Læknablaðið - 15.08.1992, Blaðsíða 23
LÆKNABLAÐIÐ 1992; 78: 229-32
231
Mynd 1. Efst: Slanga t lifrarporti. Nálin hefur verið
fjarlœgð. Miðja: Slönguendi í stœrri portœðargrein.
Leiðari færður inn í portœðargrein. Neðst: Slangan fœrð
yfir leiðara í portœðarstofn.
Mynd 2. Bláœðakerf umhverfis bris. Sýnatökustaðir og
niðurstöður insúlínmœlinga (mpll) erufœrð inn.
þangað til endinn var kominn út í miltisbláæð,
allt að miltisporti (mynd 1).
Þegar seinni slangan er komin á réttan stað er
nauðsynlegt að taka myndrunu til nákvæmrar
greiningar á bláæðum frá umhverfi briss. Hjá
okkar sjúklingi var 40 ml Ultravist dælt inn
með hraðanum 8 ml/sek. og ein mynd tekin á
sekúndu í 15 sekúndur.
Blóðsýnataka hófst að lokinni myndatöku
og voru sýnin tekin úr miltisbláæð og
hengisbláæðum eins og sést er á mynd 2.
Blóðið, sem notað er til hormónmælingar,
má ekki vera skuggaefnisblandað og því er
nauðsynlegt að henda alltaf fyrstu millilítrum
úr slöngunni eftir að hún hefur verið færð
til, ef skuggaefni er gefið til staðfestingar á
legunni.
NIÐURSTAÐA
Mynd 2 sýnir niðurstöður insúlínmælinganna.
Þar kemur fram að blóðsýni frá miltisporti
innihélt 41 m/r/1. Næsta sýni, sem tekið
var lengst úti í miltisbláæð en þó eftir að
brisbláæðar hafa tæmt sig í miltisbláæð, sýndi
hins vegar meir en tvöfalt gildi og sania
á við um öll önnur sýni sem tekin voru í
miltisbláæð. Blóðsýni frá hengisbláæðum og
vinstri magabláæð höfðu hins vegar sömu
þéttni insúlíns og blóð sem kom beint frá
miltanu. Bláæðablóð frá brishöfði og hluta
brisbúks rennur til hengisbláæða. Því var
ályktað að hormónframleiðandi æxlið sæti
lengst úti í brisskotti. Staðsetning æxlisins er
merkt með röndóttum hring á skýringarmynd.
Niðurstaða mælinganna benti til æxlisvaxtar
í brisskottinu. Um miðjan febrúar var
brisskott og milta fjarlægt með skurðaðgerð.
I brisskottinu fannst 1,3 cm insúlínæxli og
mátti grilla í það með berum augum við
aðgerðina. Sjúklingi heilsaðist vel eftir aðgerð
og útskrifaðist á tíunda degi. Blóðsykur hefur
verið eðlilegur síðan.
UMRÆÐA
Insúlínmælingar eftir PTP-rannsókn bentu
til staðsetningar á insúlínframleiðandi
æxli í brisskottinu og var það fjarlægt
með skurðaðgerð. Sjúklingur var þar með
læknaður, því ekki var neinn grunur um
illkynja breytingar við meinafræðirannsókn.
Reynsla annarra er að ekki takist alltaf að
staðsetja nákvæmlega insúlínframleiðandi