Læknablaðið - 15.10.1991, Blaðsíða 52
(móklóbemíð)
Nýtt geðdeyfðarlyf
• Árangur er góöur og kemur fljótlega í Ijós,
bæði við innlægri og útlægri geðdeyfð 1’2-3
• Skömmtun er einföld,
fullir skammtar frá fyrsta degi meðferðar1’23
• Aukaverkanir eru fátíöar,
hvorki sljóvgandi né andkólínerg áhrif1’24
• Áhætta er lítil viö ofskömmtun,
hvorki áhrif á hjarta né öndun 1-2-4-5
1. StablMetal. J Neural Transm 1989; Suppl 28:77-89.
2. Laux G. Psychiat Prax 1990; 17:17-20.
3. LecrubierYetal. Acta Psychiatr Scand 1990: Suppl 360:18-23.
4. Versiani M et al. Acta Psychiatr Scand 1990; Suppl 360:24-28.
5. Gögn á skrá. F. Hoffmann - La Roche Ltd, Basel, Sviss.
Roche
STEFÁN THORARENSEN hf
Sídumúla 32, 108 Reykjavík
Sími 91-886044
AURORIX (Roche, 880153) TÖFLUR; N 06 A G 02 R,B
Hvertafla inniheldur: Moclobemidum INN 100 mg eða 150 mg.
Eiginleikar: Móklóbemíð er geðdeyfðarlyf. Verkun lyfsins byggist á því
að það blokkar mónóamínoxídasa A (MAO-A) sérhæft og afturkræft.
Þetta leiðir til minnkaðra umbrota noradrenalíns og serótóníns. Lyfið er
ólíkt eldri MAO-blokkurum, sem blokka bæði MAO-A og MAO-B
óafturkræft, en því fylgir hætta á hækkuðum blóðþrýstingi við inntöku
týramíns (m.a. I osti). Aðgengi lyfsins við langtímanotkun er allt að 90%.
Blóðþéttni nær hámarki um 1 klst. eftir inntöku, dreifingarrúmmál er
nálægt 1,2 l/kg og próteinbinding i plasmaer u.þ.b. 50%. Helmingunartími
í blóði er 1-2 klst. og lengist litillega með vaxandi skömmtum. Umbrot
lyfsinseru háð skömmtum, það oxast næralgjörlega í óvirk umbrotsefni,
sem skiljast út í nýrum.
Ábendingar: Geðdeyfð, aðallega innlæg geðdeyfð. Erfið eða langvarandi
útlæg geðdeyfð.
Frábendingar: Bráð ruglun (confusio mentis). Meðganga og brjóstagjöf.
Ofstarfsemi skjaldkirtils. Pheochromocytoma. Ofnæmi fyrir
innihaldsefnum lyfsins.
Aukaverkanir: Algengustu aukaverkanir eru blóðþrýstingsfall, óróleiki,
svefntruflanir, höfuðverkur og svimi. Stöku sinnum sést kvíði eða
ógleði. Sjaldgæfaraukaverkanireru lystarleysi, þreyta, bjúgur, magaverkir
eða ruglun (confusio).
Milliverkanir: Milliverkun við týramin hefur ekki kliníska þýðingu, en þó
er mælt með því, að lyfið sé tekið inn eftir mat. Címetidín hægir verulega
á umbrotum lyfsins og getur þurft að minnka skammta móklóbemíðs
um helming við samtímis gjöf þessara lyfja. Lyfið getur aukið áhrif
adrenvirkra lyfja. Lyfið eykur áhrif ibúprófens og morfinlíkra lyfja.
Hefja má meðferð með öðrum geðdeyfðarlyfjum (m.a. þríhringlaga
lyfjum) strax þegar notkun móklóbemíðs hefur verið hætt og öfugt.
Varúð: Hjá sjúklingum með skerta lifrarstarfsemi þarf að minnka
skammta. Sjálfsmorðshneigð getur aukist í upþhafi meðferðar.
Skammtastærðir handa fullorðnum: Venjulegur byrjunarskammtur er
300 mg á dag, venjulega gefið í þremur deiliskömmtum. Gera má ráð
fyrir, að full verkun fáist eftir 4-6 vikna meðferð. Þegar árangur kemur
í Ijós má lækka skammtinn í 150 mg á dag. Hámarksdagskammtur er
450 mg, en í vissum undantekningartilfellum má auka skammtinn í 600
mg á dag. Taka á lyfið inn eftir máltíð. Sjúklingum með skerta
lifrarstarfsemi verður að gefa minni skammta en hér hafa verið nefndir.
Skammtastærðir handa börnum: Lyfið er ekki ætlað börnum yngri en
12 ára.
Pakkningar: Töflur 100 mg: 30 stk. (þynnupakkað); 100 stk.
(þynnupakkað). Töflur 150 mg: 30 stk. (þynnupakkað); 100 stk.
(þynnupakkað).