Læknablaðið - 15.04.1993, Side 17
LÆKNABLAÐIÐ
145
í tvo skammta og hins vegar þrjá skammta,
kom ekki fram neinn munur á árangri (47).
Lengd meðferðar: I fyrrnefndum heimildum
(4,5,11,16) greinir menn á um þann tíma
sem þarf til að ná sem bestum árangri við
meðferð á bráðri miðeyrnabólgu eða allt frá
tveimur dögum til tveggja vikna. I nýlegri
tvíblindri rannsókn á 175 börnum með bráða
miðeymabólgu (48), kom ekki fram neinn
munur á fimm daga og 10 daga meðferð
ef hljóðhimnan var heil. Ef hún var brostin
og gröftur lak út úr hlustinni þurfti lengri
meðferð.
Að framansögðu teljum við æskilegt að miða
að jafnaði við sjö daga meðferð.
Þegar böm veikjast fljótlega aftur eftir
lok meðferðar (recurrent OMA) vaknar sú
spurning hvort um sé að ræða nýja sýkingu
(reinfection) eða endurvakningu fyrri sýkingar
(relapse). Þetta getur haft klíníska þýðingu
vegna ákvörðunar um lengd meðferðar og
hvort nota skuli sama lyf og áður eða breyta
til. Enda þótt margir telji að í flestum tilvikum
sé um nýja sýkingu að ræða (49) taka Giebink
og félagar fram í nýlegri samantekt, að fyrri
rannsóknir geti ekki skorið úr um þetta atriði
(11).
Sé tekið mið af þekktustu heimildum á þessu
sviði erlendis (4,5,11,16,48) ásamt reynslu
og rannsóknum hérlendis (15,21,25) verður
niðurstaða okkar um lyfjaval, skammta og
nteðferðarlengd eftirfarandi:
- Mælt er með amoxýsillíni eða
pívampisillíni/bacampisillíni sem fyrsta lyfi.
Skammtur á sólarhring er 50 mg/kg/dag,
sem dreift er í tvo eða þrjá skammta á dag.
- Ef sjúklingur er með ofnæmi fyrir
penisillíni eða skyldum lyfjum, ráðleggjum
við trímetóprím/súlfametoxasól. Skammtur á
sólarhring: 40 mg súlfa/kg/dag. Þessu magni
er skipt í tvo skammta á dag.
- Ef tilætlaður árangur næst ekki með
ofannefndum lyfjum (og sjúklingur
hefur ekki penisillín ofnæmi) skal gefa
amoxýsillín+klavúlansýru (Augmentin®).
Skammtur á sólarhring: 50 mg/kg/dag, skipt
í tvo eða þrjá skammta á dag.
- Hafi verið reyndir tveir til þrír lyfjakúrar
án árangurs og sé sjúklingur enn með
graftarkennda eyrnabólgu, þarf að taka
í ræktun frá miðeyra til að sjá hvort
viðkomandi sé sýktur af ónæmum
bakteríustofnum (til dæmis penisillín
ónæmum pneumókokkum).
- Fjórða lyfið sem kemur til greina er
kefúroxím axetil (Zinnat®) 25mg/ml.
Skammtur 25 mg/kg/dag, skipt í tvo
skammta á dag í lok máltíðar. ’)
- Ef læknar hafa haft góða reynslu af
penisillíni sem fyrsta lyfi, til dæmis á
vissum landsvæðum í dreifbýli, teljum við
eðlilegt að þeir reyni það lyf áfram.
II. Nefdropar og/eða andhistamín mixtúrur:
Auk sýklalyfja nota margir bjúgeyðandi
(decongestant) nefdropa við eymabólgu.
Tilgangurinn er tvenns konar. Annars
vegar að opna loftvegi um nasir þannig að
sjúklingurinn eigi auðveldara með að anda
og líði þar af leiðandi betur. Hins vegar að
opna nefkokshlustina með því að eyða þrota
í slímhúðinni. Nýlegar rannsóknir hafa sýnt
fram á að síðari tilgangnum verður ekki náð
við þann lífeðlisfræðilega þrýsting sem er í
miðeyranu í bráðri miðeymabólgu (50,51).
Rannsóknir hafa ekki sýnt fram á ótvíræða
gagnsemi nefdropa (5,50,52) og því er ekki
mælt með þeim sem einhliða meðferð við
eyrnabólgu. Hins vegar er hægt að nota
nefdropa til að friðþægja kvefuðu baminu hafi
það nefstíflu eða ef um ofnæmi er að ræða,
sem stuðlar að stíflu í kokhlust (53).
Andhistamín mixtúrur hafa verið mikið
notaðar við eymabólgum, enda þótt
fjölmargar rannsóknir hafi ekki getað sýnt
fram á gagnsemi þeirra við að minnka
sjúkdómseinkenni eða að koma í veg fyrir
fylgikvilla (52,54). í sumum tilfellum er
þó talið að lokun nefkokshlustarinnar geti
orsakast af ofnæmi í nefgöngum (rhinitis
allergica) og í þeim tilfellum er rétt að
beita meðferð við ofnæminu til dæmis með
andhistamínum (53).
III. Verkjastillandi meðferð: Væg verkjalyf
svo sem paracetamól geta komið að gagni við
verkjum vegna eyrnabólgu. Einnig er hægt
að nota verkjastillandi eyrnadropa. I einstaka
tilvikum svo sem við sprungna hljóðhimnu,
eru notaðir dropar með bakteríueyðandi og
bólgueyðandi áhrifum. Notkun útvortis blöndu
') Verkunarsvið kefúroxíms og amoxýsillins+klavúlansýru er
nokkuð svipað með tilliti til verkunar á bakteríur sem valda
eyrnabólgu. Kefúroxím mixtúran er hins vegar mun dýrari
eins og sakir standa.