Læknablaðið - 15.02.1999, Blaðsíða 91
LÆKNABLAÐIÐ 1999; 85
177
Hallgerður Gísladóttir sagnfræðingur
Gömul læknisráð á Þjóðminjasafni
Hallgerður Gísladóttir á þjóðháttadeild Þjóðminjasafnsins
heldur áfram að seilast í skúffur og skjalaskápa deildarinnar
eftir gömlum læknisráðunt sem þar eru skráð. Að þessu sinni
fjallar Hallgerður um trú manna á sóti annars vegar og hins
vegar á því að bera eyrnahringa.
Sót
Sót var af mörgum talið gott
til ýmiss konar lækninga í
eldri tíð. Fólk með áblástur
kyssti til dæmis oft á ketil-
krókinn (hóinn) en það var
krókurinn sem pottar og katlar
héngu í yfir eldinum. Hórinn
var yfirleitt sótugur og mun
sótið hafa verið það sem sóst
var eftir þegar þessi aðferð var
viðhöfð. Eftirfarandi dæmi
eru úr svörurn við spurninga-
skrá um ljós og eld sem send
var út til eldra fólks árið 1961
ásamt aukaspurningu um
eyrnahringa.
Heyrt hef ég, að ef fólk var
með áblástur á vör, hafi það
verið þjóðráð að kyssa hóinn,
átti þá áblásturinn að batna.
Eitthvað á þessa leið átti
ávarpið að hljóða: Kyssi ég
þig hór min, hór minn græð þú
mína vör.
Ef maður hafði sár á vör,
áblástur, þá var ráð til þess að
græða hann að kyssa hóinn og
segja um leið: Heill og sæll
hór minn - er húsbóndinn
heima - ég skal kyssa snös
þína - ef þú græðir vör mína.
Þulan sem menn fóru með
þegar þeir kysstu hóinn sér til
lækninga: Sæll vertu hór minn
hangandi - kem ég til þín gang-
andi - ég skal kyssa á snös
þína - ef þú græðir vör mína.
SCHERING
Schering, 940261
UÍS 98-58. sept. 98
TÖFLUR: G03AA10. Hvertafla inniheldur: Ethinylestradiolum INN 20 míkróg, Gestodenum INN 75 míkróg. Ábendingar: Getnaðarvöm. Frábendingar:
Þungun, alvarleg röskun á starfsemi lifrarinnar, gula eða þrálátur kláði við fyrri þungun, Dubin-Johnson heilkenni, Rotor heilkenni, æxli í lifur eða saga um æxli
í lifur, segarek, saga um segarek eða aðstæður sem valda hættu á því, t.d. truflun á blóðstorkuþáttum, hjartalokusjúkdómar og gáttatitringur, sigðfmmublóðleysi,
þekkt æxli eða saga um æxli sem kynhormónar geta haft áhrif á, t.d. krabbamein í brjósti eða legslímhúð, alvarleg sykursýki með æðabreytingum, truflanir á
fituefnaskiptum, saga um herpes,("herpes gestationis" er ákveðinn húðsjúkdómur, sem getur komið upp á meðgöngu og lýsir sér m.a. með blöðmm á húð,
brengluðum lifrarprófum o.fl., versnandi kölkun í miðeyra á meðgöngutíma, blæðingar úr leggöngum af óþekktri orsök, ofnæmi fyrir einhverju innihaldsefna
Meloden.
Aukaverkanir: Sjaldgæfar em höfuðverkur, magakveisa, ógleði, eymsli í brjóstum, breytingar á líkamsþyngd, breytingar á kynhvöt, þunglyndi getur komið fyrir.
Hjá konum sem hafa tilhneigingu til þess, getur notkun lyfsins stundum valdið litarbreytingum í andliti (chloasma), sem aukast við sólskin. Þær konur ættu að
forðast að vera lengi í sólskini. Greint hefur verið frá einstaka tilvikum af óþoli gagnvart augnlinsum við notkun getnaðarvamataflna. Þær konur sem nota linsur
og verða fyrir breyttu þoli gagnvart þeim ættu að fara í skoðun til augnlæknis.
