Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.04.1994, Blaðsíða 29

Læknablaðið - 15.04.1994, Blaðsíða 29
LÆKNABLAÐIÐ 1994; 80: 149-153 151 Table I. Patienl characteristics. Sucralfate Placebo Number of patients ............ 50 45 Number of males/females........ 25/25 14/31 Median age (y) ................ 39.2 35.8 (18-71) (18-69) Length of history (mo)......... 12.4 24.0 Duration of actual episode (mo) 3.5 3.1 Reported use of NSAID ......... 2 0 Reported use of alcohol ....... 18 21 Smokers ....................... 18 13 Table II. Pre-treatment symptom profile. Sucralfate Placebo N=50 N=45 Symptom profile: Epigastric pains only 11 13 One additionai Gl-symptom .. 18 17 Two additional Gl-symptoms . 21 15 Epigastric pains present daily .. 43 33 Nocturnal pains 34 24 Heartburn 24 22 Nausea 21 24 Vomiting 4 1 Meteorism 37 24 Irregular bowel movements .... 14 7 Table III. Therapeutic response in assessment of symptoms. relation to global Improved Unchanged Worse Sucralafate (%) 34(68) 11 5 Placebo (%) 31(69) 11 3 Table IV. Therapeutic response in relation to global assessment of NUD according to sex. Improved Unchanged Worse Total Sucralfate: M . 18(72%) 4 3 25 F . 16(64%) 7 2 25 Placebo: M 7(50%) 6 1 14 F . 24(77%) 5 2 31 við einkennaheiti á lista í dagbók. Dagbækur voru síðan metnar fyrir allt tímabilið og sjúklingar flokkaðir sem betri, óbreyttir eða verri, í samræmi við mat þeirra sjálfra í dagbókinni. Sjúklingum var ráðlagt að taka ekki sýrubindandi lyf meðan á meðferðinni stóð. I lok rannsóknarinnar afhentu sjúklingarnir það sem eftir var af lyfjunum og voru þau talin. Ef sjúklingurinn hafði tekið innan við 80% var hann ekki tekinn með í úrvinnslu. NIÐURSTÖÐUR A tveimur árum tókst að finna 104 sjúklinga sem uppfylltu öll skilyrði fyrir rannsóknina. Fimmtíu og sex sjúklingar (27 karlar, 29 konur) fengu súkralfat en 48 (15 karlar, 33 konur) fengu lyfleysu. Allir sjúklingarnir mættu til skoðunar að lokinni þriggja vikna meðferð, en níu féllu út vegna þess að þeir höfðu ekki fylgt settum reglum. Sex þeirra voru úr súkralfathópnum (tveir vegna aukaverkana og fjórir vegna slælegrar lyfjatöku og illa útfylltrar dagbókar), en þrír úr lyfleysuhópnum (slæleg lyfjataka, vantaði dagbók). Helstu upplýsingar um sjúklingahópana eru sýndar í töflu I. Nothæfir sjúklingar til úrvinnslu voru 50 í súkralfathópnum en 45 í lyfleysuhópnum. Hlutfall karla og kvenna í súkralfathópnum var 25/25 en 14/31 í lyfleysuhópnum. Tíminn frá því að einkenni komu fyrst fram var lengri í lyfleysuhópnum eða 24 mánuðir samanborið við 12,4 í lyfleysuhópnum. Ekki var um marktækan mun að ræða. Sjúklingahópamir voru að öllu öðru leyti sambærilegir. I töflu II eru sýnd sjúkdómseinkenni sjúklinga í hvorum hópi. Þau dreifast jafnt milli súkralfat- og lyfleysuhópsins. I töflu III sést heildarárangur meðferðar sem sýnir að í súkralfathópnum hafði 34 (68%) batnað, 11 voru óbreyttir og fimm hafði versnað. I lyfleysuhópnum hafði 31 sjúklingi (69%) batnað, 11 voru óbreyttir og þremur hafði versnað. Það var alls enginn staðtölulegur munur milli þessara tveggja hópa. 1 töflu IV er sýndur heildarárangur meðferðarinnar eftir kyni. I súkralfathópnum batnaði 72% karlanna en 64% kvennanna. í lyfleysuhópnum batnaði 50% karlanna en 77% kvennanna. Þessi munur var ekki marktækur. UMRÆÐA Sjúklingamir vom vandlega valdir samkvæmt skilmerkjum sem áttu að gefa eins samstæðan hóp og hægt var fyrir þennan flokk (20). Samanburðarhópurinn var sambærilegur við súkralfathópinn í öllu tilliti nema tvennu. í lyfleysuhópnum voru fleiri konur og það var lengri tími frá upphafi einkenna. Hvorugt var þó staðtölulega marktækt og ólíklegt er að það hafi áhrif á niðurstöður rannsóknarinnar. Það reyndist ekki mögulegt að ná þeim fjölda sjúklinga sem ætlað var í upphafi, það er

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.