Læknablaðið - 15.04.1993, Page 14
142
LÆKNABLAÐIÐ
Tafla I. Samanburður á niðurstöðum nokkurra rannsókna á algengi helstu orsakavalda bráðrar eyrnabólgu.
Rannsóknir
Nafn sýkils Friðrika Helgab Karlc Bluestoned
n=43 (%) n=75 (%) n=121 (%) n=3225 (%)
S. pneumoniae................. 18 (42) 34 (45) 22 (18) 1543 (48)
H. influenzae................. 30 (70) 32 (43) 34 (28) 982 (30)
M. catarrhalis................... 3 (7) 6 (8) 11 (9) 140 (4)
S. aureus........................ 2 (5) 3 (4) 31 (26) 93 (3)
S. pyogenes...................... 2 (5) 1 (1,5) 8 (7) 374 (12)
Aðrir......................... 4 (9) 8(11) 15(12) 93 (3)
n = fjöldi sjúklinga/sýna með jákvæðar ræktanir
a) 47 sjúklingar sem hafði verið vísað til hans með bráða miðeyrnabólgu með/án brostna hljóðhimnu,
b) 75 sjúklingar með bráða miðeyrnabólgu á háls-, nef- og eyrnadeild Borgarspítalans,
c) 121 ræktanir frá miðeyra 121 sjúklings, sem sendar voru á sýklafræðideild Landspítalans,
d) samantekt úr rannsóknum frá Bandaríkjunum, Finnlandi og Svíþjóð.
Sjúklingarnir í rannsóknum Friðriks og Helgu voru ekki á sýklalyfjum, en upplýsingar um sýklalyfjagjöf sjúklinganna í athugun Karls, voru
ekki fyrir hendi.
en notkun hennar krefst meiri tíma og
þjálfunar en hefðbundið eymaspeglunartæki
og því ekki gerð krafa til að slíkt tæki sé til
taks á öllum stofum lækna.
- Eyrnamergur útilokar ekki bráðar
eyrnabólgur eins og nefnt hefur verið í eldri
kennslubókum (19).
- Best er að nota víreyrnapinna og/eða
lykkju til hreinsunar á eyrnamerg og því
nauðsynlegt að hafa slík áhöld á læknastofu
og í læknatöskunni við vitjanir.
- Roði í hljóðhimnu getur stafað af hita,
hósta, hnerra eða gráti. Einkenni af þessurn
orsökum geta því leitt til ofgreiningar. Oft
geta liðið einn til tveir mánuðir frá bráðri
miðeyrnabólgu þar til hljóðhimnan fær
eðlilegt útlit á ný. Einnig ber að hafa í huga
að eðlilegur vefrænn útlitsmunur getur verið
á milli hægri og vinstri hljóðhimnu.
- Minnkað endurkast ljóss (ljósreflex) frá
hljóðhimnu virðist vera óáreiðanlegt teikn
um bráða eyrnabólgu, einkum hjá yngstu
börnunum (3).
- Graftarmyndandi eyrnabólga getur byrjað
með gráma á hljóðhimnunni. Gráhvítur litur
án roða á hljóðhimnu getur því bent til þess
að gröftur sé til staðar í miðeyra (3).
- Nefkoksræktanir sýna litla fylgni rnilli
sýklagróðurs þar og orsakavalda bráðrar
eyrnabólgu (20). Rannsókn á gildi
nefkoksræktana hjá börnum sem leituðu til
háls-, nef- og eyrnadeildar Borgarspítalans
með eyrnabólgu sýndi aðeins um 45%
forspárgildi fyrir sýkingu í miðeyra (21).
Nefkoksræktanir geta hins vegar verið
gagnlegar við leit að penisillín ónæmum
pneumókokkum hjá sjúklingum með
síendurteknar sýkingar (sjá síðar).
ORSAKIR
Bakteríur ræktast úr miðeyra 70-90%
sjúklinga með bráða miðeyrnabólgu. Veirur
geta einnig valdið eyrnabólgu. Þær eru
sjaldan taldar vera eini orsakavaldurinn,
en samspil þeirra og baktería gera sýkingu
erfiðari en ella (4,5,16,18,22). Mjög margar
rannsóknir hafa verið gerðar á orsökum
bráðrar miðeymabólgu og eru niðurstöður
þeirra nær sainhljóða, það er að algengasta
orsökin í öllum aldurshópum sé Streptococcus
pneumoniae og sú næst algengasta
Haemophilus influenzae (4,5,23,24). I töflu I
eru teknar saman niðurstöður þriggja íslenskra
rannsókna (15,21,25) og 12 rannsókna frá
Bandaríkjunum, Finnlandi og Svíþjóð frá
árunum 1952-1981 (26). Enda þótt innlendu
rannsóknirnar bendi til þess að H. influenzae
sé algengasta orsök bráðrar miðeyrnabólgu
(sjá töflu I), er rétt að geta þess að þær
koma frá völdum sjúklingum sem leitað
hafa til sérdeilda á Stór-Reykjavíkursvæðinu.
Ætla má að þeir séu oftar með endurteknar
sýkingar. Sýnin sem berast sýklafræðideild
Landspítalans eru mest frá sjúklingum með
sprungna hljóðhimnu eða rör. Þetta skýrir
líklega hvers vegna Staphylococcus aureus
er svo algengur í þeim hópi. Hluti sjúklinga
í rannsókn Friðriks Guðbrandssonar (15)
var með sprungna hljóðhimnu, en orsakir
eyrnabólgu í þeim sjúklingum voru lítið
frábrugðnar þeim sem höfðu heila hljóðhimnu.
Telja má líklegt að í óvöldum sjúklingahópum
hér á landi, eins og þeim sem leita til
heiniilislækna sé dreifing stofna líkari því
sem fram kemur í erlendum rannsóknum.
S. pneumoniae er þá væntanlega algengasta