Læknablaðið - 15.05.1997, Page 79
LÆKNABLAÐIÐ 1997; 83
351
Fréttatilkynning frá landlækni
Norrænt umferðarslysaþing
Reykjavík, 27.-28. ágúst 1998
Efni: Áhættuslys í samgöngum í lofti, á láði og legi (meðal annars slys á skipum undir
hentifána).
Ráðstefnan er ætluð öllum þeim sem láta sig varða slys og slysavarnir, áhugamönnum
sem fagfólki, flugmönnum, atvinnubifreiðastjórum, löggæslumönnum, fræðimönnum,
heilbrigðisstarfsfólki, sjómönnum, alþingismönnum, sveitarstjórnarfólki, björgunarsveit-
arfólki, sjúkraflutningafólki, fararstjórum, fólki í ferðaþjónustu og fleirum.
Dagskrá:Áráðstefnunni verðurfjallaðum slys í samgöngum álandi, ásjó og ílofti. Þema
ráðstefnunnar er slys sem eiga sér stað vegna þess að fólk tekur meðvitaða eða
ómeðvitaða áhættu. Meðal annars verður rætt um slys á vélknúnum farartækjum á landi,
sjóslys, flugslys, sálfræðiþátt slysa, augnslys, slys í tómstundum og slysaskráningu.
Fundarstaður: Hótel Loftleiðir í Reykjavík.
Tungumál: Enska og norðurlandamál.
Ráðstefnan er skipulögð af landlækni og Slysavarnaráði. Þeir sem áhuga hafa á að flytja
erindi á þinginu hafi samband við skrifstofu landlæknis, Laugavegi 116, sími 562 7555.
Tekið verður á móti hótelbókunum og þátttökutilkynningum ráðstefnugesta hjá Gesta-
móttökunni ehf., P.O. Box 7253,127 Reykjavík, sími 551 1730, bréfsími 551 1736.
Heilsa og heilbrigðir lífshættir
Helgina 12. og 13. júlí nú í
sumar verður haldin ráðstefna á
Sauðárkróki undir yfirskriftinni
heilsa og heilbrigðir lífshættir.
Að ráðstefnunni standa afmæl-
isnefnd Sauðárkróks, Heilsu-
gæslustöðin á Sauðárkróki,
Sjúkrahús Skagfirðinga, Nátt-
úrulækningafélag Islands og
heilbrigðisráðneytið.
Sauðárkrókur stendur á tíma-
mótum. í ár eru liðin 140 ár frá
því að Krókurinn fékk verslun-
arleyfi, 90 ár frá því að hann
varð sérstakt sveitarfélag og 50
ár frá því að staðurinnn fékk
kaupstaðarréttindi. í fyrra voru
liðin 125 ár frá því að byggð
hófst á Sauðárkróki.
Sjúkrahús Skagfirðinga fagn-
aði 90 ára starfsafmæli á síðast-
liðnu ári og í ár eru liðin 60 ár frá
stofnun Náttúrulækningafélags
íslands. Frumkvöðull að stofn-
un Náttúrulækningafélagsins
var Jónas Kristjánsson þáver-
andi héraðslæknir á Sauðár-
króki og var félagið stofnað á
Króknum í júlí árið 1937. Jónas
var mikill baráttumaður fyrir
bættri heilsu og betri lífsháttum
og því þótti við hæfi að minnast
áðurnefndra tímamóta með því
að standa fyrir ráðstefnu um
heilsu og heilbrigða lífshætti.
Fyrirlesarar á ráðstefnunni
verða 14 talsins og koma úr hópi
lækna, hjúkrunarfræðinga,
sjúkraþjálfara, sálfræðinga,
næringarfræðinga, íþróttafræð-
inga, hagfræðinga, félagsfræð-
inga og heimspekinga.
Ráðstefnan fer fram í bók-
námshúsi Fjölbrautarskóla
Norðurlands vestra á Sauðár-
króki, hún hefst kl. 09:00 laug-
ardaginn 12. júlí og henni lýkur
sunnudaginn 13. júlí kl. 14:00.
Allar nánari upplýsingar um
ráðstefnuna veitir Páll Brynj-
arsson í síma 453 5082.
Úr fréttatilkynningu