Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.04.1991, Síða 23

Læknablaðið - 15.04.1991, Síða 23
LÆKNABLAÐIÐ 143 ii) Líkindi að vefræn orsök hafi valdið ástandinu enda hefur starfræn geðruflun verið útilokuð. II. Glöp a) Trufiun á skammtíma og langtíma minni b) Truflun á að minnsta kosti einu eftirfarandi: i) Ohlutstæðri hugsun ii) Dómgreind iii) Æðri starfsemi heilabarkar (t.d. verkstol, orðskipunarstol) iv) Persónuleika c) Truflunin í a) og b) er það marktæk að áhrifa gætir á starfshæfni, félagslega virkni eða tengslamyndun. d) Má ekki eingöngu koma fyrir meðan á óráði stendur. e) Annað hvort i) eða ii): i) Akveðin sannanleg vefræn orsök sem veldur ástandinu. ii) Líkindi að vefræn orsök hafi valdið ástandinu enda hefur starfræn geðruflun verið útilokuð. B) Aðrar upplýsingar. Eftirfarandi upplýsingar voru fengnar frá sjúklingum sjálfum eða úr sjúkraskrá: 1) Innlagnarlæknir, lögheimili sjúklings (Reykjavík, stór-Reykjavíkursvæðið eða dreifbýli). Einnig hvemig sjúklingur bjó og í hvers konar húsnæði. 2) Aðaleinkenni sem var nefnt í bráðabirgðasjúkraskrá og leiddi til innlagnar. 3) Öll lyf sem sjúklingur notaði voru skráð, fjöldi lyfja og hvaða aðallyfjaflokki lyfin tilheyrðu samkvæmt ACT- kerfi (Anatomical-Therapeutical- Classification) íslensku sérlyfjaskrárinnar (16). Þannig gat einstaklingur verið á þremur mismunandi lyfjum (æðavíkkandi, kalsíumblokkara og beta- blokkara) öllum úr sama aðallyfjaflokki þ.e. hjartasjúkdómalyf og því var skráður fjöldi lyfja þrír en lyfjaflokkur einn. C. Rannsóknir og afdrif. Eftirfarandi upplýsingum var safnað saman eftir útskrift úr læknabréfum og sjúkraskrám: 1) Blóðrannsóknir við komu. 2) Aðalgreining (fyrsta) á læknabréfi. 3) Afdrif sjúklinga við útskrift frá lyfjadeildinni. Table I. Acute medical admissions of patients 70 years and older, January- May 1988, screened for cognitive function and diagnosed according to DSM-III-R. Patients n <%) All 331 Not assessed 59 Screened for cognitive function 272 (100) Normal findings (control group) Abnormal findings: 185 (68) Dementia 50 (18.4) Delirium 37 (13.6) Table II. Mean age and standard deviation (S.D.), and sex-ratio. sex Delirium Dementia Controls (n=37) (n=50) (n=185) Male ...23 20 92 Female ... 14 30 93 Sex-ratio(F/M)... ... 1:1.6 1.5:1 1:1 Age ... 81.7* 84.9" 79.3 S.D ... (7.2) (5.9) (6.2) Difference between groups: ** control: P<0.001 * demented: P<0.05 4) Mat á líklegustu orsök fyrir óráði hjá þeim sjúklingum sem slíka greiningu fengu eftir DSM-III-R. D. Samanburðarhópur. Sjúklingar sem ekki reyndust vera með skilvitlega truflun á skimprófum (MSQ og MMSE) voru ekki metnir frekar og taldir með eðlilega skilvitund. Þessi hópur var notaður sem samanburðarhópur við rannsóknarhópana tvo, óráð og glöp. Gera má ráð fyrir að einhverjir einstaklingar í samanburðarhópnum hafi haft einkenni um glöp á byrjunarstigi en til þess að ná til þeirra hefði þurft mun flóknari skimun sem ekki var komið við í þessari rannsókn. Niðurstöður voru metnar tölfræðilega með tvíhliða kí-kvaðratprófun og Student’s t-test notað þar sem við átti. NIÐURSTÖÐUR Rannsóknartímabilið stóð frá 01.01 til 31.05 1988. Þá voru 736 sjúklingar lagðir inn á lyflækningadeildina og þar af 331 (45%) sjötíu ára og eldri. A öllu árinu 1988 voru 1604 sjúklingar innlagðir brátt, þar af 720 (45%) sjötíu ára og eldri sem er nákvæmlega sama hlutfall og á rannsóknartímabilinu (17).

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.