Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.04.1991, Blaðsíða 22

Læknablaðið - 15.04.1991, Blaðsíða 22
142 LÆKNABLAÐIÐ tíma hafa slík próf ekki verið aðgengileg læknum. Lítið er vitað um hversu algeng heilabilun er meðal sjúklinga á almennum lyflækingadeildum á íslandi, en um 25% sjúklinga sem heimilislæknar vfsuðu til öldrunarlækingadeildar höfðu glöp sem aðalvandamál (4). í rannsókn frá 1981 (5) fundust miðlungs- og alvarleg glöp meðal 53-68% aldraðra sjúklinga sem voru álitnir langlegusjúklingar, inniliggjandi á bráðadeildum sjúkrahúsanna í Reykjavík. Meðal aldraðra, sem voru innlagðir á öldrunarlækningadeild vegna félagslegra ástæðna á innlagnarbeiðni, höfðu 35% glöp sem aðalástæðu innlagnar (6). Til þess að kanna tíðni glapa og óráðs meðal aldraðra bráðasjúklinga, innlagðra á lyflækningadeild, var ákveðið að rannsaka sjúklinga 70 ára og eldri og athuga jafnframt helstu ástæður innlagnar, aðrar sjúkómsgreiningar, lyfjanotkun, félagslegar aðstæður, og legutíma. Einnig voru athuguð afdrif sjúklinga við útskrift og orsök fyrir óráði. Rannsókn þessi var framvirk og stóð yfir í fimm mánuði. SJÚKLINGAR OG AÐFERÐIR Á rannsóknartímabilinu, sem var fyrri hluti árs 1988, var 331 sjúklingur 70 ára og eldri innlagður brátt á lyflækningadeild Borgarspítalans (Bsp). Innan tveggja sólarhringa frá komu voru allir sjúklingamir metnir með skimprófum með tilliti til skilvitlegrar starfsemi (skilvitund) og öðrum upplýsingum safnað saman. Ekki var hægt að meta 59 sjúklinga með skimprófum vegna skerðingar á meðvitund. Tvö hundruð sjötíu og tvo (82%) sjúklinga var því mögulegt að meta nánar með tilliti til glapa og óráðs. Undanskildir voru sjúklingar sem innlagðir voru á gæsludeild á vegum lyflækningadeildar og útskrifaðir heim næsta dag svo og sjúklingar teknir inn af biðlista. A) Skilvitlegt mat og greining. Sjúklingar voru fyrst metnir með Mental Status Questionnaire (MSQ) (7) og var þetta próf notað sem skimun til að finna þá sjúklinga sem voru líklegir að hafa glöp og óráð. MSQ er 10 atriða spumingalisti sem hefur mikið verið notaður til að meta skilvitlegt ástand (7-9). Einstaklingar sem fá 0-3 stig hafa skilvitlega truflun sem samsvarar alvarlegum glöpum, 4-6 stig samsvara miðlungsglöpum en þeir sem svara 7-10 atriðum rétt hafa óskerta skilvitund, í þann hóp flokkast einnig þeir sem hafa byrjandi og væg glöp (10). Ef sjúklingar fengu færri stig en 8 á MSQ voru þeir einnig metnir með Mini-Mental State Examination (MMSE)(11) sem er stutt 0-30 atriða próf sem notað er við skimun á skilvitlegri starfsemi og þar á meðal óráði og glöpum. Viðmiðunargildi MMSE er 24/23 stig og færri stig sem gefa til kynna skilvitlega truflun. Þetta skimpróf hefur verið notað í fjölda rannsókna þar á meðal á almennum lyflækningadeildum þar sem sýnt hefur verið fram á notagildi þess sem skimtækis (12). Þetta próf hefur verið staðfært á íslenskar aðstæður (13). Sumir hafa efast um notagildi MMSE sem skimtækis til að greina í sundur óráð og glöp (14). MSQ er hvorki jafn næmt né sértækt og MMSE sem var seinna skimprófið sem notað var. Sjúklingar sem náðu færri en 23 stigum á MMSE og 8 stigum eða færri á MSQ voru metnir og skipt í tvo aðalhópa heilabilunar óráð og glöp eftir greiningarmerkjum Diagnostic and Statistical Manual of Mental Disorders 3rd Edition Revised (DSM-III-R) (15). Notagildi DSM-III-R er fólgið í því að fá fram afmarkaðar lýsingar á skilvitlegum og geðrænum einkennum til þess að hjálpa læknum að greina og rannsaka ýmsar geðtruflanir og geðsjúkdóma. Helstu skilmerki DSM-III-R fyrir óráð og glöp eru eftirfarandi: /. Óráð a) Truflun á athygli b) Truflun á hugsun c) Truflun á að minnsta kosti tveimur eftirfarandi sviðum: i) Meðvitund ii) Skynjun iii) Svefni og vöku iv) Skynhreyfivirkni v) Áttun vi) Minni d) Klínískt yfirbragð kemur á stuttum tíma (klukkustundir til dagar) og sveiflast yfir daginn. e) Annað hvort i) eða ii): i) Ákveðin sannanleg vefræn orsök sem veldur ástandinu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.