Læknablaðið - 15.02.1999, Side 36
130
LÆKNABLAÐIÐ 1999; 85
Fósturskaði af völdum áfengis
Yfirlitsgrein
Sólveig Jónsdóttir
Jónsdóttir S
Fetal alcohol syndrome and alcohol-related neuro-
developmental disorder. A review
Læknablaðið 1999; 85: 130-44
Prenatal alcohol exposure can have devastating con-
sequences for the unborn child. The physical malfor-
mations and growth retardation characteristic of the
fetal alcohol syndrome (FAS) only represent the tip
of the teratological iceberg. The functional impair-
ments that are not obvious to the eye have the most
detrimental consequences for the individual. The
cognitive and behavioral problems seen in alcohol-
exposed children are caused by alterations in brain
function and/or structure. The extent of damage to
the brain is time and dose related. Fetal alcohol syn-
drome and alcohol-related neurodevelopmental dis-
order (ARND) have been estimated to affect as many
as 9.1 children per 1,000 according to a prospective
study in Seattle, USA. Long-term outcome reveals
an excess of social and mental problems. The
incidence of FAS and ARND in Icelandic children is
unknown. Various research outcomes and implica-
tions for therapy are discussed.
Key words: fetal alcohol syndrome (FAS), fetal alcohol
effects (FAE), alcohol-related effects, alcohol-related
neurodevelopmental dlsorder (AFtND), neuropsychologi-
cal deficits.
Höfundur er sálfræðingur. Frá barna- og unglingageðdeild
Landspítalans. Fyrirspurnir, bréfaskipti: Sólveig Jónsdóttir,
barna- og unglingageðdeild Landspítalans, Dalbraut 12,
105 Reykjavík. Sími: 560 2500. Netfang: soljonsd@rsp.is
Lykilorð: heilkenni fósturskaöa af völdum áfengis (FAS),
áfengistengdur fósturskaöi (FAE), áfengistengd áhrif,
áfengistengd röskun á taugaþroska (ARND), taugasál-
fræöilegir ágallar.
Ágrip
Áfengisneysla á meðgöngu getur haft af-
drifaríkar afleiðingar fyrir hið ófædda barn.
Líkamleg vansköpun og vaxtarskerðing, sem
einkenna heilkenni fósturskaða af völdum
áfengis (fetal alcohol syndrome, FAS), er að-
eins toppurinn á fósturskaðaísjakanum. Hinn
starfræni skaði, sem ekki sést með berum aug-
um, er sá sem hefur alvarlegastar afleiðingar til
lengri tíma litið, en ekki útlitseinkennin sem
slík. Vitsmunaskerðing og hegðunarvandamál,
sem koma fram hjá áfengissköðuðum börnum,
stafa af breytingum sem verða á starfsemi heil-
ans og/eða byggingu hans. Það fer eftir alkó-
hólmagni, sem neytt er á meðgöngu og því á
hvaða tíma meðgöngunnar neyslan er, hve
miklum skaða heilinn verður fyrir. Heilkenni
fósturskaða af völdum áfengis ásamt með
áfengistengdri röskun á taugaþroska (alcohol-
related neurodevelopmental disorder, ARND)
kann að vera fyrir hendi hjá allt að 9,1 barni af
hverjum 1000, samkvæmt framskyggnri rann-
sókn frá Seattle í Bandaríkjunum. Langtíma-
rannsóknir sýna hátt hlutfall andlegra og fé-
lagslegra vandamála hjá þessum börnum. Ekki
er vitað um tíðni fósturskaða af völdum áfengis
á Islandi. Fjallað er um ýmsar rannsóknarnið-
urstöður og hugsanlegar ábendingar fyrir með-
ferð.
Inngangur
Rannsóknir á dýrum og mönnunt undanfar-
inn aldarfjórðung hafa varpað æ skýrara ljósi á
hin afdrifaríku áhrif sem neysla áfengis á með-
göngu getur haft á þroska fóstursins. Áfengi
veldur bæði líkamlegum og starfrænum fóstur-
skaða sem getur verið misalvarlegur eða allt frá