Læknablaðið - 15.02.1999, Blaðsíða 46
140
LÆKNABLAÐIÐ 1999; 85
vísitölu hjá fjögurra og hálfs árs börnum. Höf-
undar vara þó við því að líta á þetta neyslu-
magn sem einhvern öryggisþröskuld, því nið-
urstöður rannsóknarinnar leyfi ekki að ályktan-
ir séu dregnar varðandi áhrif minni áfengis-
neyslu. Rannsóknin staðfesti hins vegar að
mun minni áfengisneysla en sú sem þarf til að
valda heilkenni fósturskaða af völdum áfengis,
getur haft áhrif á þroska barna (36).
Goldschmidt og félagar gerðu rannsókn á
námsstöðu sex ára barna. Mæður þeirra til-
heyrðu lágri þjóðfélagsstétt og notuðu áfengi í
hófi. Áfengisneysla um miðja meðgöngu
tengdist skertri frammistöðu í lestri, stafsetn-
ingu og reikningi. Frammistaða í reikningi
versnaði eftir því sem áfengisskammtamir
höfðu verið stærri, en frammistaða í lestri og
stafsetningu tengdist meir þröskuldsáhrifum.
Áfengisþröskuldurinn, sem tengdist skertri
frammistöðu, var um það bil einn drykkur á
dag um miðbik meðgöngu (37).
Rannsóknir á börnum með heilkenni fóstur-
skaða af völdum áfengis hafa leitt í ljós að
greind þeirra er á mörkum vægrar þroskaheft-
ingar (meðalgreindarvísitala ~ 68), en greind-
arstigið getur verið mjög breytilegt eða allt frá
alvarlegri þroskaheftingu til meðalgreindar.
Börn sem hafa aðeins tvö af þremur einkennum
heilkennisins eru með aðeins hærri meðalgreind
(38). Þótt fullorðið fólk með heilkenni fóstur-
skaða af völdum áfengis hafí greind innan eðli-
legra marka, er það samt með óeðlilega hátt
hlutfall ýmissa taugasálfræðilegra ágalla (39).
Meirihluti þeirra barna, sem verða fyrir
miklum áfengisáhrifum í móðurkviði, uppfylla
ekki greiningarskilmerkin fyrir heilkenni fóst-
urskaða af völdum áfengis. Mattson og félagar
hafa sýnt fram á, að þótt böm áfengissjúkra
kvenna séu ekki með andlitseinkenni eða vaxt-
arseinkun sem einkenna heilkennið, þá hafi þau
samt skerta greind. Rannsókn þeirra sýndi að
börn, sem orðið höfðu fyrir áhrifum alkóhóls
en uppfylltu ekki greiningarskilmerki fyrir
heilkenni fósturskaða af völdum áfengis, höfðu
meðalgreindarvísitöluna 83,6 sem er um það
bil eitt staðalfrávik fyrir neðan meðallag (40).
Þeir báru einnig frammistöðu barna með heil-
kennið og barna, sem höfðu orðið fyrir mikilli
áfengisneyslu á meðgöngu án þess að vera með
heilkenni fósturskaða, saman við frammistöðu
heilbrigðra barna á taugasálfræðilegum próf-
um. Fyrrgreindu hóparnir tveir stóðu sig mun
lakar en sá síðarnefndi á prófum sem mældu
málfærni, yrt minni, námshæfileika, fínhreyf-
ingahraða og samhæfingu sjónar og handa (41).
Vandamál tengd athygli og hvatastjórnun eru
mjög algeng hjá áfengissködduðum börnum.
Rannsóknir, sem fylgt hafa eftir börnum með
heilkenni fósturskaða af völdum áfengis, sýna
að ofvirkni og athyglisbrestur virðist einna
helst standa í vegi fyrir því að þessi börn eigi
áfallalausan skólaferil. Vegna þess hversu al-
gengt vandamál þetta er meðal áfengisskaðaðra
barna, hefur því jafnvel verið haldið fram að
áfengi gæti verið orsakavaldur athyglisbrests
með ofvirkni (attention deficit hyperactivity
disorder, ADHD). Nanson og Hiscock báru
saman annars vegar börn með heilkenni fóstur-
skaða af völdum áfengis og áfengistengdan
fósturskaða og hins vegar börn með athyglis-
brest (attention deficit disorder, ADD) og
fundu ýmislegt sameiginlegt með þessum hóp-
um. Þótt áfengissköðuðu börnin væru mark-
tækt greindarskertari, þá voru alhyglisbrestur
og hegðunarvandamál svipuð og hjá börnunum
með athyglisbrest (42).
Coles og félagar komust að annarri niður-
stöðu í nýlegri rannsókn. Þeir báru saman fjóra
hópa svartra, bandarískra barna úr sama lág-
tekjuhópnum. Börnum sem höfðu orðið fyrir
áhrifum alkóhóls í móðurkviði var skipt í tvo
hópa, annars vegar þau sem voru með andlits-
einkenni og hins vegar þau sem voru án þeirra.
Áfengissköðuðu börnin voru síðan borin sam-
an annars vegar við börn sem greind höfðu ver-
ið með athyglisbrest með ofvirkni og áttu
mæður sem ekki höfðu neytt áfengis á með-
göngu og hins vegar við eðlileg böm. Niður-
stöður leiddu í ljós að áfengissköðuð börn með
andlitseinkenni (heilkenni fósturskaða af völd-
um áfengis) og ofvirku börnin mældust með
svipaða skerðingu á greindarprófum borið
saman við áfengissköðuð börn án andlitsein-
kenna og eðlileg börn. Hins vegar kom fram
greinilegur munur á þessum tveimur hópum á
taugasálfræðilegum prófum og hegðunarmæli-
tækjum, þar sem ofvirku bömin stóðu sig mun
lakar á prófum sem mæla athyglisbrest og
hegðunarröskun. Ofvirk börn með athyglis-
brest áttu erfiðara með að einbeita sér og við-
halda athygli, en áfengisköðuðu börnin áttu
erfiðara með verkefni sem reyna á rúmskynjun,
úrvinnslu upplýsinga (encoding) og sveigjan-
leika við úrlausn verkefna. Það er skoðun höf-
unda þessarar rannsóknar að niðurstöðumar
gætu skipt máli varðandi kennslu og meðferð