Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.08.1992, Síða 56

Læknablaðið - 15.08.1992, Síða 56
264 LÆKNABLAÐIÐ sóknarprestinn velkonrinn, þakkaði honum kurteislega fyrir komuna og bauð honum sæti. En sjúkrahúspresturinn hélt þá sína leið og þama lauk samskiptum hans og konunnar. I þessu er auðvitað fólgið mikið tækifæri fyrir báða aðila. Þarna leyfist það, sem báðir eru sammála um. Það getur hjálpað við áfallaaðstæður, að mega gefa til kynna innri sársauka með orðum og atferli sem í öðm samhengi gætu virst óviðeigandi og það án þess að þurfa í framtíðinni að umgangast þann sem man, og þar með að taka ábyrgð á ummælunum og atferlinu um alla framtíð. Mér er skylt samkvæmt vígsluheiti mínu, að gefa ekki til kynna það, sem mér er sagt í trúnaði. Þess vegna geta sumar þær upplýsingar, sem mér eru gefnar, hvergi komið fram annars staðar. Mér er ekki heimilt, að segja stjóm Ríkisspítala frá því, ef starfsmaður stofnunarinnar er með efasemdir um réttmæti eigin viðbragða við áfallaaðstæður og lætur þær í ljósi við mig í sálgæslusamtali. Mér er ekki heldur heimilt, að segja aðstandendum eða starfsfólki frá hinstu játningu dauðvona sjúklings, sem í sálgæslusamtali undirbýr sig undir að mæta dauðanum. Hins vegar get ég hvatt skjólstæðinga mína til að gera upp vandamál í viðeigandi samhengi. ÓHÖPP OG MISTÖK Ég velti því oft fyrir mér, hver sé rétti vettvangurinn til að tala um óhöpp o’g mistök. Nú er sagt einhvers staðar, að það sé mannlegt að gera mistök. En á því er mikill munur, að bregðast við með glæpsamlegu kæruleysi annars vegar eða bregðast við á óheppilegan hátt vegna skorts á þekkingu eða innsæi, skorts á upplýsingum, eða vegna þess að velja þurfti þann skárri tveggja slæmra kosta. Fagleg vinnubrögð við slíkar aðstæður snúast ekki um langa lista yfir lærð viðbrögð, heldur um Itæfni og.teynslu, sjálfsþekkingu og jafnframt fúsan vilja til að setja sig inn í aðstæður skjólstæðinganna. Að mínu viti er mest hætta á slæmri þjónustu og jafnvel óhöppum, þegar menn verða sem trénaðar rófur í uppskrúfaðri og misskildri fagmennsku, sem byggist á því að tala niður til skjólstæðinganna í krafti íntyndaðs valds yfir lífi og dauða. En þessi hætta er líka mikil, þegar eigin vanmáttarkennd hjálparaðilans nær slíkum heljartökum, að ekki verður heil brú í hugsun og/eða viðbrögðum: Ég hef staðið frammi fyrir læknum, sem voru svo yfirþyrmdir af ósigri tækninnar í baráttunni við dauðann, að þá langaði helst til að ganga út og koma aldrei aftur inn á sjúkrahús. Þó voru þeir búnir að reyna allt. Ég hef staðið frammi fyrir hjúkrunarfræðingum og sjúkraliðum, sem reyndu allt til að ntilda áhrif áfalls á fjölskyldu og fengu einungis ásakanir og reiði fjölskyldunnar til baka og hún beindist jafnvel að persónu þeirra. Síðan er þetta spurningin um það, hvemig fólk í heilbrigðisþjónustu talar um hvert annað. Er það til dæmis rétt af lækni, sem er sannfærður um, að starfsbróðir eða -systir hafi gert mistök, sem leiddu til andláts sjúklings, að fara inn til ættingja og láta þessa skoðun í ljósi við þá? Eða er það réttur vettvangur fyrir hjúkrunarfræðing, að segja við ættingja, að ef læknirinn hefði bmgðist öðru vísi við, þá hefði verið hægt að bjarga sjúklingnum? Svarið er auðvitað nei. Þetta em ekki fagleg vinnubrögð. Það eru til aðrar leiðir. MISTÖK OG AÐ BREGÐAST VIÐ DAUÐANUM Svo eru það málin, sem valda okkur verulegu hugarangri, til dæmis þegar heilbrigt nýra er fjarlægt úr sjúklingi, en hið sjúka látið eftir; þegar heilbrigður útlimur er fjarlægður, en hinn sjúki ekki meðhöndlaður; þegar röng sjúkdómsgreining leiðir til rangrar meðferðar og dauða sjúklings, svo nokkuð sé nefnt. En hversu langt á að ganga í útdeilingu refsinga við slíkar aðstæður? Sjálfsagt er, að greiddar séu miskabætur vegna sjúklinga, sem verða fyrir slíkum mistökum, en þá innan einhverra skynsamlegra marka og sjálfsagt er að svipta réttindum þá sem starfa á glæpsamlegan hátt. En mig grunar, að sjaldnast sé svona augljóst að úrskurða um sekt eða sakleysi. Svipuð óvissa getur tengst dauðanum. Fyrir ekki löngu var það svo, að ef hjarta sjúklings stoppaði þá var hann/hún dáin(n). Nú er hægt að lífga slíka sjúklinga við. Við

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.