Læknablaðið - 15.04.1994, Blaðsíða 8
130
LÆKNABLAÐIÐ
(14) sem kannaði ónæmi fyrir nitróimídasól.
Tíðni metrónídasólónæmis í flestum þróuðum
löndum er í kringum 25% (15,16).
Fimm af sex sjúklingum með ónæma stofna
höfðu fengið CBS+M og enginn þeirra hafði
losnað við sýkinguna. Þrír sjúklingar sem
voru H. pylori neikvæðir eftir 12 vikur voru
jákvæðir við' 26 vikna skoðun. Þetta er ef
til vill vegna endursýkingar sem þýddi 23%
endursýkingartíðni á tímabilinu milli 12. og
26. viku. Tfðni endursýkinga virðist vera
mjög breytileg, allt frá 3% til 35% á ári hjá
fullorðnum (10,17-19) að 25% á sex mánaða
tímabili hjá börnum (20). Endursýkingartíðnin
er sennilega tengd tíðni H. pylori sýkingar
í þýðinu sem sjúklingahópurinn er úr.
Bráðabirgðarannsóknir benda til þess að H.
polori sýkingar séu algengari á íslandi heldur
en í öðrum skandínavískum löndum (21).
Ahrif meðferðar á einkenni við fjögurra vikna
skoðun var góð hjá báðum meðferðarhópum.
Meira en 90% hafði annað hvort batnað
verulega eða voru laus við einkennin. Við
26 vikna skoðun höfðu hins vegar fimm
sjúklingar sem fengu CBS+M og sjö sem
fengu CBS+L fengið upphafseinkenni að nýju.
Erfitt hefur verið að túlka árangur skammtíma
meðferðartilrauna hjá sjúklingum með
meltingarónot vegna mjög hárrar svörunar við
lyfleysumeðferð, sem er á bilinu frá 50-60%
(22,23). Nýleg íslensk rannsókn sýndi góða
svörun hjá 67% sjúklinga eftir þriggja vikna
meðferð með lyfleysu (24). I okkar rannsókn
fengu báðir hópar meðferð í formi CBS sem
er virkt slímuverjandi lyf.
Áhugaverðast í okkar rannsókn er áhrif
upprætingar á H. pylori á meltingarónot
samanborið við hópinn sem var áfram H.
pylori jákvæður. Við 12 vikna skoðun virtist
vera betri svörun hjá hópnum sem var H.
pylori neikvæður en munurinn var ekki
marktækur. Við 26 vikna skoðun var hins
vegar marktækt betri árangur hjá þeim sem
voru H. pylori neikvæðir. Einkennin fóru
versnandi hjá hópnum sem var H. pylori
jákvæður en héldu áfram að batna hjá hópnum
sem var H. pylori neikvæður. Þessi svörun
bendir til að áhrif lyfieysu eða slímuverjandi
áhrif CBS séu ríkjandi fyrstu vikurnar eftir
meðferð, en þegar þessi áhrif hverfa koma hin
raunverulegu læknandi áhrif af upprætingu á
H. pylori í ljós.
Ekki er ljóst hvernig H. pylori sýking í
magaslímhúð getur valdið meltingarónotum.
Hins vegar er þekkt að viðvarandi magabólga
af gerð B, sem H. pylori sýking veldur, tekur
marga mánuði að læknast eftir að sýklinum
er útrýmt (25). Það er vel mögulegt að áhrif
af upprætingu á H. pylori sýkingu á einkenni
í meltingarónotum taki álíka langan tíma að
koma fram.
SUMMARY
The long-term effect of treatment with colloidal
bismuth subcitrate tablets and placebo (CBS+P)
and with metronidazole (CBS+M) was investigated
in 69 patients with non-ulcer dyspepsia and
Helicobacter pylorí infection. The main objective
was to assess the long-term effect of H. pylori
eradication on the dyspeptic symptoms, but the
effect of medication on the symptoms was also
assessed.
Patients presented with chronic upper dyspeptic
symptoms lasting at least 4 weeks, but no other
history of gastrointestinal disease. H. pylori
infection was confirmed by urease testing and
culture or histology. The patients were randomized
to receive CBS 240 mg bid for 4 weeks and
placebo tid for 10 days or CBS 240 mg bid for 4
weeks and metronidazole 400 mg tid for 10 days.
They recorded their symptoms (no symptoms,
improved or unchanged/worse) daily during the 4
weeks of treatment and weekly during the 12-week
follow-up. H. pylori status was reassessed at 12
and 26 weeks.
The H. pylori eradication achieved at 12 weeks was
37% (11/30) for the CBS+M group and 6% (2/32)
for the CBS+P group (p<0.05).
The symptomatic response to the medications was
good for both regimes at 4 weeks with 93% and
90% improved or symptomfree for the CBS+M and
CBS+P groups respectively. The good symptom
response, however, deteriorated with time to 77%
and 60% respectively (N.S.) at 26 weeks.
The symptomatic response to H. pylori eradication
showed a non-significant trend in favour of the
eradicated group at 12 weeks and this trend became
highly significant (p<0.00005) at 26 weeks.
The patients in the eradicated group tended to
improve with time.but patients with persistent
H. pylori infection tended to relapse with time.
It is concluded that eradication of H. pylori has
a favourable long-term effect on symptoms in
patients with non-ulcer dyspepsia.
HEIMILDIR
I. Veldhuyzen van Zanten SJ, Tytgat KMAJ, Jalali S,
Goodacre RL, Hunt RH. Can gastritis symptoms be