Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.05.1997, Síða 11

Læknablaðið - 15.05.1997, Síða 11
LÆKNABLAÐIÐ 1997; 83 291 Fig. 1. Survival curves after infection with Klebsiella pneu- moniae. ingum í NMRI músum. Tvær og tvær mýs úr hverjum hópi voru sýktar í senn og þannig koll af kolli til að hindra skekkju vegna fjölgunar bakteríanna á meðan sýking fór fram. Lifun var athuguð á átta tíma fresti í fimm sólar- hringa sem var fyrirfram ákveðinn lokapunkt- ur tilraunarinnar. Fylgst var áfram með mús- unum í hálfan mánuð. Tölfræði: Lifunarferlar voru greindir með Kaplan-Meier log rank prófi. Annar saman- burður var reiknaður með einföldu kíkvaðrats- prófi. Marktækur munur var settur við p<0,05. Niðurstöður Tveimur sólahringum eftir sýkingu voru all- ar mýsnar sem fengið höfðu lýsisbætt fæði (hópur I) lifandi, 80% músanna sem fengu ólífuolíubætt fæði (hópur II) voru lifandi og 68% músanna sem fengu venjubundið fóður (hópur III) (mynd 1). Eftir 56 tíma voru 93% músanna sem fengu lýsisbætt fóður lifandi, 68% músa sem fengu ólífuolíubætt fæði og aðeins 40% músanna sem fengu venjubundið fæði. Einfalt kíkvaðratspróf sýndi að eftir 56 tíma var marktækur munur á lifun músa sem fengu lýsisbætt fæði samanborið við lifun músa sem fengu venjubundið fæði (p<0,0001) og samanborið við lifun músa sem fengu ólífuolíu- bætt fæði (p<0,002). Þegar lifunartíminn allur fyrir mýs sem fengu lýsisbætt fæði annars vegar og mýs sem fengu annað hvort ólífuolíubætt fæði eða venjubundið fæði hins vegar var bor- inn saman með Kaplan-Meier log rank grein- ingu var munurinn marktækur (p=0,0034 og p=0,032). Ekki var marktækur munur á lifun músa sem fengu ólífuolíubætt fæði og músa sem fengu venjubundið fæði. Enginn munur var á þyngdaraukningu hópa á fóðrunartíman- um. Eftir að tilrauninni lauk urðu ekki frekari afföll á músum og ekki komu fram aðrar auka- verkanir. Umræða Niðurstöður rannsóknarinnar sýndu ótvírætt að lýsisbætt fæði eykur lifun NMRI músa eftir sýkingu með Klebsiella pneumoniae borið sam- an við annað hvort ólífuolíubætt fæði eða venjubundið ófitubætt fæði. Munurinn á fitu- sýrusamsetningu fóðurs tilraunahópanna fólst aðallega í ómega-3 fitusýrunum. Ómega-3 fitu- sýruinnihald lýsis er um 20%. Ómega-3 fitusýr- ur eru í mjög litlu magni í venjulegu nagdýra- fóðri og mjög lítið er af þeim í ólífuolíu, innan við 1%. Við teljum því líklegt að þessi munur á lifun sé fyrst og fremst vegna áhrifa ómega-3 fitusýra á ónæmiskerfið. Ahrif lýsisneyslu á sýkingarferlið hefur verið rannsakað nokkuð. Flestar rannsóknanna hafa verið gerðar á tilraunadýrum. Þó frumuboð- efni og fituefnaskipti manna og músa séu um margt svipuð er ekki mögulegt að draga ályktanir af þessum niðurstöðum varðandi menn. Þær rannsóknarniðurstöður sem fyrir liggja virðast ennfremur mismunandi eftir sýk- ingarleið bakteríanna og eftir bakteríutegund- um (7,8). Mörgum spurningum varðandi þetta ferli er því enn ósvarað. Linoleic sýra 18:2 (ómega-6), linolenic sýra 18:3 (ómega-3) og arachidonic sýra 20:4 (ómega-6) eru þær þrjár fitusýrur sem eru mönnum og dýrum lífsnauðsynlegar. Arachi- donic sýra er algengasta fitusýran í frumuhimn- um en við neyslu ómega-3 fitusýra breytist fitu- sýrusamsetning himnunnar á þann veg að meira verður af eicosapentaenoic sýru á kostn- að arachidonic sýru (11,12). Arachidonic sýra og eicosapentaenoic sýra eru forverar eikós- anóíða, það er prostaglandína, prostacýklína, thromboxana og leukotríena. Eikósanóíðar eru mikilvægir miðlar í varnarkerfi líkamans gegn sýkingum samanber áhrif prostaglandína til hækkunar líkamshita (13). Þá hafa eikós- anóíðar áhrif á ónæmiskerfið, bæði á bólgu- og
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.