Varúð: Ástæður til að hætta notkun Meloden strax: Mígrenihöfuðverkur í fyrsta sinn, versnun á mígreni eða aukin tíðni óvenjulega mikils höfuðverkjar, skyndileg
tmflun á sjón eða heym eða aðrar skyntmflanir, fyrstu merki um æðasegabólgu eða segarek (t.d. óvenjulegir verkir eða þroti í fótum, stingandi verkur samfara
öndun eða hósti án nokkurrar augljósrar ástæðu), verkur og þrengsli fyrir brjósti, sex vikum fyrir fyrirhugaða skurðaðgerð og meðan á rúmlegu stendur, t.d. eftir
slys, skurðaðgerð, gula, lifrarbólga, kláði um allan líkamann, aukin flogaveikisköst, marktæk hækkun blóðþrýstings, alvarlegt þunglyndi, alvarlegir verkir í efri
hluta kviðarhols eða stækkun lifrar, þungun. Við eftirfarandi aðstæður skal ekki nota getnaðarvamatöflur nema undir ströngu eftirliti læknis. Versni einhverjar
þessara aðstæðna, getur verið ástæða til þess að hætta notkun getnaðarvamalyfsins: sykursýki eða skert sykurþol, háþrýstingur, æðahnútar, saga um bláæðabólgu,
kölkun í miðeyra, MS-sjúkdómur (multiple sclerosis), flogaveiki, porfýría, kalkstjarfi (tetany), Sydenham's chorea, skert nýrnastarfsemi, saga um truflun á
blóðstorknun, offita, saga um brjóstakrabbamein í Qöískyldunni og saga um hnúta í bijóstum, saga um þunglyndi, rauðir úlfar (systemic lupus erythematosus),
vöðvahnútar í legi (uterine myoma) og mígreni.
Að því sem best er vitað er ekki hægt að útiloka samband milli notkunar hormóna til getnaðarvama og aukinnar hættu á sjúkdómum er stafa af segareki í slagæðum
og bláæðum, svo sem kransæðastífla, blóðtappi í lungum, æðasegabólga, slag eða segamyndun í sjónhimnu. Læknir skal vera á verði fyrir fyrstu merkjum um
slíka sjúkdóma. Vakni gmnur um einhvem þeirra, skal strax hætta að nota Meloden. Hætta á segastíflu í slagæðum (t.d. slagi eða kransæðastíflu) virðist aukast
enn þegar miklar reykingar, hækkandi aldur og notkun getnaðarvamataflna fer saman. Vegna þessa skal ráðleggja konum, sem em eldri en 35 ára og nota
getnaðarvamatöflur eindregið frá því að reykja. Auk þess geta tilteknir sjúkdómar, svo sem of hár blóðþrýstingur, of há blóðfita, offita og sykursýki aukið áhættuna
hjá konum sem nota getnaðarvamatöflur. Meta skal hvort æskilegt sé að nota lyfið þegar um þessa sjúkdóma er að ræða með tilliti til áhættunnar sem sjúkdómurinn
veldur og ræða það við konuna áður en hún ákveður að nota lyfið. Lýst hefur verið breytingum á þéttni þríglýseríða, kólesteróls og lípóprótína í blóði samfara
notkun getnaðarvamataflna. Getnaðarvamatöflur geta einnig valdið skertu sykurþoli. Lýst hefur verið hækkuðum blóðþrýsting hjá konum sem nota getnaðarvamatöflur.
Blóðþrýstingurinn fer venjulega aftur í eðlilegt horf eftir að hætt er að nota lyfið. Sumar konur geta orðið fyrir tíðateppu eða óreglulegum blæðingum þegar þær
hætta notkun getnaðarvamataflna, einkum þegar um slíkt var að ræða áður en notkun þeirra hófst. Greina skal konum frá þeim möguleika. í sjaldgæfum tilvikum
hefur orðið vart við góðkynja og enn sjaldnar illkynja lifraræxli sem geta leitt til einstakra tilvika af lífshættulegum innvortis blæðingum eftir notkun hoiroóna á
borð við þá sem em í lyfinu. Verði vart við alvarlega verki í efri hluta kviðarhols, merki um stækkun á lifur eða blæðingar í kviðarholi, skal hafa möguleika á
lifraræxli í huga við sjúkdómsgreiningu. Við fyrri rannsóknir var greint frá aukinni hættu á sjúkdómum í gallblöðru sem vom staðfestir við uppskurð, hjá þeim
konum sem notuðu estrógen og getnaðarvamatöflur. Síðari rannsóknir hafa hins vegar leitt í Ijós að hættan á sjúkdómum í gallblöðm sé hverfandi lítil.
Milliverkanir: Efnasambönd sem hvetja lifrarensím svo sem barbítúröt, prímídón, hýdantóín, fenýlbútasón, rífampisín, karbamazepín og griseófúlvín geta dregið
úr verkun Meloden. Skammtastœrðir: Fyrsta taflan úr Meloden pakkningunni skal tekin fyrsta dag tíðahringsins. 1 tafla á dag næstu 21 daga en síðan er 7 daga
hlé. Pakkningar: 21 stk. x 3. Nánari upplýsingar í texti Sérlyfjaskrár. Handliafi markaðsleyfis: ScheringAG. Umboðsmaður á Islandi: Tliorarensen Lyfelif