Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.10.1991, Blaðsíða 37

Læknablaðið - 15.10.1991, Blaðsíða 37
LÆKNABLAÐIÐ 315 veitt af hjúkrunarfræðingi eða sjúkraliða. Hér getur verið um mjög margvíslega sjúkdóma að ræða hjá mismunandi einstaklingum, t.d. eftirlit með lífsmörkum hjá lokastigs-, hjarta- eða lungnasjúklingi, eða sárameðferð, t.d. á legusári eða skurðsári. Lyfjagjöf er metin sérstaklega, þar sem meðferð og inntaka lyfja er veigamikill þáttur í meðferð aldraðra og fer oft úrskeiðis. Lykillinn að mati á lyfjagjöf er mjög einfaldur og auðskiljanlegur og byggir á því hversu oft þarf að taka til lyf eða gefa þau. Þátturinn »heilabilun« á við vitglöp hverskonar, og tekur það til fleiri þátta en minnistruflunar. Þyngdarkvarðinn tekur mið af því hver áhrif heilabilunarinnar eru á athafnir daglegs lífs. Með »óróleika« eða »afbrigðilegri hegðun« er átt við ýmiss konar vandamál. Oft er um að ræða afleiðingar heilabilunar, en einkennin eru svo afgerandi og leiða það oft til vistunar, að rétt þykir að meta þau sérstaklega. Með »andlegri líðan« er átt við vanlíðan og þjáningar af margvíslegum toga, svo sem þunglyndi, öryggisleysi, kvíða, ranghugmyndir, svefnleysi eða einsemd. Loks eru metnir fæmiþættimir fjórir, hreyfigeta, hæfni til að matast, hæfni til að klæðast og annast persónuleg þrif og stjórnun á hægðum og þvaglátum. Svo dæmi sé tekið getur einstaklingur með alvarlega heilabilun fengið mörg stig af hverjum og einum fæmiþætti fyrir sig, og þar með undirstrikað þörfina fyrir vistun. Lykillinn að vistunarmatinu skýrir hvem þátt fyrir sig. FRAMKVÆMD í tengslum við lög um málefni aldraðra hefur verið gefin út reglugerð um vistunarmat. I reglugerðinni er lýst framkvæmd vistunarmatsins og hvaða aðilar skuli hafa það með höndum. Ekki skal framkvæma vistunarmat nema fyrir liggi skrifleg beiðni einstaklingsins sem meta á. Sé sótt um vistunarmat frá vandamönnum, skal ganga úr skugga um að hinn aldraði sé því samþykkur eða ófær um að taka sjálfstæðar ákvarðanir. Víðast er það þjónustuhópur aldraðra sem skal annast vistunarmat, þó að á því séu undantekningar. í Reykjavík eiga að starfa þjónustuhópar við hverja félags- og þjónustumiðstöð aldraðra. Þeim er ætlað að fylgjast með heilsufari og félagslegri velferð aldraðra á starfssvæðinu og semja í samvinnu við hinn aldraða samþætta þjónustuáætlun byggða á samræmdu, faglegu mati og tryggja að skjólstæðingar á starfssvæðinu fái alla þjónustu sem þeir þarfnast. Þjónustuhópamir eiga hinsvegar ekki að annast vistunarmat í Reykjavík, heldur er það á hendi fjögurra manna matshóps sem í sitja öldrunarlæknir, hjúkrunarfræðingur og tveir starfsmenn félagslegrar þjónustu, þar af einn félagsráðgjafi. Þessum hópi er ætlað að starfa í nánum tengslum við þjónustuhópa aldraðra í borginni og hafa aðsetur hjá öldrunarþjónustudeild Félagsmálastofnunar. Þjónustuhópar úti á landi og matshópur í Reykjavík skulu halda sérstaka vistunarskrá yfir alla aldraða einstaklinga í þörf fyrir stofnanavistun á starfssvæði sínu. Skal skráin vera tvískipt, annars vegar yfir þá sem þurfa á þjónustuhúsnæði að halda, hinsvegar yfir þá sem þurfa á hjúkrunarrými að halda. Auk sérstaks matshóps í Reykjavík má framkvæma vistunarmat fyrir aldraða á þeim sjúkrahúsum þar sem öldrunarlækningadeildir eru starfandi, enda annist öldrunarlækningadeildin matið. A blandaðri viststofnun, þar sem er bæði þjónustu- og hjúkrunarrými, skal mat fara fram innan stofnunarinnar sjálfrar þegar talin er þörf á flutningi frá þjónusturými yfir á hjúkrunarrými. Þar sem þjónustuhúsnæði er ekki hluti af blandaðri stofnun, er gert ráð fyrir að þjónustuhópur aldraðra utan Reykjavíkur eða matshópurinn í Reykjavík annist vistunarmatið. Tvö eyðublöð eru notuð við matið, yfirlits- og matsblað. Hverju eyðublaði fylgir kápa og er lykillinn að vistunarmatinu á innra borði hennar. Yfirlitsblaðið er í þríriti, en matsblaðið í fjórriti, sem virðist flókið, en afritin gegna mikilvægu hlutverki. Ef horfur eru óljósar skal getið um endurmat. Yfirlits- og matsblöðin hafa mislit afrit. Frumrit yfirlitsblaðs ásamt frumriti og gulu afriti matsblaðins sendir matsaðili til þeirrar stofnunar, sem hinn aldraði vill helst sækja um vist á. Vilji hann sækja um vistun á fleiri stofnunum skal matsaðili senda ljósrit af yfirlits- og matsblaði til þeirrar stofnunar. Ef stofnun annast matið, varðveitir hún græn afrit beggja eyðublaðanna ásamt fjórblöðungnum (kápunni), en sendir bleiku

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.