Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.04.1991, Blaðsíða 32

Læknablaðið - 15.04.1991, Blaðsíða 32
150 LÆKNABLAÐIÐ 1991; 77: 150-2. Þorvaldur Ingvarsson, Halldór Baldursson ER STAÐBUNDIN SLITGIGT í MJÖÐMUM ARFGENG? Sautján alsystkini með slitgigt í mjöðmum INNGANGUR Slitgigt í mjöðmum er algeng, en upplýsingar um algengi hennar eru ekki til á Islandi. Rannsóknir benda til þess að rúmlega 1% af Svíum 60 ára og yngri hafi slitgigt í mjöðmum og tæplega 7% af Svfum við 80 ára aldur (1). Slitgigt getur verið staðbundin, til dæmis í mjöðmum, eða útbreidd. Slitgigt í mjöðmum er skipt í tvo meginflokka eftir því hvort orsakir hennar eru þekktar eða ekki. Ef orsakir slitgigtar eru þekktar, er hún talin áunnin (secundary coxarthrosis). Ef orsök er óþekkt, er hún nefnd frum (primer) (2). Líkur hafa verið leiddar að því að öll slitgigt í mjöðmum sé áunnin (3,4), ýmist vegna bólgusjúkdóma, sýkinga, slysa eða byggingargalla. Frummjaðmarslitgigt sé í raun ekki til, heldur sé hún aðeins nefnd svo vegna þess að orsakir hennar eru ekki enn þekktar. Helstu þekktu orsakir áunnar staðbundinnar slitgigtar í mjöðmum eru eftirfarandi: Morbus Perthes, meðfædd liðskekking (subluxation), meðfætt liðhlaup, kastlos í lærleggshálsi, brot í lærleggshálsi, brot í augnkarli, liðhlaup vegna slyss, iktsýki, hryggikt (spondylitis ankylopoietica) og sóra (psoriasis) liðbólgur. Sumarið 1987 lagðist kona inn á bæklunardeild Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri til að fá gervilið í mjöðm vegna slitgigtar. Hún sagði svo frá að hún væri ein af sautján systkinum sem langflest hefðu slitgigt í mjöðmum, og nefndi að móðir og móðuramma hennar hefðu haft slitgigt í mjöðmum. Þetta var kveikjan að rannsókn þeirri sem skýrt er frá hér. Tilgangur rannsóknarinnar var þríþættur. Frá bæklunardeild Fjóröungssjúkrahússins á Akureyri. Fyrirspurnir, bréfaskipti: Þorvaldur Ingvarsson. 1. Að kanna hve mörg af þessum sautján systkinum hefðu slitgigt í mjöðmum. 2. Að athuga hvort fleiri ættliðir hefðu slitgigt í mjöðmum. 3. Að kanna hvort slitgigt í mjöðmum sé ættgeng. AÐFERÐIR Rannsóknarhópurinn: Sautján systkini, móðir þeirra og systkini hennar. Móðuramma systkinanna sautján. (Sjá ættartré.) Sendur var spumingalisti sem allir svöruðu. Upplýsinga var einnig aflað með viðtölum og úr sjúkraskrám. Höfundar skoðuðu þátttakendur og tóku blóðsýni til erfðarannsókna. Sextán af sautján systkinum komu til skoðunar. Leitað var sérstaklega að ummerkjum áunnar slitgigtar og aflað röntgenmynda. Upplýsingar voru skráðar á flokkunarblað Chamley’s og Wroblewski’s (5). Slitgigt þótti staðfest ef annað tveggja kom fram: 1. Ef viðkomandi hafði sjúkdómseinkenni sem samrýmst gátu slitgigt í mjöðm og á röntgenmynd sást að minnsta kosti liðbilslækkun (1,5-7). 2. Ef sjúklingur hafði gervilið í mjöðm og í sjúkraskrám kom fram að gerviliðsaðgerðin hefði verið gerð vegna slitgigtar. NIÐURSTÖÐUR Fjórtán af 17 systkinum hafa staðfesta slitgigt í mjöðmum með einkennum og röntgengreiningu. Af þeim hafa 12 systkini slitgigt í báðum mjöðmum. Hjá tveimur af sautján systkinum telst slitgigt í mjöðm ekki sönnuð, annað þeirra að minnsta kosti hefur svipuð einkenni og hin systkinin,
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.