Læknablaðið - 15.04.1993, Page 32
160
LÆKNABLAÐIÐ
sem tannverkir og höfuðverkur, virðast síður
koma fyrir hjá börnum (5).
Sýnt hefur verið fram á, að mat á klínískum
einkennum ásamt röntgenmyndum með
sjúklegum breytingum, segir fyrir um
skútabólgu hjá 88% barna á aldrinum tveggja
til sex ára, og að afbrigðilegar röntgenmyndir
af afholum nefs sögðu í 70% tilfella fyrir um
marktæka sýkingu hjá börnum þar sem ekki lá
fyrir klínískur grunur um bólgu (6).
Niðurstöður þessarar athugunar sýna, að full
not eru af röntgenskoðun á afholum nefsins
hjá börnum undir sex ára aldri við mat á
skútabólgu, þar sem klínísk skoðun bendir til
hennar. Eins og aðrir greinahöfundar hafa sýnt
fram á (7,8) voru bólgubreytingar algengastar
í kinnkjálkaholum.
Sjúklegar breytingar í afholum komu
gleggst í ljós þegar myndir voru teknar
með upplyft andlit (Waters-stefna) og sýnist
það töífræðilega staðfest. í þessum hópi
greindist sýking í kinnkjálkaholum 14 sinnum
á myndum með Waters-stefnu en aðeins
tvisvar á myndum með Caldwell-stefnu. I
þessu viðfangi er því greinilega marktækt
meira upplýsingagildi og næmi á Waters-
myndum hvað varðar kinnkjálkaholur,
p<0,01 (paraður kí-kvaðrat samanburður).
Breytingar í sáldbeinsholum komu ekki
ótvírætt í ljós hjá fimm sjúklingum á þeirri
mynd. Nauðsynlegt er að beita mjög mikilli
nákvæmni við ákvörðun geislastefnunnar
(mynd 2). Sjáist ekki móta fyrir kinnkjálka-
og/eða sáldbeinsholum eru mestar líkur til að
þær séu sýktar. Engin viðbótarvitneskja fékkst
af hliðarmyndinni í þessari rannsókn. Litlu
máli virtist skipta, hvort myndir væru teknar
af litlum börnum sitjandi eða liggjandi. Nánast
ógerlegt er að taka myndir af þessu tagi af
börnum yngri en fimm ára og láta þau vera
sitjandi.
Allmargar rannsóknir hafa verið birtar þar
sem reynt er að meta gildi ómskoðana
(ultrasound), einkanlega varðandi
kinnkjálkaholur. Kostir ómskoðana umfram
röntgenskoðunina eru auðvitað að þar er
ekki um jónandi geisla að ræða, en mjög lítil
reynsla er fengin af gildi aðferðarinnar þegar
lítil börn eiga í hlut (4).
Því ber að bæta við, að þessi athugun
staðfestir gildi röntgenmyndunar við mat á
árangri meðferðar: Það er marktæk fylgni
milli klínísks ástands eftir meðferð og
upplýsinga röntgenskoðunarinnar. Af því má
leiða, að eftirrannsókn sé ekki nauðsynleg,
hafi sjúklingur engin klínísk einkenni um
skútabólgu. í öllum eftirrannsóknum sýnist
okkur nægilegt að taka aðeins eina mynd, það
er með Waters-stefnu.
SUMMARY
Utility of radiographs in children with clinical
infections of the paranasal sinuses.
Abnormal radiographs of the paranasal sinuses
are thought to be unreliable indicators of acute
sinus infection in children. Asymmetry of sinus
development, overlying soft-tissue swelling, or both
can produce difference in the apparent aeration of
the paranasal sinuses.
A prospective clinical-radiographic study was
undertaken to assess the utility of the various
views, taken at a radiographic examination of small
children, clinically suspected of paranasal sinus
infection. The purpose was to find out if any of
the three conventional views; Waters’, Caldwell
and straight lateral could be omitted without
compromising the diagnostic information.
Primarily, 70 children under six years of age
were examined. To evaluate the response to
therapy, 34 children were referred for follow-
up examination. The radiographic findings were
analysed in correlation with their clinical status
after treatment.
Fifty-nine of the children (86%) had radiographic
evidence of pathology in the paranasal sinuses.
The maxillary sinuses were always involved in the
sinus pathology. The Waters’ view was found to
be the most valuable to identify the presence of
sinus disease. The radiographic findings found in
the follow-up corresponded to the clinical status in
91%.
Conclusion:
1. In this age group Roentgen examination of
the paranasal sinuses is a reliable and valuable
adjuvant to the clinical diagnosis.
2. In the majority of these cases only one
radiographic projection (Waters’) was needed
to give the diagnosis.
ÞAKKIR
Höfundar þakka Laufeyju Tryggvadóttur,
faraldsfræðingi hjá Krabbameinsfélagi íslands,
reikningslega aðstoð.