Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.04.1994, Blaðsíða 20

Læknablaðið - 15.04.1994, Blaðsíða 20
142 LÆKNABLAÐIÐ Fig. 1. The friable 2,8-clihydroxyadenine crystals show spicules radiating from the center. The usual red- brownish colour can fade towards yellow-brownish. Original magnific.x 500. 2,8- DHA PT. Fig. 2. The ultraviolet spectrophotometry sliows a good correlation in wave length of maximal absorption spectrum through dijferent pH levels, between pure 2,8- dihydroxyadenine on the left and deposit of urine crystals on the right. Transmittance Wavenumber Fig. 3. The infrared spectrum shows almost identical pattern between the patient ’s urine crystals above and the 2,8-dihydroxyadenine below. á rauðbrúnum, hnattlaga þvagkristöllum sem sáust í þvagi sex ára stúlku sem lögð var inn til rannsókna vegna þvagfærasýkinga (mynd 1). Samskonar kristalla sá sami meinatæknir hjá stúlkunni þremur árum áður. Eftir ýmsar fyrirspurnir og greiningartilraunir var á endanum leitað til Metabolisk Laboratorium á Ríkisspítalanum í Kaupmannahöfn. Þar fékkst svo sjúkdómsgreining með gasgreiningu á súlu/samsætumælingu (mass spectrometry) á kristallabotnfalli úr sólarhringsþvagi (5). Skömmu síðar lagðist miðaldra karlmaður með meltingartruflanir inn á lyfjadeild. Hann hafði fyrri sögu um að minnsta kosti tvö nýrnasteinaköst. I þvagi hans fundust samskonar hnattkristallar, og nú var eftirleikurinn auðveldari og sjúkdómsgreining staðfest með litrófsmælingu (mynd 2). I þetta sinn var mælingin gerð hér á landi, af Jóni Bergssyni yfirlyfjafræðingi og gæðaeftirlitsstjóra hjá lyfjafyrirtækinu Delta. Þá minntist meinatæknir hálffimmtugrar konu sem hafði lagst inn á Landakotsspítala í nýrnasteinakasti 14 árum áður og sýnt mjög svipaða hnattkristalla við þvagskoðun. Kristallarnir reyndust á sínum stað og litrófsmæling hérlendis staðfesti greiningu (mynd 3). Þegar hér var kornið hafði konan misst annað nýrað. Síðan hefur sjúklingum farið jafnt og þétt fjölgandi og nú hafa sjö einstaklingar greinst á Landakotsspítala, þrír á Landspítala, einn á Borgarspítala og einn á Heilsugæslustöðinni í Mosfellsbæ. Allir greindust þeir upphaflega vegna dæmigerðra 2,8-díhýdroxýadenín (DHA) kristalla við smásæja þvagskoðun. Helstu atriði í sjúkrasögu hinna íslensku sjúklinga eru saman dregin í töflu 1. Fyrsti sjúklingurinn á Landspítala fannst árið 1990 (#5) og á Borgarspítala 1991 (#9). Báðir voru fullorðnir, sá fyrri með ntargra ára steinasögu, sá seinni með sitt fyrsta örugga steinakast. í Mosfellsbæ var tekin upp skimun á þvagi allra sex ára skólabarna árið 1992. Þá strax fundust DHA hnattkristallar hjá dreng sem ekki hafði sýnt ákveðin þvagfæraeinkenni (#10). Helmingur sjúklingahópsins voru börn og helmingur hópsins var enn einkennalaus eða einkennalítill við greiningu. Síðustu tveir einstaklingarnir (#11 og #12) greindust einungis í tengslum við athugun á fjölskyldum þekktra sjúklinga. Mæling á

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.