Læknablaðið - 15.04.1993, Síða 19
LÆKNABLAÐIÐ
147
hljóðhimnu (tympanosclerosis) og afmarkaðri
þynningu hennar hjá 10-40% barna (59).
Börn með rör mega fara í sund, en ekki kafa.
Þeim er ráðlagt að varast ertandi hárþvottalög.
III. Forvarnarlyf: Sýnt hefur verið fram á
gagnsemi forvarnarsýklalyfja hjá börnum
sem eiga það á hættu að fá endurteknar
eymabólgur til dæmis frá hausti og fram á
vor (50,60,61). Sumir hafa því mælt með
forvarnarsýklalyfjum hjá þeim sem tilheyra
ákveðnum áhættuhópum (4,5,50), en það eru
einkum börn undir tveggja ára aldri, sem eru í
dagvist og hafa fengið meira en þrjár sýkingar
á sex mánuðum.
Ekki er víst að forvarnarsýklalyf séu æskileg
þegar til lengri tíma er litið og koma því
skurðaðgerðir til greina (sjá hér að framan)
sem valkostur við endurteknar sýkingar.
Tíðni penisillín ónæmra pneumókokka
er orðin há hér á landi og fer hækkandi
(30,31,62). Jafnframt virðist sýklalyfjagjöf
auka líkurnar á því að ónæmir bakteríustofnar
taki sér bólfestu í þeim einstaklingum
(62). Vegna þessa ber að gæta íhaldsemi í
forvarnarsýklalyfjum, nema hjá allra erfiðustu
sjúklingunum. Fylgjast þarf vel með þeim
sjúklingum, og fái þeir eymabólgu á meðferð
má reyna meðhöndlun með öðru lyfi, en gangi
það ekki þarf að taka ræktun frá miðeyra með
ástungu.
Penisillín ónœmir pneumókokkar: Hafi verið
reyndir tveir til þrír lyfjakúrar án árangurs
og sjúklingurinn er enn með graftarkennda
eyrnabólgu, er líklegt að um ónæma sýkla sé
að ræða. Hafi hljóðhimnan brostið er réttast
að taka strok frá greftri úr miðeyra í ræktun,
án þess að snerta eymamerg og eyrnagang ef
hægt er. Sé hljóðhimnan heil er æskilegast
að taka sýni frá miðeyra með ástungu og
senda í ræktun, sé þess kostur. Ef ekki em
tök á því að gera ástungu er rétt að taka
nefkoksræktun til að athuga, áður en þriðji
lyfjakúrinn er reyndur, hvort viðkomandi
ber penisillín ónæma pneumókokka. Ef
sú meðferð ber ekki árangur skal vísa
sjúklingnum til sérfræðings sem getur gert
ástungu á eyra. Þótt nefkoksstrok hafi lítið
spádómsgildi um orsakir miðeymabólgu
samanber hér að framan, þá segir það okkur
hvaða bakteríur eru í nefkoksflórunni.
Finnist penisillín ónæmir pneumókokkar í
nefkoki sjúklinga með eymabólgu, sem ekki
svarar meðferð, eru að sjálfsögðu auknar
líkur á sýkingu í miðeyra af völdum þeirra.
Því miður eru 70-80% penisillín ónæmra
pneumókokka á Islandi fjölónæmir, það er
ónæmir fyrir öllum sýklalyfjum sem taka má
um munn (penisillíni, amoxýsillíni með og
án klavúlansýru, kefúroxími, erýþrómýsíni,
tetrasýklíni, klóramfeníkóli, súlfa, trímetóprími
og klindamýsíni), nema rífampísíni og nýjum
kínólónafbrigðum. Kínólónafbrigðin má ekki
gefa börnum og rífampisín má ekki gefa eitt
sér vegna hættu á ónæmismyndun sýklanna.
Þessi börn hefur því þurft að meðhöndla með
stungulyfjum (venjulega með keftríaxóni,
kefótaxími eða ímípenemi) (63).
FYRIRBYGGJANDI AÐGERÐIR
Reykingar á heimilum barna hafa verið taldar
auka hættu á því að böm fái eyrnabólgur (64)
og við teljum því fulla ástæðu til að benda
foreldrum á hættuna af óbeinum reykingum.
Bólusetningar: Þau bóluefni sem nú eru
fáanleg gegn pneumókokkum eru ekki virk
innan tveggja ára aldurs og eru ekki talin hafa
nógu góð fyrirbyggjandi áhrif eftir þennan
aldur (65,66).
H. influenzae b (Hib) bóluefnið hefur
eingöngu áhrif á Haemophilus stofna með
hjúpgerð b, en ekki á þá stofna sem oftast
valda eyrnabólgu. Þetta bóluefni veitir því
mjög litla vörn gegn eyrnabólgu.
Þrýstingsbreytingar: Kokhlust hjá ungbörnum
er mun styttri, víðari, slakari og hallar minna
niður á við, en hjá stálpaðri börnum. Af
þessum ástæðum er varað við því að gefa
pela útafliggjandi vegna hættu á bakflæði
sýkla úr nefkoki upp í miðeyrað í gegnum
kokhlustina. Af sömu ástæðu er ráðlagt að
hækka höfðalagið hjá kvefuðum smábömum.
LOKAORÐ
Mynd 2 sýnir í samantekt meðferð á bráðri
miðeymabólgu miðað við það sem sagt hefur
verið hér að framan.
Þegar tekin er ákvörðun um að meðhöndla
bráða miðeymabólgu, standa læknar oft
frammi fyrir þeim vanda að meta hvað
sé best fyrir sjúklinginn annars vegar og
þjóðfélagið í heild sinni hins vegar. Oft fara
þessir þættir saman, en ef til vill ekki alltaf.
Ofannefnd samantekt gefur því tilefni til að
hugleiða hvert við stefnum í framtíðinni. Núna