Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.08.1992, Síða 24

Læknablaðið - 15.08.1992, Síða 24
232 LÆKNABLAÐIÐ brisæxli með þessari aðferð, en hún gefur þó ekki fölsk jákvæð svör (5). Við endurmat á rannsóknum, sem framkvæmdar voru á sjúklingi, má með góðum vilja sjá æxlið á röntgenmyndum sem teknar eru við skuggaefnisinndælingu í iðrarholsstofnæð (truncus coeliacus), en æxlið ber í miltað á öllum myndum og er það sennilegasta skýringin á að það greindist ekki. Dálítið mismunandi niðurstöður mælinga á hormóninnihaldi miltisæðablóðs skýrist með lagskiptu blóðflæði en mestur hluti blóðsins kemur frá milta, þó brisbláæðarnar séu margar eru þær allar smáar. Fjölmörgum aukaverkunum og fylgikvillum hefur verið lýst við lifrarástungur. Ef stungið er í gegnum brjósthol er möguleiki á loftbrjósti og blæðingu í brjósthol. Við lifrarástungu er einnig möguleiki á því að gat komi á gallgang eða gallblöðru og lýst hefur verið gallleka í kviðarhol, en slíkt getur verið mjög sársaukafullt fyrir sjúklinginn. Einnig er möguleiki á blæðingu frá lifur eða jafnvel frá neðri holæð (vena cava inferior). Allir þessir fylgikvillar eru sárasjaldgæfir og þarfnast næstum aldrei aðgerðar (2). Til mikils er að vinna að skurðlæknirinn viti sem nákvæmast um staðsetningu æxlisins (sem getur verið smáarða), til þess að ekki þurfi að nema á brott of stóran hluta briskirtilsins eða taka burt stóran hluta kirtilsins »blindandi«. Niðurstaðan er því sú, að þó svo að PTP- rannsókn sé tímafrek og krefjist lifrarástungu og þar með ekki alveg hættulaus, eigi hún rétt á sér eftir að aðrar algengari og auðveldari aðferðir fyrir sjúklinginn hafa reynst árangurslausar. Saga þessa sjúklings er einnig athyglisverð að því leyti að fyrstu insúlínmælingar voru ekki sláandi háar þrátt fyrir lágan blóðsykur, en insúlínið fór greinilega hækkandi með tímanum. Meðan beðið er eftir að rannsóknir leiði í ljós staðsetningu insúlínoma er meðferð með diazoxíð gagnleg (6). ÞAKKIR Höfundar kunna Sigurði V. Sigurjónssyni röntgenlækni Landspítala bestu þakkir fyrir mynd 2 og Jóni Guðmundssyni röntgenlækni Borgarspítala þakkir fyrir aðstoð við rannsóknina og lestur hluta handrits. HEIMILDIR 1. Amar DO, Theodors A, Isaksson HJ, et al. Cancer of the Pancreas in Iceland. An Epidemiologic and Clinical Study, 1974-1985. Scand J Gastroenterol 1991; 26: 724-30. 2. Rossi P, Allison DJ, Bezzi M. Endocrine Tumors of the Pancreas. Radiol Clin North Am 1989; 27: 129- 61. 3. Hoevels J, Lunderquist A, Tylén U. Percutaneous Transhepatic Portography. Acta Radiol (Diagn) 1978; 19: 643-55. 4. Ingemansson S, Lunderquist A, Holst J. Selective Catheterization of the Pancreatic Vein for Radioimmunoassay in Glucagon-Secreting Carcinoma of the Pancreas. Radiology 1976; 119: 555-6. 5. Norton J, Shawker TH, Doppman JL, et al. Localization and Surgical Treatment of Occult Insulinomas. Ann Surg 1990; 212: 615-20. 6. Endocrinology and Metabolism. Felig P, Baxter JD, Broadus AE, Frohman LA, eds. New York: McGraw Hill Book Company, 1987: 1186.

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.