Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.10.1991, Síða 36

Læknablaðið - 15.10.1991, Síða 36
314 LÆKNABLAÐIÐ Hinn 1. janúar 1990 tóku gildi ný lög um málefni aldraðra (10). Þessi lög byggðu á lögum frá 1982 en gerðar höfðu verið ýmsar breytingar vegna breyttra viðhorfa í öldrunarþjónustu og breyttrar verkaskiptingar ríkis og sveitarfélaga. Lögin fjalla einnig ítarlega um framkvæmdasjóð aldraðra, heimaþjónustu, dagvistun svo og greiðsluþátttöku hinna öldruðu. I þessum lögum er lögð mikil áhersla á vistunarmat. Það skal vera í höndum þjónustuhóps aldraðra eða öldrunamefndar, og enginn má vistast til langdvalar á viststofnun fyrir aldraða nema að undangengnu mati á vistunarþörf. Reglugerð um vistunarmat var gefin út í byrjun árs 1990 (11). Að samningu reglugerðarinnar starfaði starfshópur á vegum Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytisins. VISTUNARMAT Verkefni starfshóps um vistunarmat var að greina alla þá grunnþætti, sem almennt liggja til gmndvallar vistun, hvort heldur er í þjónustuhúsnæði eða á hjúkrunardeild. Jafnframt var verkefni starfshópsins að leggja til mælikvarða á þyngd hvers gmnnþáttar í ákvörðun um vistun. Vistunarmatið á að endurspegla raunverulegar þarfir þeirra, sem þurfa á vistun að halda þannig að enginn veigamikill þáttur verði útundan. Hinsvegar geta sumir sjúkdómar, til dæmis heilabilun, leitt til svo alvarlegra einkenna og/eða röskunar daglegs lífs, að afleiðingar eins sjúkdóms komi fram í mörgum þáttum. Okkur er ekki kunnugt um heildrænt vistunarmat sem þetta annars staðar. Hinsvegar var höfð viðmiðun af erlendum rannsóknum og þekktum matskvörðum við val á lykilbreytum og mælikvarða (12-14). Vistunarmatinu er skipt í fjóra meginþætti: Félagslegar aðstæður, líkamlegt atgervi, andlegt atgervi og færni. Með hliðsjón af erlendum rannsóknum (12-14) var talið, að undir þessum meginþáttum greindust flest þau vandamál sem leiða til vistunar. Undir hverjum meginþætti voru greindir tveir til fjórir undirþættir. Lagt var til að hver undirþáttur væri metinn á 10 punkta kvarða, þar sem ekkert stig táknar að viðkomandi þáttur er ekki vandamál og 10 stig tákna neyðarástand í einni eða annarri mynd. A milli 0 og 10 stiga eru síðan tvö til fjögur millistig, sem eru ekki jafnvíð, þ.e. með vaxandi þörf eru gefin hlutfallslega fleiri stig. Þannig hleypur kvarðinn yfir líkamlegt heilsufar frá 0 fyrir enga þörf á reglulegu eftirliti í 1 fyrir að eftirlits sé þörf, en þó ekki vikulega, í 3 fyrir vikulegt eftirlit, í 7 fyrir daglegt eftirlit og í 10 fyrir eftirlit oft á dag. Reynt var að hafa samræmi í mati mismunandi þátta. Eftirtaldir fjórir þættir eru t.d. allir metnir eftir þjónustuþörf: Líkamlegt heilsufar, lyfjagjöf, hæfni til að klæðast og annast persónuleg þrif og stjóm á þvaglátum og hægðum. Þessir þættir eru metnir á kvarðanum: Sjaldnar en vikulega, vikulega, daglega eða oft á dag. Aðrir þættir verða einungis metnir á huglægari hátt og geymir lykillinn að vistunarmatinu skilgreiningar á einstökum þáttum og stigum og gefur dæmi þar sem við á. Þar sem ekki er hægt að meta allt með þáttum og stigum, er einnig veittur möguleiki á sérstökum umsögnum um alla meginþætti vistunarmatsins. A matsblaði er einnig borin fram sú spuming hvort félagslegra eða lækningarlegra úrræða hafi verið leitað vegna þess vanda sem um er ræða. Er þetta gert til þess að fólk með skammtíma eða læknanleg vandamál vistist ekki til langs tíma af þeim sökum. Loks eru niðurstöðumar dregnar saman á matsblaðinu sem þörf, brýn þörf og mjög brýn þörf. Þessi hugtök hafa ekki verið skilgreind enn. Verður það í höndum þjónustuhóps aldraðra eða matshóps í Reykjavík. Lykillinn að vistunarmati á að vera auðskiljanlegur og er hér því aðeins minnst á aðalatriðin. Með undirþættinum »eigin aðstæður« er átt við aðdrætti, þrif og þvotta, þætti sem heimilishjálp sinnir, þegar hjálpar er þörf. Með »heimilisaðstæðum« er fyrst og fremst átt við ástand húsnæðis, hvort það henti þeirri fötlun, sem viðkomandi einstaklingur býr við og hvort hugsanlega megi laga húsnæðið. »Aðstæður maka eða annarra aðstandenda« á við getu og vilja þeirra til að aðstoða hlutaðeigandi einstakling. Með »neyðarástandi«, svo dæmi sé tekið, er átt við að aðstandendur séu engir eða veiti, ef til em, hvorki félagslega aðstoð né aðstoð við heimilishald. Undir »líkamlegt heilsufar« fellur hverskonar eftirlit eða meðferð vegna líkamlegra sjúkdóma, að lyfjameðferð undanskilinni, sem er metin sérstaklega. Þjónustan er að jafnaði

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.