Læknablaðið - 15.04.1993, Blaðsíða 20
148
LÆKNABLAÐIÐ
Mynd 2. Flœðirit með ábendingum um meðferð og eftirlit
á bráðri miðeyrnabólgu.
virðist sem mestur árangur náist með því að
nota amoxýsillín sem fyrsta lyf við bráðri
eymabólgu, en tíðni ónæmra sýkla gegn
þessum lyfjaflokki fer vaxandi og getur þurft
að huga að öðrum lyfjum á næstunni. Það er
því fróðlegt að fylgjast með rannsóknum og
viðhorfum hollenskra lækna á meðferð við
eyrnabólgu, en þeir telja í flestum tilvikum
óþarft að gefa börnum eldri en tveggja ára
sýklalyf við eyrnabólgu. Ljóst er að taka
verður kostnað við lyfjakaup, fylgikvilla
sjúkdómsins og fylgifiska meðhöndlunar, þar
á meðal vaxandi ónæmi, með í reikninginn
þegar verið er að skoða þessi mál.
Mikið er skrifað um eyrnabólgur í
fagtímaritum. Meiri hluti þessa efnis em
samantektir valinkunnra fræðimanna. Oft
er þá erfitt að sjá hvað þeir byggja mikið
af vinnu sinni á grunnrannsóknum annars
vegar eða reynslu og þekkingu hins vegar.
Við viljum leggja áherslu á að það sem hér
hefur verið sagt er fyrst og fremst túlkun
okkar á aðgengilegum rannsóknum og reynslu
lækna hér á landi. Það verður síðan að vera á
valdi hvers læknis fyrir sig að ákveða hvort
hann tekur tillit til þessara ábendinga eða
ekki. Læknar verða að hafa læknislistina í
heiðri á þessu sviði sem öðrum, þar sem
ákvarðanataka þeirra byggist á niðurstöðum
rannsókna, reynslu, þekkingu og skynsamlegu
mati á hverju sjúkdómstilfelli fyrir sig.
Að lokum viljum við ítreka að það þarf að
efla íslenskar rannsóknir á miðeyrnabólgu í
framtíðinni. Þær munu eflaust leiða til betri
meðferðar fyrir sjúklingana og verða til
hagsbóta fyrir þjóðfélagið.
HEIMILDIR
1. Pétursson P. Heilsugæsla í Bolungarvík. Afrakstur
samskiptaskráningar 1983-1986. Heilbrigðisskýrslur.
Fylgirit 1988 nr. 5. Reykjavík: Landlæknisembættið,
1988.
2. Bjamason S, Friðriksson I, Benediktsson J. Tíðni
bráðrar miðeymabólgu hjá bömum á svæði
heilsugæslustöðvarinnar Borgamesi. Læknablaðið
1991; 77: 137-40.
3. Paradise JL. Otitis media in infants and children.
Review article. Pediatrics 1980; 65: 917- 43.
4. Bluestone CD. Modem management of otitis media.
Pediatr Clin North Am 1989; 36: 1371-86.
5. Puhakka HJ. Akut otit - ett problem för bamet,
familjen och sjukvárden. Nord Med 1991; 106: 293-6,
6. Arola M, Ruuskanen O, Ziegler T, et al. Clinical role
of respiratory vims infection in acute otitis media.
Pediatrics 1990; 86: 848-55.
7. Wald ER, Guerra N, Byers C. Upper respiratory
tract infections in young children: duration of and
frequency of complications. Pediatrics 1991; 87: 129-
33.
8. Howie VM. Natural history of otitis media. Ann Oto
Rhinol Laryngol 1975; 84/Suppl.l9: 67-72.
9. Stefánsson Ó. Eymabólgur á Egilsstöðum 1990.
(Handrit 1991).
10. Oddsson A, Jónsson H, Magnússon G, Sigurðsson
JA. Avísanir á lyf. Könnun á ávísanavenjum
heimilislækna á sýklalyf á Suðumesjum og í
Hafnarfirði 1.-15. apríl 1986. Læknablaðið 1989; 75:
91-4.
11. Giebink GS, Canafax DM, Kempthome J.
Antimicrobial treatment of acute otitis media. J
Pediatr 1991; 119: 495-500.
12. Socialstyrelsens lákemedelsavdelning. Farmakoterapi
vid infektioner inom ÖNH-omrádet. Information frán
Socialstyrelsens lákemedelsavdelning 1984; 7: 1-4.
13. Lous J. Ondt i pret. In: Márdh PA. Borchgrevink
C, Gorbatow C, Hovelius B, Mabeck CE, Schwan
A, Sigurdsson JA. eds. Infektioner i primárvárd.
Stockholm: Almqvist & Wiksell Förlag, 1986: 61-9.
14. Froom J, Culpepper L, Grob P, et al. Diagnosis and
antibiotic treatment of acute otitis media: report from
Intemational Primary Care Network. Br Med J 1990;
300: 582-6.