Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.04.1991, Blaðsíða 15

Læknablaðið - 15.04.1991, Blaðsíða 15
LÆKNABLAÐIÐ 1991; 77: 137-40. 137 Skúli Bjarnason, Ingþór Friöriksson, Jón Benediktsson TÍÐNI BRÁÐRAR MIÐEYRABÓLGU HJÁ BÖRNUM Á SVÆÐI HEILSUGÆSLUSTÖÐVARINNAR BORGARNESI ÚTDRÁTTUR Athuguð var tíðni bráðrar miðeyrabólgu hjá bömum á svæði Heilsugæslustöðvarinnar Borgamesi. Fyrir eins árs aldur fengu 48% bamanna bráða miðeyrabólgu, fyrir 18 mánaða aldur 58% og fyrir tveggja ára aldur 66%. Við eins árs aldur höfðu 32% bamanna fengið bráða miðeyrabólgu einu sinni, 11% tvisvar og 5% þrisvar eða oftar. Við 18 mánaða aldur höfðu 32% bamanna fengið bráða miðeyrabólgu einu sinni, 16% tvisvar og 10% þrisvar eða oftar og við tveggja ára aldur voru samsvarandi tölur 32%, 19% og 15%. Við tveggja ára aldur höfðu 77% drengja og 54% stúlkna fengið bráða miðeyrabólgu og er munurinn marktækur (p<0.05). INNGANGUR Bráð miðeyrabólga er algengur sjúkdómur hjá bömum. Ekki hafa áður verið gerðar kannanir á tíðni sjúkdómsins hjá íslenskum bömum. Erlendar rannsóknir sýna að við eins árs aldur hafa 22-85% bama fengið bráða miðeyrabólgu (1-4,6,7) og við tveggja ára aldur 37-67% (2- 4). í rannsóknum þar sem kynjamunur er athugaður (1,2,4,5) kemur fram í þremur rannsóknum að bráð miðeyrabólga er algengari hjá drengjum (1,2,5) en í einni rannsókninni (4) kemur ekki fram marktækur munur við níu ára aldur. Forvitnilegt þótti að kanna tíðni bráðrar miðeyrabólgu hjá íslenskum bömum og bera saman við erlendar rannsóknir. EFNIVIÐUR OG AÐFERÐIR Athuguð vom öll böm fædd 1986 og 1987 sem áttu lögheimili á svæði Frá Heilsugæslustööinni Borgranesi. Fyrirspurnir, bréfaskipti: Skúli Bjarnason. Heilsugæslustöðvarinnar Borgamesi einhvem tímann fyrir tveggja ára aldur, alls 116 böm. Skilyrði þess að böm úr þessum hópi væru tekin með í könnunina vom að þau hefðu átt lögheimili á svæðinu frá fæðingu til tveggja ára aldurs og komið í allar reglulegar ungbamaskoðanir á Heilsugæslustöðina Borgamesi. Skilyrðin uppfylltu 100 af þessum 116 bömum, (86.2%), 52 drengir og 48 stúlkur. Þessi skilyrði voru sett til að útiloka úr könnuninni böm sem gætu hafa sótt læknisþjónustu annað. íbúar á svæði Heilsugæslustöðvarinnar Borgamesi sækja ekki bráðaþjónustu annað nema ef til vill í litlum mæli vegna skammtíma dvalar annars staðar. Könnuð var tíðni bráðrar miðeyrabólgu til tveggja ára aldurs. Skilmerki greiningar var að læknir hefði skráð greininguna bráð miðeyrabólga í sjúkraskrá. Greiningin var fyrst og fremst gerð með eymaspeglun, sjaldnast var framkvæmt hljóðholsrit. Læknar heilsugæslustöðvarinnar skrá öll samskipti samkvæmt Egilsstaðakerfi. Ef meira en 30 dagar liðu milli greininga var það talin ný sýking. Við tölfræðilega útreikninga voru notuð kí- kvaðrat próf og t-próf. NIÐURSTÖÐUR Við tveggja ára aldur höfðu 66 böm af bömunum 100 sem könnuð voru fengið bráða miðeyrabólgu, alls 127 sinnum, sem er að meðaltali 1.27 sýkingar á hvert bam í könnunarhópnum, 1.39 hjá drengjum og 1.15 hjá stúlkum. Samsvarandi tölur við 18 mánaða aldur eru 0.99 sýkingar að meðaltali á hvert bam, 1.13 hjá drengjum og 0.83 hjá stúlkum; við eins árs aldur 0.70 sýkingar á hvert bam, 0.83 hjá drengjum og 0.56 hjá stúlkum. Samkvæmt t-prófun er hér ekki um
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.