Læknablaðið - 15.04.1993, Síða 39
LÆKNABLAÐIÐ
167
m.m. hafði deildin augastað á cand. ined.
Stefáni Jónssyni í Kaupmannahöfn, sem
álitlegum manni í þessa stöðu. Alþingi
felldi tillöguna en veitti á síðustu stundu
fé til kennslu í þessum greinum síðara ár
fjárhagstímabilsins. Þessi maður hefur síðan
lialdið áfram að fullkomna sig í þessum
greinum, og deildin hefur enn hið sama
góða álit á honum og vœntir að honum
verði veitt féð til kennslunnar þegar þar
að kemur. En deildin lítur einnig svo á að
bráðnauðsynlegt sé að þessi maðurfái, er
hann tekur til staifa, rannsóknarstofu og
áhöld til líkskoðunar og telur ógerlegt að
bíða þess að Alþingi veiti fé til þess. Sé þetta
ekki útvegað telur hún ekki hálft gagn að
starfi hans, sem auk þessa mundi fólgið i ýmis
konar rannsóknum fyrir aðra lcekna. Deildin
sneri sér því í sumar til Stefáns Jónssonar,
í því skyni að hann útvegaði áœtlun yfir
hvað nauðsynlegustu áhöld í þessu skyni
mundu kosta. Þessa áœtlun hefur hann nú
útvegað og sent deildinni, og lcetur hann
þess jafnframt getið að nauðsynlegt sé, eins
og nú stendur á, að panta þessi áhöld fiest
töluverðum tíma áður en þurfi að nota þau
og ennfremur að ýms þeirra muni þuifa að fá
frá Þýskalandi, enda sum sem unnt vœri að
fá gerð í Danmörku töluvert dýrari þar en í
Þýskalandi.
Samkvæmt þessum upplýsingum hefur
lœknadeildin á fundi í dag samþykkt að skora
á landstjórnina að gefa hinum tilvonandi
kennara í pathologi, Stefáni lœkni Jónssyni
í Kaupmannahöfn, heimild til að panta fyrir
háskólann nauðsynleg tœki til rannsóknarstofu
og líkskoðunar handa þessum kennara fyrir
allt að 3000 krónur og að veita þessa upphœð
upp á vœntanlegt samþykki Alþingis, auk
flutningskostnaðar og annars kostnaðar við
að leigja og setja upp rannsóknarstofuna.
Um leið og ég leyfi mér að bera þessa
fundarsamþykkt fram fyrir hið háa
stjórnarráð, skal ég geta þess að deildin
hefur ekki séð sérfœrt að ákveða kostnaðinn
nákvæmar en hér er gert, vegna þess hvað
óvíst er hvort það muni takast að út\>ega
áhöldin þar sem þau eru ódýrust, enda
þótt deildin treysti stjórnaráðinu til þess að
gera allt er í þess valdi stendur til þess að
útvega undanþágur frá innflutningsbanni á
þýskum vörum. Hins vegar fulltreystir deildin
Stefáni lœkni Jónssyni til að verja upphæðinni
Stefán Jónsson dósent í meinafrœði við Háskóla Islands
1917-1923.
samviskusamlega til svo ódýrra og lientugra
kaupa sem honum er unnt.
Virðingarfyllst, G. Magnússon, deildaiforseti.«
En fleiri létu sig þetta mál varða. Þannig
ritaði Matthías Einarsson læknir eftirfarandi
athugasemd í Læknablaðið í ágúst 1915 (20)
»Dócentsembætti í almennri sjúkdómafrœði,
líjfærameinafrœði (anatomia pathologica),
blóðvatnsfræði (serologia) og sóttkveikjufrœði
(bacteriologia), fór læknadeild háskólans fram
á við alþingi, að stofnað yrði í sumar, þó
þannig, að embættislaun yrðu ekki greidd fyrr
en í ársbyrjun 1917.
I bréfi lœknadeildar er bent á, hve óhæfilega
mörgum kennslugreinum sé lirúgað á
prófessorana í lœknadeildinni og sé
bráðnauðsynlegt að kippa því í lag hið allra
fyrsta. Ennfremur segir í bréfinu »1 reglugerð
háskólans, 29. gr., er mælt svo fyrir, að þegar
því verði við komið, skuli viðhafa verklegar
œfingar i sóttkveikjufræði, og eftir föngum
fara yfir helztu atriði Uffœrameinafrœði.
Deildin sér ekki að það sé gerlegt, að fresta
því lengur að gera ráðstafanir til þess að
þetta geti komist í framkvœmd. Hvergi í
lœknisfræðinni hafa framfarir orðið svo
stórkostlegar á síðustu árum, sem í þessum