Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.05.1997, Síða 64

Læknablaðið - 15.05.1997, Síða 64
338 LÆKNABLAÐIÐ 1997; 83 greiðsluþátttöku sjúklinga. Þarna gæti verið um að ræða suma eða alla eftirfarandi þætti: Heimilislæknisþjónustu, sér- fræðilæknisþjónustu, rann- sóknaþjónustu, aðgerðaþjón- ustu og slysaþjónustu. Hags- munir heilbrigðistryggingafé- laga eru þannig vaxnir að einnig má búast við að skynsamlegar forvarnir gegn heilsuvá yrðu einnig boðnar. Kostnaðarsamar skurðaðgerðir mætti bjóða við erlent sjúkrahús. Varðandi ör- orku- og lokastigssjúkdóma er ekki að búast við að venjuleg sjúkrastrygging taki til þess, en nú þegar eru boðnar sérstakar slíkar tryggingar hjá íslenskum tryggingafélögum. Hvar og hvernig? Húsnæðið gæti verið með ýmsu móti, en til greina kæmi að leigja eða kaupa lítið sjúkra- hús á höfuðborgarsvæðinu. Að öðrum kosti mætti útbúa legu- rými við núverandi læknastofur eða jafnvel breyta litlu hóteli í sjúkrahús. Líklegt er að legu- rými þurfi að vera eins og flest nútímafólk vill hafa það, það er einmenningsherbergi með sjón- varpi, einkasnyrtingu og síma. Séð yrði til þess að öll þjónusta, svo sem læknis-, hjúkrunar-, upplýsinga- og símaþjónusta yrði mjög góð. Skattaafsláttur? Kysi einhver að greiða ið- gjöld til sjúkratryggingafélags og njóta mestallrar heilbrigðis- þjónustu þannig á sinn kostnað, myndi honum eflaust þykja mál að skattar hans til almanna- sjúkratrygginga minnkuðu. Hann myndi ætlast til þess af sjúkratryggingafélaginu og/eða Clinica Medica, að þessir aðilar nái samningum við hið opinbera um skattaafslátt fyrir iðgjalda- greiðendur. Eflaust væri rétt að reyna að verða við þessu, en ár- angur myndi fara eftir pólítísku andrúmslofti og meðal annars kosta fjaðrafok í þingsölum og fjölmiðlum. Höfundi finnst hins vegar að til greina komi að gera ekki ráð fyrir skattalækkun/- endurgreiðslu í iðgjaldatöflu einkasjúkratrygginga á Islandi, vegna þeirrar andúðar sem lík- legt er að þátttökuleysi einka- tryggðra í almannatryggingum vekti upp hjá þorra manna. Annar möguleiki er að bjóða tryggingahöfum endurgreiðslu þegar og ef þeir kjósa að þiggja heilbrigðisþjónustu hjá opin- berum aðilum. Aðstæður andsnúnar Clinica Medica Það er félagshyggja í öllum mannlegum samfélögum. Á Is- landi er hún að miklu leyti form- leg, nánar tiltekið steypt inn í lög og reglugerðir, sjálfvirk og sjálfsögð. Mann grunar því að minna olnbogarými sé fyrir einkahyggju á sviði heilbrigðis- mála á íslandi heldur en í nálæg- um löndum, jafnvel í saman- burði við norræn frændlönd. í versta falli er hugsanlegt að al- menningur sé á móti Clinica Medica. Ekki hefur enn verið mælt hvort þessi hugmynd er ógeðfelld venjulegu fólki, en slíkt skiptir máli fyrir stjórn- málamenn, sem þurfa að móta lög og reglur um þetta. Hvernig yrði Clinica Medica gangsett? Nú myndu læknar ekki setja upp Clinica Medica einir síns liðs. Það væri til dæmis ómiss- andi að fá markaðsfræðing til að meta væntanlegan markað. Rekstarhliðina þarf að áætla og það er aðeins hægt að fengnu áliti verkfræðings á húsnæðis- þörfum og sjúkrahúsrekstrar- fræðings á mannaflaþörfum. Þá má ekki gleyma að trygginga- fræðingar þekkja best til trygg- ingahegðunar neytenda og regl- um sem lúta að almanna- og einkatryggingum. Pólítísk af- staða almennings og stjórn- málaflokka er rannsóknarverk- efni fyrir félagsfræðing. í fram- haldi af því mætti hugsa sér samráð við fulltrúa löggjafans og ráðuneyta. Þá kæmi að fjár- mögnun, en hún fengist ekki nema trúverðugar yfirlýsingar lægju fyrir frá ofangreindum að- ilum um jákvæð skilyrði. Hvaðan kæmi frumkvæðið? Það myndi sem sagt kosta forrannsókn að færa Clinica Medica á fjármögnunarstig. Þessa athugun þyrfti að fram- kvæma vitandi það að niður- staðan gæti orðið neikvæð, það er að segja hún yrði rekin með áhættufé. Fáir myndu ráðstafa sínum tíma og peningum í þetta nema þeir sem þekkja viðfangs- efnið. Læknar eru þar miðsviðs. Hópur áhugasamra lækna gæti látið gera slíka forrannsókn með því að hver og einn legði til dálítið fé, að ógleymdum tíma með þeim sérfræðingum sem nefndir eru að ofan. I upphafi mætti hugsa sér að slíkur hópur myndi koma saman til að stað- festa áhuga og ræða áætlun um forrannsókn, ef kaupin gerast þannig á eyrinni að slíkt sé inn- an við fjárgetu hópsins. Að lok- inni rannsókn ætti læknahópur- inn niðurstöðurnar og gæti því orðið ráðandi í framkvæmd Clinica Medica. Nokkur íslensk tryggingafélög og lífeyrissjóðir hafa í fyrstu atrennu afþakkað að fjármagna forkönnun, þann- ig að segja má að boltinn sé hjá læknum núna. Læknar og þróun heilbrigðismála Gott væri ef læknar gætu sem oftast tekið frumkvæði í þróun heilbrigðismála. Manni verður
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar: 5. tölublað (15.05.1997)
https://timarit.is/issue/364678

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.

5. tölublað (15.05.1997)

Gongd: