegu leyti þeim áverka á skeifugöm, sem fyigir naproxengjöf og að um 75% sýrulækkun nægi til vemdar. 1 maganum virðist sýran hafa óveruleg áhrif á vægan áverka (gráðu 1-2) en sennilega veruleg áhrif á svæsnari áverka (gráðu 3-4) og þarf þá nær 100% sýruhemlun til vemdar. ÁVERKI AF VÖLDUM NAPROXEN Á SLÍMHÚÐ MAGA OG SKEIFUGARNAR. VERNDANDI ÁHRIF SUCRALFATS? Hallgrímur Guðjónssun, Einar Oddssun, Bjarni Þjóðleifsson. Lyflækningadeild Landspítala. Bráður áverki á slímhúð maga og skeifugamar er algengur við töku nonsteroidal gigtarlyfja. I dýratilraunum hefur verið sýnt fram á versnandi áhrif sucralfats gegn slíkum áverka en tilraunir hjá mönnum hafa ekki gefið skýrar niðurstöður. 1 þessari rannsókn er reynt að meta vemdandi áhrif sucralfats gegn naproxen áverka á slímhúð maga og skeifugamar. Aðferðir: Sextán sjálfboðaliðar á aldrinum 20-28 ára undirgengust tvær speglanir á maga og skeifugöm fyrir og eftir meðferð. Speglanir voru gerðar með videospeglunartæki og ástand slímhúðar metið á kvarða 0- 4. Sjálfboðaliðar fengu sucralfat (Mukal Delta) 2 gx2 eða gervilyf (placebo) á dögum 1-7, tvíblint og réðist röð af hendingu. Naproxen 500 mgx2 var gefið á degi 3-7. Sex vikur voru á milli meðferða. Staðtölulegur samanburður var gerður með Wilcoxon sign rank prófi. Niðurstöður: Meðaltal áverkaskorar fyrir maga var 2,13
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.