Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.05.1997, Síða 52

Læknablaðið - 15.05.1997, Síða 52
326 LÆKNABLAÐIÐ 1997; 83 vaktabindingu og það er mikill léttir,“ segir Auðbergur. Þarf enginn að vera hissa á því en nóttina áður en blaðamaður heimsótti Eskifjörð hafði hann þrisvar verið ræstur, bæði vegna veikinda og slysa sem menn höfðu lent í þegar þeir voru við skemmtan. Stóraukin pappírsvinna Auðbergur segir að starfið hafi breyst talsvert á síðustu ár- um: „Þar á ég við ýmsa nýja þætti sem komnir eru til. Kröfur tímans eru aukið framboð á hvers kyns reglulegum skoðun- um og viðtölum, ungbarna- skoðun og mæðraskoðun og fleiru sem er auðvitað aukin þjónusta við fólkið. Síðan er orðið miklu meira um vottorð, skýrslugerð og pappírsvinnu sem við verðum að sinna. Eg held því blákalt fram að sú vinna hafi aukist með tilkomu tölvunnar, hafi orðið flóknari og mér finnst þetta allt miklu þyngra í vöfum en fyrr, sam- skiptaskráning er orðið miklu tímafrekari en unt leið vitanlega betri.“ A góðviðrislaugardegi þegar autt er á bundnu slitlaginu og sólin baðar firðina og fannhvít- an Fagradalinn í stillilogni er erfitt að ímynda sér að sam- göngur geti truflast að marki á þessu svæði. Auðbergur segir reyndar sjaldgæft að hann hafi þurft að hverfa frá Reyðarfjarð- arferð. Hins vegar hafi ekki alltaf verið hægt að flytja sæng- urkonur til Neskaupstaðar. En hvernig gengur að sinna starfinu að mestu einn þegar skipulagið gerir ráð fyrir tveim- ur læknum? „Eg sker eitthvað niður. Móttakan á Reyðarfirði er opin tvo hálfa daga í viku en annars er ég mest hér og Reyðfirðingar leita hingað ef á þarf að halda, þetta er ekki nema 15 mínútna akstur á milli. En ég er talsvert bundinn af því kerfi sem komist hefur á hjá okkur, ég nefndi áð- an mæðra- og ungbarnaeftirlit, svo eru fastir tímafrekir síma- tímar, það er ekki svo auðvelt að skera slíkt niður þegar það er einu sinni komið á. Eg hef líka lítið getað sinnt Hulduhlíð og allt sem heitir fagleg uppbygg- ing og endurnýjun situr á hak- anum og þannig má segja að ýmislegt drabbist niður þegar svona stendur á.“ Allt betra en að vera einn Nokkrir læknar og lækna- nemar hafa komið til tímabund- inna starfa á Eskifirði á síðustu vikum og mánuðum og segir Auðbergur að þótt slíkt sé til mikillar hjálpar sé mjög mis- jafnt hvernig það nýtist: „Sér- fræðingar í heimilislækningum eru fljótir að komast inn í hlut- ina og í þeim er mestur fengur. Þeir sem hafa hins vegar átt all- an sinn starfsferil innan sér- stakrar og þröngrar sérgreinar eru vitanlega ekki eins vel í stakk búnir til að hlaupa inn í svona starf en auðvitað er allt betra en að vera einsamall." Og Auðbergur segir að enn sjái ekki fyrir endann á afleið- ingum uppsagna heilsugæslu- lækna í fyrra: „Þessar uppsagnir ollu róti og það verður einhver bið á að sæmileg skikkan komist á þetta allt á ný. Kjaramálum þessa læknahóps var vísað til kjaranefndar og það er alveg ljóst að við fáum enga lækna til að sækja um þessar lausu stöður meðan hún lýkur ekki starfi sínu. Ég hef haft samband við nokkra kunningja mína sem nú eru við störf til dæmis í Svíþjóð og þeir hreyfa sig ekki úr góðum stöðum til að fara í einhverja óvissu hér. Það er sárt að sjá hvernig áður vel frambærileg heilbrigðisþjónusta í dreifbýl- inu er að hrynja.“ Læknarnir á Eskifirði leysa flest dagleg vandamál en geta sent sjúklinga á Fjórðungs- sjúkrahúsið í Neskaupstað eða með bíl til Egilsstaða og flugvél til Reykjavíkur. Sjúkrabílavakt er í báðum bæjunum. Þrátt fyrir að Auðbergur liafi í nógu að snúast meðan liann fær ekki samstarfsmann til framtíðar hefur honum tekist að nýta sér námsfrí sitt og sækja sér endur- menntun: „Fyrsta skyldan er sú að hafa lækninn sjálfan í lagi. Þar á ég bæði við að við séum í góðu lík- amlegu og andlegu ástandi til að geta stundað kröfuhörð störf okkar en ekki síður hitt að halda sér við faglega. Það gerum við með því að sækja námskeið og fáum við til þess hálfs mánaðar frí árlega. Síðustu árin hef ég setið námskeið í Norræna heil- brigðisháskólanum í Gautaborg og verð ég þar nú í byrjun maí. Þarf ég einmitt að fá nokkra daga áður en ég fer til að ljúka undirbúningi fyrir vinnufund þar. Ég er í fimm manna starfs- hópi þar sem er einn frá hverju Norðurlandanna. Hópurinn tók að sér að kanna hvernig nýjung- ar rekur á fjörur lækna og hvernig þeim gengur að taka þær upp í daglegu starfi. Þetta er mjög áhugavert efni og við höfum sent hópi lækna spurn- ingalista sem við erum að vinna úr,“ segir Auðbergur Jónsson að lokum. jt
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.