Læknablaðið - 15.08.1992, Síða 38
246
LÆKNABLAÐIÐ
Til viðbótar ofannefndum 76 sjúklingum
teljum við 57 sjúklinga hafa rauða úlfa þó
þeir uppfylli einungis tvö og þrjú skilmerki.
Fjölkerfaherslismein: Þrettán sjúklingar (átta
konur og fimm karlar) uppfylltu skilmerki
fyrir fjölkerfaherslismein. Meðalaldur við
greiningu var 49 ár með aldursdreifingu 19-
81 ár (tafla V). Aldursstaðlað nýgengi var 0,7
fyrir konur og 0,4 fyrir karla, með heildartölu
0,55 (tafla VI). Meðalaldur við fyrstu einkenni
var 42,6 ár og meðalgreiningartöf 5,6 ár (tafla
VII) .
í árslok 1984 voru 13 sjúklingar á lífi með
herslismein, (níu konur og fjórir karlar).
Aldursstaðlað algengi var 6,3 fyrir konur
og 3,1 fyrir karla, með heildartölu 4,7 (tafla
VIII) .
Fimm sjúklingar létust meðan á rannsókn stóð
og fram til 1. desember 1988. Meðalaldur við
dauða var 65 ár.
Fjölvöövahólga/h úð-vöövahólga: Sex
sjúklingar (fimm konur og einn karl) uppfylltu
skilmerki fyrir fjölvöðvabólgu (definite or
probable), en enginn fyrir húð-vöðvabólgu.
Meðalaldur við greiningu var 56,7 ár með
aldursdreifingu 24-81 ár (tafla V).
Aldursstaðlað nýgengi var 0,3 fyrir konur og
0,1 fyrir karla, með heildartölu 0,2 (tafla VI).
Meðalaldur við fyrstu einkenni var 56 ár og
meðalgreiningartöf var 0,5 ár (tafla VII).
í árslok 1984 voru þrír sjúklingar á lífi, allt
konur. Aldursstaðlað algengi var 2,8 fyrir
konur og 0,0 fyrir karla, með heildartölu
1,4 (tafla VIII). Fjórir sjúklingar létust á
rannsóknartímabilinu og fram til 1. desember
1988. Meðalaldur við dauða var 77,2 ár.
Blandaðnr bandvefssjúkdómur: Fimm
einstaklingar uppfylltu skilmerki fyrir
blandaðan bandvefssjúkdóm (allt konur).
Meðalaldur við greiningu var 25,6 ár
með aldursdreifingu 12-41 ár (tafla V).
Aldursstaðlað nýgengi var 0,4 fyrir konur og
0,0 fyrir karla, með heildartölu 0,2 (tafla VI).
Meðalaldur við fyrstu einkenni var 23,4 ár og
meðalgreiningartöf 1,75 ár (tafla VII).
I árslok 1984 voru fjórir sjúklinganna á lífi,
allt konur. Aldursstaðlað algengi var 3,6 fyrir
konur og 0,0 fyrir karla, með heildartölu 1,7
(tafla VIII). Einn sjúklingur lést meðan á
Table VIII. Age standarized prevalence* of SLE, SS,
PMIDM and MCTD in Iceland at the end of 1984.
Females Males Total 95% C.I.
SLE
No. of cases ... . 77 9 86
Prevalence .... . 62 7.2 34.6 28.0-42.9
SS
No. of cases ... 9 4 13
Prevalence .... 6.3 3.1 4.7 2.5-8.0
PM/DM
No. of cases ... . 3 0 3
Prevalence .... 2.8 0.0 1.4 0.3-4.1
MCTD
No. of cases ... 4 0 4
Prevalence .... 3.6 0.0 1.7 0.5-4.4
* Cases/100,000 inhabitants.
rannsókninni stóð og fram til 1. desember
1988.
Alls létust 10 sjúklingar með fjölkerfa-
herslismein, fjölvöðvabólgu/húð-vöðvabólgu
og blandaðan bandvefssjúkdóm á
rannsóknartímabilinu og fram til 1. desember
1988. Aætluð dánartala sambærilegs
viðmiðunarúrtaks úr þjóðfélaginu er 2,2.
Áhættuhlutfallið er því 4,5.
UMRÆÐA
Faraldsfræðilegar rannsóknir á rauðum úlfum,
fjölkerfaherslismeini, fjölvöðvabólgu/húð-
vöðvabólgu og blönduðum bandvefssjúkdómi
á heilt þýði (population), þar sem beitt
er ströngum skilmerkjum, hafa ekki
verið framkvæmdar áður. Uppbygging
rannsóknarinnar leyfir okkur að álykta, að
líklega hafi náðst til þjóðarinnar allrar hvað
varðar tíðni þessara sjúkdóma.
Allir þessir sjúkdómar flokkast sjaldgæfir
(algengi <80/100.000) samkvæmt
skilgreiningu »National Commission on
Orphan Diseases« (24).
Nýgengi og algengi rauðra úlfa í erlendum
rannsóknum er talsvert mismunandi (tafla IX)
(1-10). Þannig eru íslenskar tölur innan marka
en þó nokkru lægri en í ýmsum erlendum
athugunum. Líkt og í öðrum löndum eru allir
þessir sjúkdómar mun algengari hér á landi
meðal kvenna en karla.
Fróðlegt er að gera samanburð á niðurstöðum
þessarar rannsóknar og fyrri rannsókn á
rauðum úlfum hér á landi (25). Sú rannsókn
spannaði árin 1966-1975 og takmarkaðist