Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.08.1992, Blaðsíða 49

Læknablaðið - 15.08.1992, Blaðsíða 49
LÆKNABLAÐIÐ 1992; 78: 257-62 257 Brjánn Á. Bjarnason, Lárus Helgason INNLAGNIR Á GEÐDEILDIR RÍKISSPÍTALA Á TÍMABILINU 1909-1984 ÁGRIP Gerð hefur verið rannsókn er varðar bæði innlagnir og sjúklinga sem lögðust inn á geðdeildir Ríksspítala ákveðin ár á tímabilinu 1909-1984. í niðurstöðum kemur fram, að innlögnum fjölgar mikið eftir 1959. Þessi mikla fjölgun verður nánast eingöngu í endurinnlögnum, en fjöldi fyrstu innlagna helst nánast óbreyttur þennan tíma. Innlagnir karla eru mun fleiri en kvenna, en saman dregur með hópunum undir lok rannsóknartímabilisins. Meðalaldur beggja kynja helst svo til óbreyttur eftir árið 1944. Verulegar breytingar urðu á samsetningu sjúklingahópsins eftir sjúkdómsgreiningum. Sjúklingar með ákveðna geðsjúkdóma þurfa fremur á endurinnlögn að halda en aðrir. INNGANGUR Segja má, að fagleg meðferð geðsjúkra hérlendis hafi hafist með opnun Kleppsspítalans árið 1907. Síðan hafa miklar breytingar orðið á meðferð og aðbúnaði. Nýjar og bættar rannsóknir gera greiningu og meðferð geðsjúkdóma markvissari. Má þar nefna tölvusneiðmyndir, segulómun, fullkomnari heilarit, bættar rannsóknir í lífeðlis- og lífefnafræði, stöðluð greiningarpróf, persónuleikarannsóknir, hæfileikamat og fleira. Með réttri notkun nútíma geðlyfja, meðal annars við geðrofi (psychosis) og þunglyndi, er unnt að draga úr eða eyða einkennum. Nútíma meðferð hefur meðal annars leitt til breytinga á tilefnum til innlagna og stytt dvöl þeirra, sem þurftu á innlögn að halda (1). í kjölfar bættrar lyfjameðferðar hafa aðrir þættir meðferðar eflst. Má þar nefna ýmsar tegundir samtalsmeðferðar, félagslega meðferð og markvissari endurhæfingu. Viðbrögð Frá geödeild Landspítala. Fyrirspurnir, bréfaskipti: Brjánn A. Bjarnason. í þjóðfélaginu gagnvart geðsjúkum eru almennt jákvæðari og því hafa skapast betri möguleikar á að ná góðum árangri. í rannsókninni er með geðdeildum Ríkisspítala átt við Kleppsspítalann og geðdeild Landspítalans. »Gamli-Kleppur« tók til starfa árið 1907, »Nýi-Kleppur« árið 1929 og viðbygging (norðurálma) á Kleppsspítalalóð árið 1951. Árið 1979 hófst rekstur geðdeildar Landspítalans í nýju húsi á Landspítalalóð og var hún ásamt Kleppsspítala sameinuð Landspítalanum (2). Skipulögð starfsemi göngudeilda hófst árið 1964. Um líkt leyti var farið að huga að aðstöðu á höfuðborgarsvæðinu fyrir sjúklinga, er þurftu á framhaldsmeðferð að halda. Alls eru nú átta slíkar deildir á vegum geðdeildarinnar. Auk geðdeildar Landspítala eru nú starfræktar geðdeildir á Borgarspítala og Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri. EFNIVIÐUR OG AÐFERÐIR Efniviður var sóttur í spjaldskrá geðdeilda Ríkisspítala og upplýsin^ar fengnar frá tölvudeild Rfkisspítala. I spjaldskrána hafa verið færðar allar innlagnir á geðdeildimar frá upphafi, eða frá árinu 1907, nema innlagnir á áfengisdeildina að Gunnarsholti og deild fyrir langdvalarsjúklinga er dvöldu um tíma á Stykkishólmsspítala. * Rannsóknin náði til allra innlagna fimmta hvert ár frá árinu 1909 til 1984. * Með fyrstu innlögn er átt við fyrstu innlögn sjúklings á geðdeildir Ríkisspítala, jafnt á skráðum árum sem öðrum. * Með endurinnlögn er átt við innlögn sjúklings, sem hefur einhvem tíma áður legið á geðdeildunum, hvort sem var á skráðu ári eða ekki.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.