Læknablaðið - 15.04.1993, Side 30
158
LÆKNABLAÐIÐ
AÐFERÐIR OG EFNIVIÐUR
Röntgenmyndir 70 barna, 36 drengja og 34
telpna, voru metnar í framskyggnri skoðun
(mynd 1). Þeim var vísað til röntgenskoðunar
á tímabilinu frá janúar 1990 til októberloka
1991. Öll börnin voru undir sex ára aldri
og höfðu klínísk einkenni um skútabólgu.
Algengustu einkenni voru hósti, hiti og
horrennsli.
Þegar því varð við komið voru teknar þrjár
myndir undir mismunandi hornum: bein mynd
framanfrá (Caldwells-stefna), mynd framanfrá
með upplyft andlit (Waters-stefna) (mynd 2)
og bein hliðarmynd. Fyrstnefnda geislastefnan
hentar einkum til mats á sáldbeinsholum,
önnur metur einkum ástand kinnkjálkahola,
en hliðarmyndinni er ætlað að gefa upplýsingu
um fleygbeinsholu (þegar hún er fyrir hendi).
Fyrsta skoðun og umsögn um myndirnar
var gerð af ýmsum sérfræðingum
röntgendeildarinnar, en einn höfunda (RK)
yfirfór því næst skoðanirnar. Afbrigði frá
eðlilegu loftfylltu útliti kinnkjálkaholanna
eru: Þétting (=algjört loftleysi), þykknun
veggstæðrar slímhúðar og vökvaborð.
niðurstöðu röntgenrannsókna og klínísks
ástands var könnuð með T-prófi
I báðum prófum voru mörk marktækni miðuð
við p<0,05.
NIÐURSTÖÐUR
í töflu I er gerð grein fyrir því hvaða
myndatökustefnur (projectiones) voru notaðar,
annars vegar í fyrstu, hins vegar í síðari
skoðun.
Upplýsingar af röntgenmyndunum voru
flokkaðar eftir hinum ýmsu afholum. Sextíu
börn (86%) höfðu röntgeneinkenni um
sjúkdóm í kinnkjálkaholum. Níu börn
höfðu alskyggða holu annars vegar en
slímhúðarbólgur hins vegar (tafla II).
Tuttugu og þrjú börn voru með skyggðar
sáldbeinsholur og góða fylgni milli þéttinga
í sáldbeins- og kinnkjálkaholum. Fívergi
sáust loftmyndaðar ennis- eða fleygbeinsholur
(tafla III). Hvergi var hægt að sýna fram á
vökvaborð.
Varðandi hin holrúmin var aðeins metið hvort
um loftfyllingu væri að ræða eða ekki.
Kæmi í ljós að sjúklingur væri með
afbrigðilegar breytingar í kjálkabeinsholum
voru ráðstafanir gerðar til þess að barnið
kæmi í eftirlitsrannsókn að lokinni meðferð.
Slíkar eftirlitsrannsóknir náðust hjá 34
börnum, frá þremur vikum til tveggja mánaða
eftir fyrstu rannsókn.
Við tölfræðilegan samanburð á aðferðum
var notaður paraður kí-kvaðrat samanburður
(paired chi-square test), en fylgni milli
Number of children
■ Boys Age group
n Girls
Fig. 1 . Number of children in each age group.
Caldwell's projection: Waters' projection:
* 20
O
O
C.R. Central X-Ray
* 37-40
Fig. 2. Head positions in
Caldwell's and Waters’projections.