Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.04.1994, Blaðsíða 19

Læknablaðið - 15.04.1994, Blaðsíða 19
LÆKNABLAÐIÐ 1994; 80: 141-149 141 Þröstur Laxdal 2,8- DÍHÝDROXÝADENÍNÚRÍA ÁGRIP 2,8-díhýdroxýadenínúría (DHA) er talin fremur sjaldgæf orsök þvagfærakristalla/steina. Á sfðasta áratug hafa fundist 12 einstaklingar með þennan arfgenga efnaskiptagalla á Islandi. Algengi sjúkdómsins hér á landi virðist því töluvert hærra en vitað er um annars staðar eða kringum 1:22.000. íslensku sjúklingarnir voru á aldrinum sex mánaða til 46 ára þar af helmingur á barnsaldri við greiningu. Ekkert bamanna hafði með vissu fengið steinaköst fyrir greiningu öfugt við flestalla hinna fullorðnu. Þrjú barnanna uppgötvuðust fyrir tilviljun í sambandi við venjulega smásjárskoðun á þvagi. Frumgreining allra 12 sjúklinganna var raunar gerð fyrir tilstuðlan einkennandi brúnleitra hnattkristalla sem sáust við smásæja þvagskoðun. Greining var síðan staðfest með útfjólublárri og innrauðri litrófsmælingu (spectrophotometry) á þvagkristöllum og endanlega staðfest með hvatamælingum í rauðum blóðkornum sjúklinganna. Rauðbrúnt botnfall við þvagskiljun svo og brúnleitir blettir í bleyjum barna reyndust viðbótarábending um 2,8- díhýdroxýadenínkristalla, jafnvel áður en þvagfæraeinkenni höfðu gert vart við sig. Níu af 12 sjúklingum reyndust rauðhærðir og allir áttu nána, rauðhærða ættingja. Þýðing þessa er óljós. Samsvarandi mislestursbreyting (missense mutation) í APRT geni allra íslensku sjúklinganna bendir á sameiginlega forforeldra. Hægt var að rekja ættir fimm sjúklinganna til sameiginlegra forfeðra 200 ár aftur í tímann og aðrir þrír reyndust skyldir í þriðja og fjórða lið. Allir sjúklingarnir voru settir á fyrirbyggjandi lyfjameðferð. Ekki er vitað um frekari nýrnasteinamyndanir hjá þeim sem fylgt hafa fyrirmælum um meðferð. Frá barnadeild Landakotsspítala. Fyrirspurnir, bréfaskipti: Þröstur Laxdal, barnadeild Landakotsspítala, 101 Reykjavík. INNGANGUR Steinar í þvagfærum bama teljast fátíðir í hinum vestræna heimi. Aðeins 10-20% þvagfærasteina í evrópskum börnum myndast vegna efnaskiptatruflana og eru þar efst á blaði sjálfvakin kalkmiga (hypercalciuria), sistínmiga (cystinuria) og oxalmiga (hyperoxaluria) sem leiða af sér geislaþétta steina (1). Mun sjaldgæfari em gallar í púrínefnaskiptunum sem leiða til geislahleypinna steina. Þar í flokki er best þekkt þvagsým- eða úratmiga. Minna þekkt en ekki síður varhugaverð tegund púrínefnaskiptatruflunar er 2,8- díhýdroxýadenínmiga. Enda þótt útlit þvagsýru- og 2,8- díhýdroxýadenínkristalla/steina sé um flest ólíkt, hafa hinir síðarnefndu oftlega verið ranggreindir af þvagsýruuppruna. Þetta er skiljanlegt og að vissu leyti afsakanlegt í Ijósi þess að hér er um náskyld og hliðstæð efni að ræða og óaðgreinanleg með venjulegum hefðbundnum efnafræðilegum aðferðum. Þess í stað þarf að beita sérhæfðari aðgreiningaraðferðum svo sem litrófsrannsóknum, kristallaritun, eða gasgreiningu á súlu. Vangreining díhýdroxýadenínmigu hefur einnig verið umtöluð (2-4). Hérlendis hafa á síðari árum fundist 12 einstaklingar með díhýdroxýadenínmigu, hlutfallslega fleiri en í nokkru öðru landi. Því þykir rétt að vekja athygli á þessum sjúkdómi sem leitt getur til nýrnabilunar, jafnvel á unga aldri. Lýst verður hinum íslenska efniviði og síðan fjallað um eðli og afleiðingar efnaskiptagallans, faraldsfræði, einkenni sjúkdómsins, greiningu, svo og horfur. EFNIVIÐUR OG AÐFERÐIR Fyrir nálega 10 árum vakti yfirmeinatæknir Landakotsspítala í fyrsta sinn athygli höfundar

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.