Læknablaðið - 15.08.1992, Blaðsíða 13
LÆKNABLAÐIÐ 1992; 78: 221-7
221
Ásgeir TheodórsIUK Hannes Hrafnkelsson21
HOLSJÁRRÖNTGENMYNDUN AF
GALLGÖNGUM OG BRISPÍPU.
Rannsóknir og aðgerðir framkvæmdar á
Borgarspítalanum 1981-1990
ÁGRIP
Á síðustu árum hefur verið sýnt fram
á mikilvægi holsjárröntgenmyndunar af
gallgöngum og brispípu (HRGB) og aðgerða
tengdum rannsókninni í greiningu og meðferð
sjúkdóma í gallgöngum og briskirtli. Tilgangur
þessarar rannsóknar var að afla upplýsinga um
ábendingar. niðurstöður og helstu aukakvilla
HRGB og tengdra aðgerða, sem gerðar voru á
Borgarspítalanum á árunum 1981 -1990.
Gerð var afturskyggn athugun á
holsjárröntgenmyndun af gallgöngunt og
brispípu (HRGB) á 388 sjúklingum. Konur
voru 255 (65,7%), en karlar 133 (34,3%).
Framkvæmdar voru 535 skoðanir og aðgerðir.
Rannsókn og aðgerð tókst fullkomlega í
454 tilvikum (84,9%). Meginábendingar
fyrir rannsóknum og/eða aðgerðum voru:
Grunur um steina í gallpípu í 275 tilvikum
(51,4%), grunur um sjúkdóm í briskirtli í
73 tilvikum (13,6%), óljósir kviðverkir í
65 (12,2%) og grunur um æxli í eða við
briskirtil í 63 tilvikum (11,8%). í 59 tilvikum
(11,0%) var rannsóknin framkvæmd af öðrum
ástæðum. Aðgerðir í kjölfar HRGB voru
framkvæmdar í 152 tilvikum, oftast, eða í
95 skipti (62.5%), vegna steina í gallpípu og
vegna þrengsla og/eða samdráttar í hringvöðva
(sphincter of Oddi) í 33 tilvikum (21,7%).
Holsjárskurður á hringvöðva (HSH) var
algengasta aðgerðin gerð í samtals 134
tilvikum (88,2%). Steinar (einn eða fleiri) voru
fjarlægðir í 57 tilvikum (37,5%). Rannsókn
og aðgerð tókst fullkomlega í 454 tilvikum
(84,9%).
Aukakvillar komu fyrir í 15 (9,9%) af 152
aðgerðum, en í 17 (4,4%) af 383 rannsóknum.
Algengustu aukakvillamir voru briskirtilbólga
Frá Myflækningadeild Borgarspítalans,
"’lyflækningadeild St. Jósefsspítala, Hafnarfiröi.
Fyrirspurnir, bréfaskipti: Ásgeir Theodórs.
(4,3%), gallgangabólga (1,1%) og blæðing
(0,6%). Alvarlegir aukakvillar komu fyrir hjá
fimm sjúklingum eða í sex tilvikum (1,1%).
Andlát eins sjúklings (0,3%) telst óbein
afleiðing HRGB og HSH.
Niðurstöður þessarar rannsóknar eru í
megindráttum í samræmi við niðurstöður
erlendra rannsókna. HRGB er nákvæm og
gagnleg rannsókn við greiningu sjúkdóma í
gallgöngum og brispípu. HSH og brottnám
steina úr gallgöngum er oft góður kostur fyrir
sjúklinga. Aukakvillar eru ekki tíðir og vægir í
flestum tilvikum. Alvarlegir aukakvillar koma
fyrir.
INNGANGUR
Ríflega 20 ár eru liðin frá því að byrjað var að
gera holsjárröntgenmyndun af gallgöngum
og brispípu (HRGB=ERCP-(Endoscopic
Retrograde Cholangiopancreatography)) (1).
Þá var álitið, að komin væri fram rannsókn
sem hjálpað gæti til við að finna æxli í
briskirtli á byrjunarstigi. Gallsteinn var fyrst
fjarlægður úr gallgöngum 1973 (2) og 1974
var gerður holsjárskurður á hringvöðva
(HSH=ES-(Endoscopic Sphincterotomy),
skorið í sphincter of Oddi) með aðstoð
holsjár (3). Það hefur aukið notagildi
rannsóknarinnar að mögulegt er að gera
aðgerðir í kjölfar hennar og komast þannig
hjá viðameiri skurðaðgerðum. Slíkar aðgerðir
eru algengastar ef um stein(a) er að ræða í
gallgöngum (4). Jafnframt getur verið ástæða
til að skera í hringvöðvann ef um er að ræða
þrengsli eða krampa í honum. Frá 1980 hefur
holsjártækni verið notuð til að koma legg
(nasobiliary catheter) eða holpípu (stent,
endoprosthesis) gegnum þrengsli, til dæmis
illkynja æxli í gallgöngum eða brispípu, ef
um óskurðtækt æxli er að ræða (5). Árangur
þessarar aðgerðar er talinn sambærilegur
við fróunarskurðaðgerð (6). Gera má ráð