Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.02.1999, Side 107

Læknablaðið - 15.02.1999, Side 107
LÆKNABLAÐIÐ 1999; 85 191 7.-11. júlí f Berlín. IVth European Congress of Gerontology. Nánari upplýsingar hjá Læknablaðinu. 22.-25. september í Nýju Delhi. VIII. International Symposium on Torture. Torture as a challenge to the health, legal and other professions. Nánari upplýsingar hjá Læknablaðinu. 24.-26. september í Prag. 20. ársþing Alþjóðasamtaka húðmeinafræð- inga (ISDP). Upplýsingar veitir Ellen Mooney sem er í framkvæmdastjórn. 14.-16. október í Umeá. 5th Congress of Nordic Society for Re- search in Brain Ageing (NorAge). The ageing brain, challenge in a modern society. Nánari upplýsingar veitir Halldór Kolbeinsson í síma 525 1400, netfang: halldor@shr.is Bæklingur um Asperger-heilkenni Læknablaðinu hefur borist bæklingur sem nefnist Aspergerheilkenni. Hvernig hœgt er að skilja og hjálpa fólki með Aspergerheilkenni og velvirkum einhverfum. Það er Agatha Agnars- dóttir sem gefur bæklinginn út með tilstyrk Svalanna. Efni bæklingsins er tvíþætt. Fyrri hlutinn er eftir Kari Steindal hjá Landssamtökum um einhverfu í Noregi en hún fjallar um aðferðir við að greina Aspergerheilkenni og að setja sig inn í vanda þeirra og aðstoða þá sem því eru haldnir. Síðari hlutinn er fyrirlestur sem Rita Jorden dósent hjá School of Education við Háskólann í Birmingham í Englandi hélt á ráð- stefnu um Aspergerheilkenni í Uppsölum 1994 en þar fjallaði hún um leiðir til að þekkja og uppfylla hinar sérstöku kennslufræðilegu þarfir nemenda með Aspergerheilkenni. Bæklingurinn liggur frammi á skrifstofu Læknablaðsins. Töflur, C 09 C A Innihaldslýsing: Hver tafla inniheldur Candesartanum INN, cilexetil 4 mg, 8 mg eöa 16 mg. Ábendingar: Hár blóöþrýstingur. Skammtar og lyfjagjöf: Skömmtun: Venjulegur viöhaldsskammtur Atacand® er 8 mg eða 16 mg einu sinni á dag. Hámarks blóðþrýstingslækkandi verkun næst innan 4 vikna frá upphafi meöferðar. Lyfiö má taka með eöa án matar og án tillits til aldurs. Hjá sjúklingum meö alvarlega skerta nýrnastarfsemi (þ.e. kreatínín klerans <30 ml/mín. skal hefja meöferð með 4 mg. Börn: Lyfið er ekki ætlað börnum. Frábendingar Ofnæmi fyrir einhverju af innihaldsefnum lyfsins. Meöganga og brjóstagjöf. Varnaðarorð og varúðarreglur: Skyld lyf geta aukið þvagefni í blóði og kreatínín í sermi hjá sjúklingum með tvíhliða nýrnaslagæðaþrengsli eða þrengsli í slagæð að einu nýra ef aðeins eitt nýra er til staðar. Þetta getur einnig átt við um angiótensín II viðtaka antagónista. Hjá sjúklingum með alvarlega skert blóðrúmmál geta einkenni lágþrýstings komið fram. Samhliða gjöf á Atacand® og kalíumsparandi þvagræsilyfi getur valdið hækkun á kalíumþéttni í sermi. Milliverkanir: Engar þekktar. Aukaverkanir: Lágþrýstngur vegna áhrifa lyfsins. Lyfhrif: Eiginleikar: Atacand® er forlyf ætlað til inntöku. Það umbreytist hratt í virkt efni, candesartan, vegna esterhýdrólýsu við frásog úr meltingarvegi. Candesartan er angíótensín II viðtaka blokki, sérhæfður fyrir AT-1 viðtaka, með sterka bindingu við og hæga losun frá viðtakanum. Það hefur enga eigin virkni. Blóðþrýstingslækkandi verkun er vegna lækkunar á útlægu æðaviðnámi, en hjartsláttartíðni, slagrúmmál og hjartaútfall breytist hins vegar ekki. Það er ekkert sem bendir til alvarlegs eða óeðlilega mikils lágþrýstings eftir fyrsta skammt eða versnunar þegar meðferð er hætt. Blóðþrýstingslækkandi verkun hefst innan 2 klst og næst hámarks blóðþrýstingslækkandi verkun, innan fjögurra vikna og helst við langtíma meðferð. Blóðþrýstingslækkun af völdum lyfsins helst jöfn í 24 klsL og þess vegna er nægjanlegt að gefa lyfið einu sinni á dag. Lyfið hefur svipaða virkni, óháð aldri og kyni sjúklingsins. Candesartan eykur blóðflæði um nýru og viðheldur eða eykur gaukulsíunarhraða á meðan viðnám nýrnaæða og síunarhlutfall minnkar. Atacand® hefur engar óæskilegar verkanir á blóðsykur eða blóðfitu. Lyfjahvörf: Frásog og dreifing: Eftir inntöku umbreytist candesartan cílexetíl í virka efnið candesartan. Meðal aðgengi (nýting) candesartans er u.