Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 15.04.1993, Qupperneq 11

Læknablaðið - 15.04.1993, Qupperneq 11
Gynera Nýja getnaðarvarnartaflan frá SCHERING sem vert var að bíða eftir Gynera (Schering, 870100) TÖFLUR; G 03 A A 10 R O Hver tafla inniheldur: Ethinylestradiolum INN 30 míkróg, Gestodenum INN 75 míkróg. Eiginleikar: Hormónablanda til getnaðarvarna með lágum östrógenskammti. Bæði efnin frásogast vel frá meltingarvegi. Þau umbrotna í lifur að hluta til við fyrstu umferð. Aðgengi etinýlöstradíóls er um 45%, en gestodens um 80%. Útskiljast með þvagi og saur. Lyfiö kemur í veg fyrir getnað með því að hindra egglos, hindrar festingu eggs við legslímhúð og breyta eiginleikum slíms í leghálsopi. Ábendingar: Getnaðarvörn. Frábendingar: Þar sem lyfið eykur storknunartilhneigingu blóðs, á ekki að gefa lyfið konum með æðabólgur í fótum, slæma æðahnúta eða sögu um blóðrek. Lifrarsjúkdómar. Öll æxli, ill- eða góðkynja, sem hormón geta haft áhrif á. Sykursýki og háþrýstingur geta versnað. Tíðatruflanir af óþekktri orsök. Grunur um þungun. Aukaverkanir: Vægar: Bólur (acne), húðþurrkur, bjúgur, þyngdaraukning, ógleði, höfuðverkur, migrene, þunglyndi, kynkuldi, sveppasýkingar (candidiasis) í fæðingarvegi, útferð, milliblæðing, smáblæðing, eymsli í brjóstum. Porfyria. Alvarjggai: Æðabólgur og stíflur, segarek (embolia) til lungna, treg blóðrás í bláæðum. Háþrýstingur. Sykursýki. Tíðateppa í pilluhvíld. Varúð: Konum, sem reykja, er miklu hættara við alvarlegum aukaverkunum af notkun getnaðarvarnataflna en öðrum. Milliverkanir: Getnaðarvamatöflur hafa áhrif á virkni ýmissa lyfja, t.d. blóðþynningarlyfja, lyfja gegn sykursýki o.fl. Barbitúrsýrusambönd, lyf gegn flogaveiki og rífampícín geta hins vegar minnkað virkni getnaðarvarnataflna, séu þau gefin samtímis. Einnig hafa getnaðarvamalyf áhrif á ýmsar niðurstöður mælinga í blóði, svo sem hýdrókortisóns, skjaldkirtilshormóns, blóðsykurs o.fl. Skammtastærðir: Meðferð hefst á 1. degi tíðablæðinga, og er þá tekin ein tafla á dag í 21 dag samfleytt á sama tíma sólarhringsins. Síðan er 7 daga hlé áður en næsti skammtur er tekinn á sama hátt og áður. Fyrstu 14 dagana, sem töflumar eru teknar, veita þær ekki örugga getnaðarvöm og þarf því að nota aðra getnaðarvörn þann tíma. Þetta gildir aðeins um fyrsta mánuð meðferðarinnar. Pakkningar: 21 stk. x 1 (þynnupakkað); 21 stk. x 3 (þynnupakkað). Skráning lyfsins er bundin því skilyrði, að leiðarvísir á íslensku fylgi hverri pakkningu með leiðbeiningum um notkun þess og varnaðarorð. SCHERING Stefán Thorarensen Sídumúla 32 108 Reykjavík Sími 91-686044

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.