Læknablaðið - 15.02.1999, Blaðsíða 29
LÆKNABLAÐIÐ 1999; 85
125
Kyngeta og mikilvægi hennar fyrir
lífsgæöi eldri karlmanna
Á aö niöurgreiöa lyf viö ristruflunum?
Ásgeir R. Helgason
Helgason ÁR
Sexual function and its importance for the well-
being of elderly men. The ethical dilemma of sub-
sidi/.ing treatment for waning erection stiffness
Læknablaðið 1999; 85: 125-8
Inngangur
Ristruflanir valda mörgum körlum miklu
hugarangri, jafnvel þó þeir séu komnir að átt-
ræðu og hættir að hafa samfarir (1). Ristruflan-
ir tengjast auknum aldri (1) en eru einnig oft af-
leiðing sjúkdóma eða meðferða við þeim (2-4).
Dæmi um sjúkdóma sem tengjast ristruflunum
eru sykursýki og hjarta- og æðasjúkdómar
(2,4). Dæmi um sjúkdómsmeðferð sem hefur
þessar afleiðingar í för með sér er skurðaðgerð
við krabbameini í blöðruhálskirtli, en gera má
ráð fyrir að 60-70% sjúklinganna verði getu-
lausir (sjá skilgreiningu að neðan) í kjölfar að-
gerðarinnar (3). Lyf sem tengd hafa verið ris-
truflunum eru meðal annars þvagræsilyf, hista-
mín-2 blokkarar og segavarnarlyf af kúmarín-
gerð (2,4).
Lyf sem vinna gegn minnkandi limstífni eru
ekki niðurgreidd hér á landi. Umræðan um það
hvort greiða eigi niður slík lyf eða ekki er
skammt á veg komin enda stutt síðan lyfin
Höfundur er sálfræöingur og faraldsfræöingur á samfé-
lagslækningadeild í Stokkhólmi og fæst viö rannsóknir á
sviði klínískrar læknisfræöi og forvarna.
Lykilorö: kynlíf eldri karla, getuleysi, lífsgæöi, meöferð við
getuleysi.
Key words: sexual function, elderly men, impotence, well-
being, quality of life, treating impotence.
komu á markað. í þessari grein verður fyrst
rætt um hugtakið getuleysi sem er grundvallar-
hugtak í umræðunni. Gerð verður grein fyrir
nýlegum sænskum rannsóknum á kynlífsatferli
eldri karla og áhrifum ristruflana á andlega
vellíðan. Að lokum verða rædd rök sem liggja
til grundvallar þeirri kröfu að lyf sem auka lim-
stífni eigi, í vissum tilfellum, að greiða niður af
samfélaginu.
Getuleysi
Orðið getuleysi er þýðing á enska orðinu
impotence. I almennri málvitund vísar orðið til
þess að viðkomandi geti ekki haft samfarir á
venjulegan hátt. Vandamálið við að nota þetta
orð er að merking þess er á reiki. í læknavís-
indum hefur tilhneigingin því verið sú að tala
um erection dysfunction eða xvaning erection
stiffness sem þýtt hefur verið með orðinu ris-
truflanir. Kosturinn við þetta hugatak er að það
vísar til minnkandi stífni á samfelldum kvarða.
Hins vegar má færa að því rök að þörf sé orðs
sem vísar til þess ástands þegar limstífnin er
orðin það slök að ekki sé lengur mögulegt að
hafa samfarir án hjálpartækja.
A síðustu árum hefur hugtakið getuleysi ver-
ið notað af sumum höfundum sem tilvísun í
þennan þröskuld (cut-off). Vandamálið sem
fylgir notkun orðsins getuleysi er þó engan
veginn úr sögunni. Margir höfundar blanda til
að mynda saman limstífni, fullnægingu, sam-
faratíðni og áhuga þegar þeir skilgreina getu-
leysi, meðan aðrir leitast við að halda hugtak-
inu hreinu, það er að það vísi eingöngu til þess
hvort það sé líffræðilega ómögulegt að limur
sjúklingsins verði nægjanlega stífur til að mað-
urinn geti haft samfarir án hjálpartækja eða
lyfja (5).