Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 15.08.1992, Qupperneq 15

Læknablaðið - 15.08.1992, Qupperneq 15
LÆKNABLAÐIÐ 1992; 78: 221-7 223 ef bæði tókst að þræða gallpípu (choledochus) og brispípu eða þá pípu sem áður var ákveðið að þræða. Þræðing var talin hafa tekist að hluta, ef annað hvort tókst að þræða gallpípu eða brispípu þegar ætlunin var að þræða báðar pípumar. Með tilviki er átt við einstaka rannsókn eða aðgerð sem framkvæmd var á sjúklingunum. Reynt var að meta samdrátt eða þrengsli í hringvöðva: 1) Með Nardi rannsókn (Morphine - prostigmín rannsókn), 2) ef viðnám var aukið gegn þræðingu eða hreyfingu á þræðingarlegg í hringvöðvanum eftir þræðingu, 3) með klínísku mati, ef verk var lýst í kviðarholi undir hægri rifjaboga, afbrigðilegar lifrarrannsóknir í blóði og útþensla á gallpípu við ómskoðun. NIÐURSTÖÐUR Rannsóknir og aðgerðir (samtals 535) voru gerðar einu sinni í 463 (86,5%) tilvikum, tvisvar í 60 (11,2%), þrisvar í fjórum (0,8%) og fjórum sinnum í átta (1,5%) tilvikum. Allar ræktanir á bakteríum frá holsjá og skolvökva voru neikvæðar. Aðgerðir og rannsóknir tókust í 467 (87,3%) tilvika, þar af fullkomlega í 454 tilvikum (84,9%). Þræðing tókst að hluta til í 13 (2,4%) tilvikum. Rannsóknin mistókst í 68 (12,7%) tilvikum, en helstu ástæður voru, að ekki tókst að þræða gallpípu (choledochus), brispípu eða hringvöðva í 38 tilvikum. Aðrar algengar ástæður fyrir því að holsjárskoðun tókst ekki voru skeifugamarpoki (duodenal diverticulum) í 10 tilvikum og samdráttur eða þrengsli í hringvöðvanum í 11 tilvikum. í níu tilvikum tókst hins vegar að þræða hringvöðvann við endurtekna þræðingu. Hringvöðvaþrengsli voru staðfest í skurðaðgerð hjá tveimur sjúklingum. Aðrar ástæður voru óalgengari. Algengasta ábendingin fyrir að sjúklingur fór í rannsókn var grunur unt stein í gallgöngum í 275 (51,4%) tilvikum (mynd 3). Áðrar ábendingar voru grunur um sjúkdóm í briskirtli í 73 tilvikum (13,6%), kviðverkir af óþekktum uppruna í 65 tilvikum (12,2%) og í 63 tilvikum (11,8%) var rannsókn framkvæmd vegna gruns um æxli í eða við briskirtil. Fátíðari ábendingar voru hringvöðvaþrengsli (papillary stenosis), afbrigðileg lifrarpróf, niðurgangur og síendurteknar gallvegabólgur. Table I. Indications for therapeutic ERCP interventions. Indication Number (%) Stone(s) in CBD*) .... 95 (62.5) Spasm/stricture in SO**) .... 33 (21.7) Neoplasm .... 17 (11.2) Other 7 (4.6) No. of procedures .... 152 (100.0) *) CBD: Common Bile Duct. **) SO: Sphincter of Oddi. 1 152 tilvikum voru aðgerðir framkvæmdar í kjölfar HRGB (tafla I). Algengasta ábendingin fyrir aðgerð var grunur um stein(a) í gallpípu í 95 tilvikum (62,5%). Þrengsli eða samdráttur í hringvöðva var ábending fyrir aðgerð í 33 tilvikum (21,7%), æxli í 17 tilvikum (11,2%), en aðrar ábendingar voru fátíðari eða í sjö tilvikum (4,6%). Algengasta aðgerðin var hringvöðvaskurður með holsjá (HSH) alls í 134 tilvikum (88,2%). Þar af eingöngu HSH í 69 tilvikum, en ásamt steintöku í 57 tilvikum og ísetningu holpípu eða leggs í átta tilvikum (tafla II). HSH var framkvæmdur til að auðvelda steintöku þar sem steinn var í gallpípu, einnig var HSH framkvæmdur þar sem því var við komið væri um hringvöðvaþrengsli að ræða. Aðrar aðgerðir voru ísetning holpípu/leggs án hringvöðvaskurðar í sjö tilvikum og víkkun á gallpípuþrengslum í þremur tilvikum. Vefjasýni var tekið úr papilla Vateri í þremur tilvikum. I fimm tilvikum var um að ræða aðrar aðgerðir, óalgengari. I þeim 65 tilvikum, þar sem rannsókn var gerð vegna óljósra kviðverkja, var ekki hægt að finna neina ástæðu fyrir verkjum í 43 Stones in bile ducts 275 (51.4%) Other 59 (11.0%) Pancreatic turrn 63 (11.8%) Non-specific abdominal pain 65 (12.2%) Pancreatic disease 73 (13.6%) Fig. 3. Indications for diagnostic and therapeutic ERCP (535).

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.