Læknablaðið - 15.04.1993, Blaðsíða 18
146
LÆKNABLAÐIÐ
verkjastillandi lyfja og sýklalyfja getur aukið
hættu á myndun ónæmra sýkla og er því
ráðlagt að nota þær aðeins í völdum tilvikum
og í fáeina daga í senn.
EFTIRLIT
Þremur vikum eftir upphaf meðferðar eru
einungis 50-70% sjúklinga orðnir frískir (5).
Jafnvel eftir tvo rnánuði eru ennþá 10-20%
sjúklinga með eyrnaslím eða hellu (5,55). A
meðan þetta ástand varir er heyrn skert.
Mikilvægt er að finna snemma þá sjúklinga,
sem ekki batnar eftir meðferð, og fylgjast
með þeim, þar sem langvarandi eyrnaslím
og hella geta leitt til þrálátra varanlegra
breytinga (krónískrar eyrnabólgu), auk þess
sem langvarandi heyrnardeyfa hjá yngri
börnum tefur málþroska. Þessi seinkun á
málþroska jafnar sig þegar til lengri tíma er
litið. Um fjórum vikum eftir upphaf sjúkdóms
er vökvi eða eyrnaslím horfið hjá flestum og
hljóðhimnan hefur þá fengið eðlilega lögun
og lit. Eftirlit á þessum tíma er því heppilegt.
Oft vill hins vegar bregða við að fólk hirði
ekki uin að koma í eftirlit svo löngu eftir
veikindin. Læknar verða því að meta í hverju
tilviki fyrir sig hvort þeir telji heppilegra að fá
sjúklinginn fyrr, til dæmis tveimur vikum frá
upphafi meðferðar.
Við eftirlitið er rétt að meta útlit og
hreyfanleika hljóðhimnu með eyrnaspegli og
loftblæstri. Hljóðholsmæling eykur öryggi
klínísks mats. Heyrnarmælingu er erfitt að
koma við, meðal annars vegna þess að stór
hluti sjúklinga er yngri en fjögurra ára. Einnig
hefur verið sýnt fram á að margir sjúklingar
með hellu og/eða eyrnaslím geta haft eðlilega
heyrnarmælingu (55). Nauðsynlegt er að vísa
barninu í frekari rannsóknir ef vökvi er enn
fyrir hendi í miðeyra eftir þrjá mánuði eða
málþroski bamsins seinkaður (16).
SÍENDURTEKNAR BRÁÐAR
EYRNABÓLGUR
Ef um síendurtekin köst er að ræða þarf
að endurmeta ástand sjúklingsins. Athuga
hvort hann hafi ofnæmi eða skútabólgu (með
röntgenmynd), skoða vel munnhol með tilliti
til skarðs í gómi eða æxlis í nefkoki. Ef ekkert
af þessu er fyrir hendi má íhuga ástungu,
röraísetningu og nefkirtlatöku.
1. Astungur: Mælt er með ástungu
(tympanocenthesis) ef hljóðhimna stendur á
blístri og að því komin að springa, ef mikill
verkur fylgir eyrnabólgunni, eða ef þörf er á
ræktun úr miðeyra (3).
Áður en gripið er til röraísetningar, er oft
reynd fráveita á miðeyravessa með skurði á
hljóðhimnuna (myringotomy). Þessi aðgerð er
að jafnaði gerð í staðdeyfingu eða svæfingu.
II. Nefkirtlataka og rör: Flestar rannsóknir
sýna að röraísetning fækkar endurteknum
eyrnabólgum (56,57). Árangurinn virðist betri
ef nefkirtlar eru teknir samtímis (56,58). Það
er því sjaldnast framkvæmd nefkirtlataka ein
og sér nema barnið sé alltaf með grænan hor
og einkenni um þrengsli í nefkoki. Helstu
ábendingar fyrir ísetningu röra í hljóðhimnur
eru (3,4,16):
- Ef vökvasöfnun er viðvarandi í miðeyra
lengur en þremur mánuðum eftir bráða
eyrnabólgu og reyndur hefur verið að
minnsta kosti einn sýklalyfjakúr án þess
að þessi vökvi hverfi.
- Síendurteknar miðeymabólgur.
- Viðvarandi truflun á jafnvægi, svo sem
svimi og óregluhreyfing (ataxia).
Auk þess hefur verið bent á að leggja beri
meiri áherslu á að meta seinkun á málþroska
en fjölda bráðra eyrnabólgusýkinga eða
tímalengd vökva í miðeyra, þegar meta
skal ábendingar fyrir röraísetningu (16).
Undirþrýstingur einn og sér gefur að jafnaði
ekki tilefni til röraísetninga.
Kostir: Þrýstingur utan og innan hljóðhimnu
jafnast og slímhúð miðeyrans verður
aftur eðlileg. Heym og hellur fyrir eyrum'
lagast strax og í mörgum tilvikum skánar
líðan barnanna og hegðunarmynstur þeirra
batnar. Rör geta einnig lagað samfall á
hljóðhimnu, sem stundum stafar af miklum
neikvæðum þrýstingi í miðeyra. Líklegt er að
eyrnabólguköstum fækki á meðan rörin sitja
á sínum stað og haldast opin (50). Sé litið
til lengri tíma hefur ekki verið hægt að sýna
fram á að heym bama sem fóm í röraaðgerð
sé betri eða verri en þeirra bama sem ekki
fengu rör (57).
Gallar: Talið er að rör stíflist hjá um 10%
bama og ýtist út fyrr en ætlað var hjá öðmm
10%. Hjá 10-30% vessar mikið úr eyrunum.
Ekki er vitað um langtímafylgikvilla hér á
landi, en erlendis hefur verið lýst hersli í