Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.02.1999, Síða 48

Læknablaðið - 15.02.1999, Síða 48
142 LÆKNABLAÐIÐ 1999; 85 áfengisskaðaðra barna. Á meðan til dæmis örv- andi lyf kunni að hjálpa áfengissköðuðum, of- virkum bömum að einbeita sér betur, þá geti þau ekki hjálpað þeim við að festa upplýsingar í minni og leysa verkefni. Hjálparúrræði sem beinast að þessum veiku hliðum gætu einnig verið til bóta. Annað einkenni sem virðist að- greina ofvirk börn og áfengissköðuð er það að þau síðarnefndu eru yfirleitt ekki eins hvatvís og þau fyrrnefndu (43). Mattson og félagar fundu einnig vandamál sem tengdust úrvinnslu upplýsinga í rannsókn sinni á námshæfni og minni áfengisskaðaðra barna. Rannsókn þeirra leiddi í ljós að böm með heilkenni fósturskaða af völdum áfengis eiga mjög erfitt með að læra og muna munnleg- ar upplýsingar. Bæði minni á efni, sem rifjað var upp strax, og minni á efni, sem rifjað var upp eftir lengri tíma, var verulega skert. Þegar hins vegar börnin náðu loks að læra efnið, þá tókst þeim að halda því í minni (44). Þessir erf- iðleikar í sambandi við úrvinnslu upplýsinga og minni eru í samræmi við fyrrnefndar dýra- rannsóknir sem sýndu að sæhesturinn, sem er ábyrgur fyrir því hlutverki, er sérlega við- kvæmur fyrir áfengisskaða. Langtímaafieiðingar Áfengistengd röskun á taugaþroska er ekki aðeins vandamál í æsku heldur einnig ævilöng fötlun. Með aldrinum dregur úr andlitseinkenn- um, vaxtarseinkunin er ekki eins áberandi og hjá ungu barni, en einkenni tengd miðtauga- kerfi vara ævilangt. Greindarskortur er algengt vandamál og lagast ekki með aldrinum og þau börn sem eru greindari eru oft í meiri áhættu en þau síður gefnu, vegna þess að þau uppfylla ekki þau viðmiðunarskilyrði sem þarf til að hljóta ýmiss konar aðstoð varðandi nám, störf og félagslega þjónustu. Önnur algeng vanda- mál hjá fullorðnum áfengissködduðum einstak- lingum eru ofvirkni, tilfinningaleg vandamál, svefntruflanir og óeðlilegir kækir. Börn og unglingar með fósturskaða af völdum áfengis eiga oft við vandamál að stríða eins og lágt sjálfsmat, árásarhneigð og misheppnaða skóla- göngu. Áfengissýki, eiturlyfjanotkun, andfélags- leg hegðun og tíðar þunganir eru algeng vanda- mál sem fylgja hækkandi aldri. Stór hluti full- orðinna einstaklinga með heilkenni fósturskaða af völdum áfengis þarf á geðmeðferð að halda, einkum vegna vímuefnamisnotkunar, þung- lyndis og geðhvarfasýki. Mannleg samskipti eru þeim erfið, tjáskiptahæfni er skert og svo til enginn nær að lifa sjálfstæðu lífi (39,45-50). Meðferð Taugalífeðlisfræðilegar rannsóknir hafa leitt í ljós að taugakerfið er mótanlegt. Við nám og þjálfun verða breytingar á taugafrumunni og í næsta nágrenni hennar og breytingar þessar geta átt sér stað alla ævi einstaklingsins. í ljósi þessa gefa rannsóknir á ýmiss konar tauga- þjálfun góða von. Samkvæmt Klintsova og fé- lögum hafa rannsóknir á meðferð við áfengis- skaða verið fáar. Þeir rannsökuðu endurhæf- ingaráhrif flókinnar hreyfiþjálfunar á rottur, sem höfðu fengið stóra skammta af alkóhóli á þeim tíma sem samsvarar síðasta þriðjungi meðgöngu hjá mönnum. Fyrri rannsóknir hafa sýnt að áfengi veldur marktækri og varanlegri fækkun á Purkinje- og kornafrumum í litla heila með þeim afleiðingum að rottur hafa skerta hreyfifærni. Vísindamennirnir höfðu áhuga á að vita, hvort bæta mætti hreyfifærnina með því að kenna rottunum ýmis flókin hreyfi- verkefni sem sýnt hafði verið fram á að gátu valdið fjölgun taugamóta í berki litla heila og að hve miklu leyti taugafrumur í litla heila eru mótanlegar. Niðurstöður rannsóknarinnar sýndu að með þjálfun mátti bæta hreyfifærni áfengis- skaddaðra rotta og að eftirlifandi Purkinje- frumur höfðu ennþá hæfileikann til að fjölga taugamótum (51). Eins og áður hefur komið fram hafa rann- sóknir á dýrum og mönnum sýnt að sæhestur- inn er sérstaklega viðkvæmur fyrir áhrifum áfengis. Dýrarannsóknir hafa leitt í ljós að þeg- ar sæhesturinn er örvaður með úttauga snerti- og rafboðum, verður aukning á starfseminni og hann gefur frá sér acetýlkólín (52). I því kann einnig að felast von um meðferð fyrir áfengis- sköðuð börn. Samantekt og niðurstaða Neikvæðar afleiðingar áfengisneyslu á með- göngu hafa verið rannsakaðar ítarlega síðan heilkenni fósturskaða af völdum áfengis var skilgreint árið 1973. Þrjú aðaleinkenni heil- kennisins eru vaxtarskerðing, vansköpun í and- liti og röskun á starfsemi miðtaugakerfisins. Öll einkenni heilkennisins koma aðeins fram í bömum mæðra sem drukkið hafa mikið alla meðgönguna og talið er að það geti átt við eitt til þrjú af hverjum 1000 lifandi fæddum börn- um. Minni neysla áfengis getur valdið ýmsum
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.