Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 15.10.1991, Qupperneq 48

Læknablaðið - 15.10.1991, Qupperneq 48
326 LÆKNABLAÐIÐ Einstakir sjúkdómar hafa vinninginn yfir samþætta hrömunarsjúkdóma, en þá sjáum við einkum hjá hinum eldri. Að síðustu er svo munur á sjúkdómum eftir því hvort þeir eiga sér þrýstihópa og stuðningsfélög eða ekki. Þannig em ekki til stuðningsfélög fyrir slitgigt, kviðslit, æðahnúta eða harðlífi og þess vegna eru ekki til sterkir talsmenn fyrir þessa sjúklingahópa. Að sönnu eru þessir sjúkdómar ekki lífshættulegir, en þeir eru - mun oftar en við gerum okkur grein fyrir - orsök langvarandi báginda. SÁLFRÆÐI FORGANGSRÖÐUNARINNAR OG PÓLITÍSK ÁKVARÐANATAKA Oft rekumst við á nauðsyn forgangsröðunarinnar, þegar beitt er þrýstingi vegna einstakra tilvika, til dæmis þegar dagblöðin eða sjónvarpsstöðvamar slá því upp, að tiltekinn sjúklingur hafi ekki fengið nauðsynlega þjónustu. Starfsmanni ríkis eða borgar er stillt upp við vegg og þegar mikið liggur við er ráðherra tekinn á beinið. Svörin verða venjulega þau, að þessu verði nú kippt í liðinn svo fljótt sem verða má. Embættismennimir svara sjálfsagt á þennan máta af því að starfsheiðurinn er í veði og engum stjómmálamanni dettur í hug að hætta atkvæðunum. Þannig er fullnægt því, sem ég hefi áður kallað tilvikaréttlæti (kasuistisk retfærdighed). Þar sem fjárframlögin aukast ekki, leiða slíkar skyndilausnir til nafnleyndaróréttlætis (anonym uretfærdighed), vegna þess að aðrir sjúklingar fá ekki að njóta þessara úrræða og oft er þar um að ræða eldri sjúklinga með sín samþættu vandamál. Inn í þessa sálfræðimynd kemur einnig sá Svarti- Pétur, sem læknar og stjómmálamenn spila. Þannig verður læknum til dæmis á orði: »Ef við þurfum að skera niður, verða pólitíkusamir að segja okkur hvaða sjúklingum það á að bitna á« - og er þeim það þó fullljóst, að enginn stjómmálamaður fer að fremja pólitískt sjálfsmorð með þess háttar yfirlýsingum. Stjómmálamennimir reyna fyrir sitt leyti að koma svarta litnum á læknana: »Við setjum starfsemina á föst fjárlög og síðan geta læknamir svei mér deilt þessu niður«. ÞRÍR HÓPAR OG FJÖLMIÐLARNIR í MIÐJUNNI í sérhverri umfjöllun um forgangsröðun í heilbrigðisþjónustunni eru þrír leikaðilar, borgaramir, stjórmálamennimir og heilbrigðisstéttimar. Af og til eru það fjölmiðlamir sem hleypa umræðunni af stað, stundum með fréttaflutningi og stundum þegar þeir gerast sjálfskipaðir dómarar í leiknum. Hver leikaðili um sig er bundinn hinum tveimur gagnkvæmum réttindum og skyldum. Oftast fer umræðan í fjölmiðlunum aðeins fram milli tveggja leikaðila í einu og oft eru réttindi og skyldur slitin úr samhengi. Þannig er oft horft fram hjá því, að oftast er ekki hægt að auka úrræðin nema borgaramir vilji axla auknar skattabyrðar. I raunsærri umræðu um forgangsröðun í heilbrigðiskerfinu verður að horfa fram hjá draumnum (eða blekkingunni) um það að við getum veitt hömlulausa þjónustu og við verðum að venja okkur við tilhugsunina um að þurfa að velja og hafna. SAMKENND OG HEILDARSÝN í forgangsröðuninni innan lýðræðisins á Norðurlöndum er oft látið í veðri vaka, að efnahagsþátturinn sé sá mikilvægasti. Þetta er auðvitað rétt í þeim skilningi, að væru fjármunimir tiltækir í hæfilegu magni, myndi draga stórlega úr þörfinni á forgangsröðun og þá myndu siðrænu vandamálin skreppa saman. Hins vegar hygg ég, að ennþá mikilvægara sé afl þeirrar samkenndar, þeirrar kenndar um samstöðu, sem getur leitt til þess, að þeir sem standa utan þjóðfélags- eða hagsmunahóps fái einnig sæti ofarlega á forgangslistunum, Bæði stjómmálamenn og heilbrigðisstarfsmenn hafa átt þá ósk, að í stað heildarsýnarinnar, (en á hana er ekki til nein mælistika), gætu komið »hlutlaus«, mælanleg hugtök eins og aukin lífsgæði mæld í árum (Quality Added Life-Years, QUALY) eða raunverð á kransæðaígræðslum, mjaðmarliðs- og dreraðgerðum o.s.frv. Þess kyns efnahagslega mælikvarð.a má að sjálfsögðu nota til þess að opna augu manna, en þeir geta aldrei komið í stað þess flókna ákvörðunarferlis, sem tekur mið af þörfum, úrræðum, samkennd o.s.frv.

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.