Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.04.1994, Blaðsíða 40

Læknablaðið - 15.04.1994, Blaðsíða 40
162 LÆKNABLAÐIÐ niðurstöður þeirra á að hægt er að finna hópa af börnum sem eiga á hættu að verða misnotkuninni að bráð. Forvamir gætu verið fólgnar í að sinna þessum hópum sérstaklega í fræðslu og uppeldi í skóla. Loks má nefna rannsókn á syfju og áfengismisnotkun hjá ökumönnum sem lentu í slysum (32). Niðurstöður þessarar rannsóknar sýndu meðal annars, að bílstjórar innan við tvítugt, sem lentu í slysum, höfðu rúmlega fjórum sinnum oftar einkenni sem bentu til áfengismisnotkunar en samanburðarhópurinn. Þennan áhættuhóp er hægt að finna nteð tiltölulega einföldum aðferðum, veita honunt aðstoð til að hætta misnotkuninni og koma þannig í veg fyrir slys. LOKAORÐ Eins og sjá má af framansögðu eru not faraldsfræðilegra rannsókna til að auka við þekkingarforða margvísleg. Þær em mjög hagnýtar til þess að skipuleggja þjónustu og forvarnir, þó að oft gangi erfiðlega að fá rétta aðila til að nýta sér niðurstöður rannsóknanna. Faraldsfræðilegar rannsóknir eru einnig nauðsynlegar til að meta árangur heilbrigðisþjónustunnar. Table X. Scores aí final examination in elementary school among abstainers, non-problem drinkers and problem drinkers (30). Scores Abstainers (N = 92) % Non-problem drinkers (N = 887) % Problem drinkers (N = 134) % 0-59 13 15 30 60- 11 19 22 70- 25 30 21 80- . 42 30 22 90- 9 6 4 Total 100 100 99 Average score 75 74 68 Chi-square = 34.06, df = 8, P< 0.001. Hér að framan hafa verið tekin dæmi af faraldsfræðilegum rannsóknum á geðtruflunum til að sýna notkunarsvið faraldsfræðinnar. Að breyttu breytanda er hægt að beita svipuðum faraldsfræðilegum aðferðum við rannsókn annarra truflana til að fylla í sjúkdómsmyndir meðal þjóðarinnar. Forsendur faraldsfræðilegra rannsókna eru aðferðafræðileg þekking og greiður aðgangur að gögnum sem hafa verið varðveitt og verða varðveitt áfram. Þessi gögn verður að vera hægt að tengja við persónur til þess að þau koiui að fullum notum. Starfandi læknar verða að geta gefið kollegum sínum sem em að fást við vísindalegar rannsóknir, upplýsingar um sjúklinga sína, eins og þeir gefa öðrum kollegum sem sinna meðferð þeirra. Einnig verða þeir sem fást við vísindalegar rannsóknir að geta fengið upplýsingar úr gagnasöfnum sem til eru, eins og dánarvottorðum, krabbameinsskrám, sjúkraskrám sjúkrahúsa, örorkuvottorðum Tryggingastofnunar ríkisins, skrám landlæknis um misnotendur deyfilyfja, skrá um alnæmis- sjúklinga og svo framvegis. Við úrvinnslu faraldsfræðilegra rannsókna koma upplýsingar um einstakar persónur aldrei fram. Við slíkar rannsóknir er og hefur verið gætt fyllsta trúnaðar og ekki vitað til að upplýsingar úr þeim hafi verið misnotaðar. Hubertz (4) gerði sér Ijóst fyrir hálfri annarri öld að á Islandi væru mjög góðar aðstæður til faraldsfræðilegra rannsókna, þó að hann talaði fyrst og fremst um rannsóknir á geðtruflunum. Enn í dag er Island gósenland fyrir faraldsfræðilegar rannsóknir á sjúkdómum sem ekki eru mjög sjaldgæfir. A síðustu árum hefur löggjöf um skráningu og meðferð persónuupplýsinga (33) og framkvæmd hennar orðið til að hindra slíkar rannsóknir. Það ætti að vera verðugt verkefni fyrir stjórn Læknafélags Islands að Table XI. Antisocial behaviour abnormalities in childhood (31). Abusers Controls n % n % Chi-square p Truancy.................................... 40 57.1 9 12.9 30.17 <0.001 Police intervention ....................... 35 50.0 10 14.3 20.47 <0.001 Lying ..................................... 29 41.4 11 15.7 11.34 <0.001 Fighting ................................ 25 35.7 14 20.0 4.30 <0.05 Pilfering ............................... 22 31.4 14 20.0 2.39 NS

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.