þ.b. 40% eftir inntöku á candesartan cílexetíli í lausn. Meðalhámarksþéttni í sermi (Cmax)) næst eftir 3-4 klst. eftir inntöku töflu. Þéttni candesartans eykst línulega með auknum skammti á lækningalegu skammtabili. Ekki hefur greinst neinn munur á lyfjahvörfum candesartan eftir kyni. Flatarmálið undir sermiþéttni-á móti-tíma-kúrfu (AUC) fyrir candesartan breytist ekki vegna fæðu. Candesartan er í miklum mæli bundið plasma- próteinum (>99%). Dreifingar-rúmmál candesartans er 0,1 l/kg. Umbrot og útskilnaður: Candesartan skilst aðallega út í óbreyttu formi í þvagi og galli og einungis að litlum hluta vegna umbrota í lifur. Lokahelmingunartími candesartans er u.þ.b. 9 klst. Engin uppsöfnun á sér stað við endurtekna skammta. Heildar plasmaklerans candesartans er u.þ.b. 0,37 ml/mín./kg, með nýrnaklerans u.þ.b. 0,19 ml/mín./kg. Eftir inntöku á 14c-merktu candesartan cílexetíli safnast um 30% af heildargeislavirkni fyrir í þvagi og um 70% í saur. Lyfjahvörf hjá ákveðnum sjúklingahópum: Hjá öldruðum (eldri en 65 ára) aukast bæði Cmax og AUC fyrir candesartan miðað við unga einstaklinga. Engu að síður er blóðþrýstingssvörun og tíðni aukaverkana svipuð eftir gefinn skammt af Atacand® hjá ungum og öldruðum, svo ekki er nauðsynlegt að leiðrétta skammta hjá öldruðum. Hjá sjúklingum með skerta nýrnastarfsemi í samanburði við þá sem hafa eðlilega nýrnastarfsemi, sést hækkun á Cmax, AUC og útskilnaðarhelmingunar-tíma candesartans. Þrátt fyrir það er ekki nauðsynlegt að leiðrétta skammta hjá sjúklingum með væga til miðlungs skerta nýrna-starfsemi. Hjá sjúklingum með alvarlega skerta nýrnastarfsemi (þ.e. kreatínín klerans <30 ml/min./1,73 m? BSA) er klínísk reynsla takmörkuð og íhuga skal hvort gefa skuli lægri upphafsskammt 4 mg. Hjá sjúklingum með væga eða miðlungs skerta lifrarstarfsemi hafa engar breytingar á lyfjahvörfum sést. Pakkningar og verð: mars 1998. Greiðsluþátttaka sjúkratrygginga: R, B. Pakkningar: Töflur 4 mg: 28 stk. (þp.) -2.853 kr.; 98 stk. (þp.) -7.966 kr.; 1 tafla x 98 stk. (þp, sjúkrah.pkn.) -7.966 kr. Töflur 8 mg: 28 stk. (þp.) -3.172 kr.; 98 stk. (þp.) - 8.987 kr.; 1 tafla x 98 stk. (þp, sjúkrah.pkn.) -8.987 kr. Töflur 16 mg: 28 stk. (þp.) - 3.810 kr.; 98 stk. (þp.) -10.980 kr.; 1 tafla x 98 stk. (þp, sjúkrah.pkn.) -10.980 kr. Markaðsleyfishafi: Hássle Lákemedel, Svíþjóð. Umboð á íslandi: Pharmaco hf., Hörgatúni 2, Garðabæ. Heimildir 1: Nishikawa K et al Candesartan cilexetil: a review of its preclinical pharmacology Journal of Human Hypertension 1997; 11 Suppl 2: S9-S17. 2: Sever P. Candesartan cilexetil: a new, long-acting, effective angiotensin II type 1 receptor blocker. 3: Húbner R et al Pharmacokinetics of candesartan after single and repeated doses of candesartan cilexetil in young and elderty healthy volunteers. Journal of Human Hypertension 1997; 11 Suppl 2: S19-S2S. 4: Elmfeldt D et al Candesartan cilexebl, a new generation angiotensin II antagonist, provides dose depentent antihypertensive effect. Journal of Human Hypertension 1997; 11 Suppl 2: S49-S53. 5: Andersson OK and Neldam S. A comparison of the antihypertensive effects of candesartan cilexetil and losartan in patients with mild to moderate hypertension. Journal of Human Hypertension 1997; 11 Suppl 2: S63-S64. 6: Sever P and Holugreve Long-term efficacy and tolerability of candesartan cilexetil in pabents with mild to moderate hypertension. Journal of Human Hypertension 1997; 11 Suppl 2: S69-S73. 7: Belcher G et al Candesartan cilexetil: safety and tolerability in healthy volunteers and patients with hypertension. Journal of Human Hypertension 1997; 11 Suppl: S8S-S89. 8 Heuer HJ et al Twenty-four hour blood pressure profile of different doses of candesartan cilexebl in patients with mild to moderate hypertension. Journal of human Hypertension 1997. 11 Suppl 2: S55-SS6. AtacancLm candesartan olexetil /
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.