Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.05.1997, Page 16

Læknablaðið - 15.05.1997, Page 16
296 LÆKNABLAÐIÐ 1997; 83 Table I. Target population and participation rate according to graduation year. Graduation year Invited Participated n (%') n (%!) 1955-1964 10 (7) 14 (4) 1965-1974 19 (13) 14 (14) 1975-1984 91 (64) 62 (62) 1985-1994 23 (16) 19 (19) Missing data 1 (D Total 143 (100) 100 (100) 1 % of all invited 2 % of all participants um vikum frá fyrsta bréfi fengu allir spurninga- listann aftur með ósk um svörun þeirra sem ekki höfðu svarað fyrr. Alls bárust 100 svör (70%). Tafla I sýnir að svipuð aldursdreifing er á markhópi og þátttakendum. Um 75% þeirra unnu á H2 stöðvum. Alls reyndust 76% svar- enda hafa sérfræðiréttindi í heimilislækning- um. Af þeim sem þátt tóku unnu 32 læknar á vaktsvæði með 650 til 1850 íbúa, 24 með 2000 til 6000 íbúa, 21 með 15.000 til 26.000 íbúa og 23 á Reykjavíkursvæðinu (120.000 íbúar). I spurningalistanum voru samtals 58 spurn- ingar, sem skipt var á eftirtalinn hátt: A) Al- mennar upplýsingar; B) Um álag, skyldur og bindingu; C) Endurlífganir - viðhorf og þjálf- un; D) Fyrirkomulag fjarskipta; E) Útbúnaður á vakt; F) Sjúkraflutningar; G) Kvaðir vegna almannavarna. Þegar spurt var um tíma vegna útkalla var fyrst nefnt klínískt dæmi og viðkomandi gefinn kostur á að áætla tíma (samfelld breyta). Höf- undar flokkuðu síðan slíkar breytur í megin- flokka. Þegar spurt var um viðhorf var nefnd fullyrðing og gefinn kostur á svari í fimm stiga kvarða (Likert kvarða), þar sem töluliðurinn 1 var mjög ósammála en 5 alveg sammála. Eftir- farandi úrvinnsla miðast við að svar 1 og 2 þýði ósammála, en 4 og 5 þýði sammála. Skilgreiningar á spurningablaðinu: Bundin vakt: Viðkomandi er á vinnustaðn- um eða vaktsvæðinu og því hægt að ná í hann innan nokkurra mínútna. Gœsluvakt: Hægt að ná í viðkomandi lækni innan tveggja klukkustunda. Fyrsta stigs endurlífgun/fyrsta hjálp (Basic Heart-Lung Resuscitation): Það að halda önd- unarvegum opnum, stöðug hliðarlega, munn við munn eða munn við maska öndunarhjálp eða hjartahnoð. Annars stigs eða sérhæfð endurlífgun (Ad- vanced Heart-Lung-Resuscitation): Beiting hjartarafstuðs, þræðing barkarennu eða lyfja- gjöf í æð. Tölfræði: Gögn voru færð í Excel forrit og töflur unnar úr SPSS. Við tölfræðilegan sam- anburð var notað kí-kvaðratspróf fyrir flokk- aðar breytur. Marktækni miðaðist við p-gildi <0,05. Niðurstöður Aðgengi að vaktlækni - fjarskipti: Allir (100%) vaktlæknar höfðu talstöð, farsíma eða boðtæki. Áttatíu og tveir af 99 læknum (83%) töldu fjarskipti vera í góðu lagi. Þyrfti sjúkling- ur á vaktsvæðinu á bráðaðkallandi læknisþjón- ustu að halda, töldu læknar að hann gæti í 95% tilvika (91 af 96 svörum) náð í lækni innan fimm mínútna. Lítill munur var á dreifbýli og þéttbýli. Mynd 1 sýnir söfnunargildi þess tíma sem áætl- að var að það taki að ná til læknis utan Reykja- víkur. Mynd 2 sýnir með sama hætti hversu langur tími læknar utan Reykjavíkur áætluðu að liði frá því að tilkynnt var um bráðaútkall þar til læknirinn gat lagt af stað í vitjun. í yfir 85% tilvika töldu þeir sig leggja af stað innan fimm mínútna. Aðgengi - samgöngur: Mikill munur var á dreifbýli og þéttbýli þegar aðgengi var skoðað með tilliti til búsetu. Ef gert var ráð fyrir bráð- aðkallandi vitjun í slæmri færð gat vaktlæknir á Reykjavíkursvæðinu í 82% tilvika verið kom- inn til sjúklings innan 30 mínútna og allir (100%) innan 60 mínútna. Hins vegar eru að- stæður þannig úti á landi, sérstaklega á minni vaktsvæðunum (með 6000 íbúa eða færri), að við sambærilegar aðstæður gátu aðeins 10% lækna verið komnir á staðinn innan 30 mínútna og 18% innan 60 mínútna. í þessum sömu hér-

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.