Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.10.1991, Side 6

Læknablaðið - 15.10.1991, Side 6
290 LÆKNABLAÐIÐ Voru eftirfarandi afriði fyrir hendi? Já/Nei Já/Nei Hræðsla Löng staða Sársauki Nýstaöin(n) á fætur Streita Úr baði Aðgerð Skrýtiö bragð/lykt Dofi í höndum/munni Kippir í útlimum Köfnunartilfinning Bit í tungu/kinn Hröð öndun Misst þvag/saur Ógleði Brjóstverkur Sviti Óreglulegur hjartsláttur Hóstakast Líkamleg áreynsla Verkur í tungu Erting á hálsi/rakstur Verkur við kyngingu Horft til hliðar Þvaglát Mæði Hægöir Áreynsla á handlegg Stuttu eftir máltíð Fastandi Áfengisneysla Mynd. Atriiialisli sem fariö var í gegnuni við töku sjúkrasögu eftir aðsvif og aðsvifskennd. orsök var að ræða. Hjartasírit í 48 klst., ómskoðun á hjarta og áreynsluhjartarit voru gerð ef einkenni sjúklings bentu til hjartasjúkdóms. Hjartasírit var endurtekið ef það fyrsta hafði verið óeðlilegt en uppfyllti ekki skilmerki fyrir orsök aðsvifs eða aðsvifskenndar. Hjartsláttartrufiun sem olli aðsvifi eða aðsvifskennd meðan á skráningu stóð var talin upphaflega orsökin. Blóðþrýstingsmæling var gerð liggjandi og standandi (orthostatic próf) ef líklegt þótti að sjúklingur hefði fengið blóðþrýstingsfall í réttstöðu en ekki hafði tekist að sýna fram á það við fyrstu skoðun. Hjartaþræðing var gerð ef einkenni leiddu til gruns um alvarlegan kransæðasjúkdóm. Fengið var álit sérfræðings í taugasjúkdómum ef einkenni bentu til sjúkdóma í taugakerfi og það var síðan mat hans hvaða sjúklingar þyrftu í frekari rannsóknir, svo sem heilalínurit og/eða tölvusneiðmynd af höfði. Á sama hátt var fengið álit háls-, nef- og eymalæknis ef einkenni bentu til mögulegs sjúkdóms í miðeyra og jafnvægistaug. Rafiífeðlisfræðirannsókn á hjarta var gerð ef 48 klst. hjartasírit eða hjartarafsjá leiddi í ljós eftirfarandi (7): 1. Hjartablokk AV-II eða AV-III. 2. Hægatakt undir 40 slögum á mínútu (án einkenna). 3. Hlé á hjartslætti meira en 2.5 sek. (án einkenna). 4. Pöruð aukaslög frá sleglum, yfir 10 á 48 klst. 5. Hraðatakt frá sleglum oftar en einu sinni með að minnsta kosti þremur slögum (VT) á 48 klst. hjartasíriti. Ef sterkur grunur var um hjartsláttartruflun þrátt fyrir að ofangreindum skilmerkjum væri ekki fullnægt var rannsóknin gerð. Rafiífeðlisfræðirannsókn var gerð á sjúklingum vakandi og óslævðum og var töku allra hjartalyfja hætt 48 klst. fyrir rannsóknina. I staðdeyfingu voru þrjár rafskautsleiðslur þræddar upp eftir nárabláæð (v. femoralis) og með hjálp skyggnimagnara staðsettar hátt í hægri gátt, við HIS knippið og í toppi hægra slegils. Við raförvun var notaður tvöfaldur hlébilsþröskuldur (diastolic threshold). Skipulögð örvun var gerð í toppi og útflæðishluta hægra slegils (right ventricular outfiow tract). Medtronic 5356 forritanlegur örvari og Mingograph 7 hjartarafriti voru notaðir við rannsóknina. Sjúklingum var skipt í eftirtalda greiningarhópa: 1. Aðsvif eða aðsvifskennd vegna skreyjutaugarertingar eða oföndunar (þar með talin aðsvif eða aðsvifskennd tengd þvaglátum, hægðurn eða hósta). 2. Hjartasjúkdómar. 3. Aðsvif eða aðsvifskennd tengd lyfjanotkun. 4. Blóðþrýstingsfall í uppréttri stöðu (án lyfjanotkunar). 5. Sjúkdómar í taugakerfi. 6. Efnaskiptasjúkdómar (þar með talið blóðleysi). 7. Óþekkt orsök. Greinarhöfundar fóru í sameiningu yfir öll sjúkdómstilfellin og ákvörðuðu greininguna eftir að fullnægjandi upplýsingar og rannsóknamiðurstöður lágu fyrir. Rannsóknum var hætt þegar greining lá fyrir. Ef fleiri en ein rannsókn hafði leitt til ákveðinnar niðurstöðu var sú einfaldasta talin ákvarða greiningu. Aðsvif eða aðsvifskennd var talin vera vegna skreyjutaugarertingar þegar sjúkrasaga gaf til kynna undanfarandi hræðslu, sársauka eða

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.