Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.10.1991, Blaðsíða 52

Læknablaðið - 15.10.1991, Blaðsíða 52
(móklóbemíð) Nýtt geðdeyfðarlyf • Árangur er góöur og kemur fljótlega í Ijós, bæði við innlægri og útlægri geðdeyfð 1’2-3 • Skömmtun er einföld, fullir skammtar frá fyrsta degi meðferðar1’23 • Aukaverkanir eru fátíöar, hvorki sljóvgandi né andkólínerg áhrif1’24 • Áhætta er lítil viö ofskömmtun, hvorki áhrif á hjarta né öndun 1-2-4-5 1. StablMetal. J Neural Transm 1989; Suppl 28:77-89. 2. Laux G. Psychiat Prax 1990; 17:17-20. 3. LecrubierYetal. Acta Psychiatr Scand 1990: Suppl 360:18-23. 4. Versiani M et al. Acta Psychiatr Scand 1990; Suppl 360:24-28. 5. Gögn á skrá. F. Hoffmann - La Roche Ltd, Basel, Sviss. Roche STEFÁN THORARENSEN hf Sídumúla 32, 108 Reykjavík Sími 91-886044 AURORIX (Roche, 880153) TÖFLUR; N 06 A G 02 R,B Hvertafla inniheldur: Moclobemidum INN 100 mg eða 150 mg. Eiginleikar: Móklóbemíð er geðdeyfðarlyf. Verkun lyfsins byggist á því að það blokkar mónóamínoxídasa A (MAO-A) sérhæft og afturkræft. Þetta leiðir til minnkaðra umbrota noradrenalíns og serótóníns. Lyfið er ólíkt eldri MAO-blokkurum, sem blokka bæði MAO-A og MAO-B óafturkræft, en því fylgir hætta á hækkuðum blóðþrýstingi við inntöku týramíns (m.a. I osti). Aðgengi lyfsins við langtímanotkun er allt að 90%. Blóðþéttni nær hámarki um 1 klst. eftir inntöku, dreifingarrúmmál er nálægt 1,2 l/kg og próteinbinding i plasmaer u.þ.b. 50%. Helmingunartími í blóði er 1-2 klst. og lengist litillega með vaxandi skömmtum. Umbrot lyfsinseru háð skömmtum, það oxast næralgjörlega í óvirk umbrotsefni, sem skiljast út í nýrum. Ábendingar: Geðdeyfð, aðallega innlæg geðdeyfð. Erfið eða langvarandi útlæg geðdeyfð. Frábendingar: Bráð ruglun (confusio mentis). Meðganga og brjóstagjöf. Ofstarfsemi skjaldkirtils. Pheochromocytoma. Ofnæmi fyrir innihaldsefnum lyfsins. Aukaverkanir: Algengustu aukaverkanir eru blóðþrýstingsfall, óróleiki, svefntruflanir, höfuðverkur og svimi. Stöku sinnum sést kvíði eða ógleði. Sjaldgæfaraukaverkanireru lystarleysi, þreyta, bjúgur, magaverkir eða ruglun (confusio). Milliverkanir: Milliverkun við týramin hefur ekki kliníska þýðingu, en þó er mælt með því, að lyfið sé tekið inn eftir mat. Címetidín hægir verulega á umbrotum lyfsins og getur þurft að minnka skammta móklóbemíðs um helming við samtímis gjöf þessara lyfja. Lyfið getur aukið áhrif adrenvirkra lyfja. Lyfið eykur áhrif ibúprófens og morfinlíkra lyfja. Hefja má meðferð með öðrum geðdeyfðarlyfjum (m.a. þríhringlaga lyfjum) strax þegar notkun móklóbemíðs hefur verið hætt og öfugt. Varúð: Hjá sjúklingum með skerta lifrarstarfsemi þarf að minnka skammta. Sjálfsmorðshneigð getur aukist í upþhafi meðferðar. Skammtastærðir handa fullorðnum: Venjulegur byrjunarskammtur er 300 mg á dag, venjulega gefið í þremur deiliskömmtum. Gera má ráð fyrir, að full verkun fáist eftir 4-6 vikna meðferð. Þegar árangur kemur í Ijós má lækka skammtinn í 150 mg á dag. Hámarksdagskammtur er 450 mg, en í vissum undantekningartilfellum má auka skammtinn í 600 mg á dag. Taka á lyfið inn eftir máltíð. Sjúklingum með skerta lifrarstarfsemi verður að gefa minni skammta en hér hafa verið nefndir. Skammtastærðir handa börnum: Lyfið er ekki ætlað börnum yngri en 12 ára. Pakkningar: Töflur 100 mg: 30 stk. (þynnupakkað); 100 stk. (þynnupakkað). Töflur 150 mg: 30 stk. (þynnupakkað); 100 stk. (þynnupakkað).

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.