Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.08.1992, Side 32

Læknablaðið - 15.08.1992, Side 32
240 LÆKNABLAÐIÐ 1992; 78: 238-41 verulega aðstoð við að svara spumingunum. Ekkert kom fram, sem benti til þess að einstakar spurningar væru sérstaklega torskildar. Meðalniðurstöður úr einstökum flokkum fæmismatsins em birtar í töflu II. Niðurstöður úr hlutlægu mati iðjuþjálfa á þrettán af tuttugu spurningum spurningalistans reyndust mjög líkar svörum sjúklinga (sjá mynd). Gott samræmi (rs >0,7) var milli svara við einstökum spumingum og mats iðjuþjálfa. Sú spurning, sem fékk hæstu einkunn bæði við eigið fæmismat (2,1 + 1,2) og mat iðjuþjálfa (1,9 + 1,1) var: »Getur þú ryksugað?«. Þegar litið var á meðaleinkunnir, komu í ljós tengsl við aldur sjúklinga (rs 0,56, p<0,01), sjúkdómstíma (rs 0,49, p<0,01) og handstyrk (rs -0,66, p<0,001). Minni samsvörun var við sársaukakvarða (0,42), »Ritchie’s index« (0,26) og sökk (0,2). Athyglisvert var, hvemig einstakir þættir færnismatsins virtust tengjast einstökum þáttum í lífi sjúklingsins. Þannig virtist aldur hafa tölfræðilega marktæk áhrif á liðina »klæðnað og snyrtingu«, »að fara á fætur«, og »hreinlæti«. Sjúkdómstími virtist hins vegar hafa mest áhrif á »hreinlæti«, »seilingu«, »grip« og »annað«. Handstyrkur tengdist mest því að »borða«, »seilingu« og »gripi«. Tölfræðilega marktækt samband var einnig á milli sökks og athafnarinnar að »fara á fætur«, en sökk hafði annars lítil tengsl við aðra þætti niðurstaðnanna. UMRÆÐA Aðalniðurstöður þessarar rannsóknar eru þær að HAQ fæmismatið er hentugt við mat á fæmi íslenskra iktsýkisjúklinga. Langflestir sjúklingar geta svarað spurningalistanum vandræðalaust, og ber svörum þeirra vel saman við hlutlægt mat iðjuþjálfa. Miklar framfarir hafa orðið á seinustu árum, að því er varðar eigið fæmismat gigtarsjúklinga, en mat af þessu tagi hefur ótvíræða kosti, ekki síst við langtímaeftirlit. Með því að láta sjúklinginn sjálfan svara elnföldum spumingalista er hægt að skrá færni sjúklings óháð mismunandi skoðendum. Færnismatið er einfalt, það tekur um 8-10 mínútur að svara því og það hentar því vel til notkunar á göngudeildum eða móttökustöðum lækna. Niðurstöður fæmismatsins hafa reynst auðvelda yfirsýn læknis, og hefur verið talið, Tafla II. Meöalstig einstakra fœrnisflokka í rannsókninni. Klæönaður, snyrting ................. 1,1 ±1,0 Fara á fætur......................... 0,7 ±0,8 Boröa................................ 1,2 ±1,0 Ganga ............................... 0,7 ±0,8 Hreinlæti ........................... 1,7 ±1,2 Seiling ............................. 1,6 ±1,2 Grip................................. 1,3 ±1,0 Annaö................................ 2,2 ±1,1 Mat iðjuþjálfa Fylgni fœrnismats sjúklinganna sjáifra og hiutlœgs mats iOjuþjálfa á athöfnum HAQ spurningaiistans (n-30). að það hafi áhrif á meðferðarval í allt að 20% tilfella (7). Því má segja, að full ástæða sé fyrir alla lækna, sem stunda iktsýkisjúklinga að nota HAQ- fæmismatið. Auk þess eru greinileg tengsl á milli kostnaðar á hvem sjúkling og niðurstöðu fæmismatsins (8). Skerðing á færni hefur einnig reynst hafa forspárgildi að því er varðar lífslíkur sjúklinga með iktsýki (9). Athyglisvert er að niðurstöður HAQ færnismatsins hafa lítil tengsl við hefðbundið virknismat læknis, sem byggt er á aumum liðum »Ritchie’s index«, kvörtunum um verki (sársaukakvarða) og sökki. Þetta virðist sýna ótvírætt, að fæmismatið hefur sjálfstætt gildi og er góð viðbót við hefðbundið virknismat. Það kemur ekki á óvart, að færni sjúklinga er tengd sjúkdómstíma, en athyglisvert er, að enn skýrara samband er við aldur sjúklinga. Hér ber að hafa í huga háan aldur flestra sjúklinga

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.