Læknablaðið - 15.02.1999, Blaðsíða 69
LÆKNABLAÐIÐ 1999; 85
159
úrskurðarvald í málefnum
lækna en þar sem hún býr yfir
góðri þekkingu á lögunum og
vegna þess að við teljum
stöðu okkar svo sterka þá
lögðum við til að nefndinni
yrði falið að úrskurða um
ágreiningsmál okkar og
sjúkrahúsanna. Við teljum að
hún hljóti að úrskurða okkur í
hag þótt hvorki við né við-
semjendur okkar séum bundn-
ir af niðurstöðum hennar.“
Sólarhringsvaktir
munu hverfa að mestu
- Er samningsgerðin ekki
langt á veg komin?
„Jú, við erum búin að setja
upp nýja vaktaáætlun. Við
héldum fund með læknum um
nefndarvinnuna í desember og
hyggjum á frekari fundi í febr-
úar þegar málið liggur fyrir í
öllum aðalatriðum. Og að
sjálfsögðu verður málið kynnt
rækilega, hugsanlega á félags-
fundi, áður en það verður lagt
í dóm lækna.“
- Ef við gefum okkur að
samkomulag náist í nefndinni
og að læknar samþykki niður-
stöðuna, hvenær mun nýtt
vaktaskipulag taka gildi?
„Það á að taka gildi sem
fyrst og í síðasta lagi í vor.
Kannski er réttara að segja að
það byrji þá að taka gildi því
það er ákvæði í vinnutímatil-
skipuninni um sjö ára aðlög-
unartíma. Það verður því ekki
alger stökkbreyting með gild-
istöku hennar. A vissum þátt-
um verða þó mikil umskipti,
svo sem því að unglæknar
munu ekki fá greidda yfir-
vinnu daginn eftir vakt ef þeir
fá ekki nægilega hvíld. Það
hverfur að líkindum strax.
Aðrar breytingar koma smátt
og smátt til framkvæmda og
við gerum ráð fyrir að stofnuð
verði samráðsnefnd til að
fylgjast með framkvæmdinni.
Hún mun væntanlega setja sér
ákveðin markmið uin að til-
tekin atriði verði komin til
framkvæmda innan tiltekins
tíma og fylgjast með því að
það gangi eftir. Hún mun
einnig fylgjast með því að
gerðar verði áætlanir um
mönnun vaktanna þótt endan-
leg ákvörðun um útfærsluna
sé að sjálfsögðu í höndum
yfirlæknis og sviðsstjóra
hverrar deildar.
Þess ber að geta að sam-
kvæmt tilskipuninni hefur
hver starfsmaður rétt á að
neita að vinna umfram 48
stundir á viku, það er ekki
hægt að neyða hann til þess að
vinna lengur. Svo má líka
nefna að frá flestum ákvæðum
tilskipunarinnar eru undan-
þágur en þær má ekki veita
nema mjög sterk rök liggi til
grundvallar. Stefnan á að vera
sú að halda reglugerðina og
koma hlutunum þannig fyrir
að það gangi upp.“
- Það má því búast við að
innan tveggja eða þriggja ára
verði sólarhringsvaktir lækna
úr sögunni, eða hvað?
„Já, þar sem mikill erill er á
nóttunni verða þær úr sög-
unni, að frátöldum þeim svið-
um þar sem mönnunin leyfir
ekki að horfið verði frá þeim.
Ég sé frain á að á skurðdeild-
um hér í Reykjavík og sjúkra-
húsum á landsbyggðinni muni
taka lengri tíma að koma til-
skipuninni í framkvæmd,“
sagði Arnór Víkingsson.
-ÞH