Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.10.1991, Blaðsíða 16

Læknablaðið - 15.10.1991, Blaðsíða 16
298 LÆKNABLAÐIÐ Hjartaómun. Við skoðunina var notað Hewlett Packard (HP) Sonos 500 ómtæki. Aður en hjartaómun um vélinda fór fram var sjúklingur skoðaður á hefðbundinn hátt með hjartaómun um brjóst ýmist með 2.5 eða 3.5 mHz ómbreytum. Notast var við tvívíddar- og M-tækni ómun, ásamt síbylgju-, púlsandi-, og lita-Doppler. Hjartaómun um vélinda var gerð með HP 5MHz ómbreyti staðsettum á enda umbreytts magaspeglunartækis (mynd 1). Þótt flest tæki á markaðnum noti 5MHz ómbreyti, eru þeir til frá 3.5 til 7.5 MHz. Með HP tækjabúnaði er mögulegt að beita tvívíddar og M-tækni ómun ásamt lita- og púlsandi-Doppler. Einnar leiðslu hjartarit var skráð samtímis. Hægt er að klæða ómslönguna einnota hlífðarslíðri úr gúmmíi er ver hana skemmdum og óhreinindum. Má með notkun slíks slíðurs skoða hvem sjúklinginn á eftir öðrum án þess að tími fari til spillis. Ef ómslangan er notuð hlífðarlaust þarf að sótthreinsa hana milli skoðana á líkan hátt og magaspeglunartæki. Einnig er mælt með slíkri hreinsun með jöfnu millibili þótt hlífðarslíður sé að jafnaði notað. Vndirbúningur. Fyrir rannsóknina þarf sjúklingur að vera fastandi í minnst fjóra tíma. Rannsóknin var vandlega útskýrð fyrir sjúklingi ef klínískt ástand leyfði. Sett var venflonnál í bláæð á hendi. Flestir inniliggjandi sjúklingar fengu 5.0-7.5 mg diazepam í æð sem forlyfjagjöf. Hjá einstaka sjúklingi utan spítala reyndist þess þó ekki þörf. Munnhol og kok var staðdeyft með lidókaín úðalyfi og falskar tennur fjarlægðar. Endi ómbreytislöngunnar var roðinn lidókaín hlaupi og munnstykki þrætt upp á slönguna til að verja hana tönnum sjúklings. Sjúklingur var yfirleitt hafður í vinstri hliðarlegu og ómslangan færð blint niður í vélinda þar til ómmynd af hjartanu birtist á skjá ómtækisins, venjulega um 30 cm frá tanngarði. Myndbandsupptaka var gerð allan tímann meðan á skoðun stóð, sem í mesta lagi tók 10-15 mínútur. Að lokinni rannsókn var sjúklingur hafður fastandi í klukkutíma þar til hann hafði aftur fengið tilfinningu í munnhol og kok. Hjá sjúklingum þar sem hjartaómun um vélinda var gerð meðan á aðgerð stóð, var ómslangan færð niður í vélinda í samvinnu við svæfingarlækni eftir að sjúkiingur hafði verið svæfður og á annan hátt undirbúinn fyrir aðgerð. Mynd I. Úlbúnaður lil hjartaómunar um vélinda. Mynd 2. Ómmynd hjartans við venjulega einása hjartaómun um vélinda. Ómmynd hjartans. Við ómun um vélinda er hjartað skoðað aftanfrá og oftast í þversniði (skammás). Nýleg tæki á markaðnum eru þó með tvo ómbreyta á slönguendanum er leyfir skoðun í tveimur homréttum plönum. Vegna hárrar tíðni ómbreytisins og nálægðar hans við hjartað, án þess að loftfyllt lungu séu fyrir ómgeislanum, fást mjög skýrar myndir af gerð

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.