Læknablaðið - 15.10.1991, Side 25
l.æknablaðið
305
Tafla I. Fœrniskvarði hreyfigeiu, sjálfsbjargargetu og skilvitundar.
Færniskvaröi Hreyfigeta Sjálfsbjargargeta Skilvitund
1. Full hreyfing án hjálpar Full sjálfsbjargargeta MSQ* 7-10
2. Hreyfigeta meö hjálp, Aðstoö við þvott, klæönaö
s.s. hækjur eöa hjólastóll eöa viö að boröa MSQ 4-6
3. Rúmlega, hjálp í og úr stól Þarf alla aöstoð viö ADL'* MSQ 0-3
* MSQ=Mental status questionnaire
** ADL=Athafnir daglegs lífs
Við athugun á skilvitund var notað einfalt
skimpróf, svokallað MSQ-próf (Mental Status
Questionnaire). Hreyfigeta, sjálfsbjargargeta og
skilvitund voru flokkaðar á færniskvarða 1-3
þannig að óskert fæmi var 1 og skertust fæmi
3, sjá töflu I.
Eftir sex mánuði var fólkið endurmetið. Af
upprunalega 220 manna hópnum voru þá
195 lifandi og tókst að ná til þeirra allra.
Dánartíðni var síðan aftur athuguð eftir 12
mánuði.
Við tölfræðilegar athuganir var notað kí-
kvaðrat próf.
NIÐURSTÖÐUR
í rannsóknarhópnum, alls 220 manns, reyndust
116 vera með þvagleka við fyrri athugun.
Þvagleki meðal kynja skiptist þannig að meðal
173 kvenna voru 92 með þvagleka, eða 53%,
og meðal 47 karla voru 24 með þvagleka, eða
51%, sem er ekki marktækur munur.
Meðalaldur hópsins var 84 ár og var
aldursdreifing 68-100 ár. Eftir 75 ára aldur var
tíðni þvagleka svipuð í öllum aldurshópum
og ekki algengari meðal eldri aldurshópanna
en þeirra yngri. Meðalaldur kvenna með
þvagleka var 85 ár en karla 80 ár. Á mynd
eru aldursdreifing og algengi þvagleka sýnd á
súluriti.
Þvagleki var áberandi tengdur skertri fæmi
og fannst meðal 56 af 68 sjúklingum (82%)
sem flokkuðust með lclegustu skilvitundina.
Af þeim sem höfðu minnstu hreyfigetuna
voru 24 af 26 (92%) með þvagleka og 68
af 78 (87%) af þeim sem flokkuðust hafa
minnstu sjálfsbjargargetuna. Aðeins 17 manns
flokkuðust með 3 á kvarðanum í öllum
þremur fæmissviðum og aðeins einn þeirra
hafði ekki þvagleka. Hins vegar greindust
39 manns á kvarða 1, það er höfðu fulla
Tafla II. Tengsl þvagleka og fœrni.
Færnis- kvaröi Hreyfigeta N (%) Sjálfsbjargargeta N (%) Skilvitund N (%)
1. 36/98 (37) 9/59 (15) 28/104 (27)
2. 56/96 (58) 39/53 (74) 28/43 (65)
3. 24/26 (92) 68/78 (87) 56/68 (82)
Fjöldi
H Án þvagleka Aldur
□ Meö þvagleka
Mynd Aldursdreifing og algengi þvagleka.
hreyfigetu, sjálfsbjargargetu og skilvitund,
og reyndust 33 (85%) þeirra ekki vera með
þvagleka. Tafla II sýnir tengsl þvagleka og
fæmi.
Algengi þvagleka var nokkuð mismunandi
eftir stofnunum, t.d. voru 95% sjúklinga á
Hvítabandinu með þvagleka en þar vistast
fólk með langt gengna heilabilun og enginn
þeirra hafði fulla sjálfsbjargargetu. Hins
vegar reyndust 29% þeirra sem dvelja að
vistheimilinu í Seljahlíð með þvagleka en þar
eru fáir mikið skertir andlega eða líkamlega.
(Sjá töflu III.)
Eftir sex mánuði höfðu 25 látist, eða 11%.
Af þeim höfðu 15 verið með þvagleka en
það er 13% dánartíðni fyrir þvaglekahópinn.
Þessi munur er ekki marktækur. Af eftirlifandi